Gaming

Borderlands 3

22.08.2019

Útgáfudagur 13. september 2019.

Þá er hinn eini sanni Borderlands 3 væntanlegur 13.september, en þetta er skotleikurinn sem fann upp “loot-ið” og inniheldur hann endalausar samsetningar af vopnum. Söguþráðurinn er glænýr og leikmenn ganga um nýja heima og berjast við óvini sem hafa aldrei sést áður. Leikmenn geta valið að spila sem einn af fjórum Vault Hunters, en hver þeirra hefur sinn einstaka stíl og hæfileika. Leikmenn geta spilað einir og sér eða með vinum, en markmiðið er að bjarga heimaplánetunni frá einu illvígasta illmenni sólkerfisins.

Hver persóna hefur sína leið til að þróast og verða öflugri. Hver Vault Hunter fyrir sig getur valdið svakalegum skaða, en sameinaðir eru þeir nánast óstöðvandi.

Vault Hunters í Borderlands 3

Moze er THE GUNNER – Þegar Moze þarf að láta bakka sig upp, þá notar hún vélmennið Iron Bear sem lætur óvinina finna vel fyrir því.

Amara er THE SIREN – Með bullandi sjálfstraust veður hún um vígvöllinn og notar Siren krafta sína til að ganga frá óvinunum.

FL4K er BEASTMASTER – FL4K lifir fyrir það að finna og elta óvinina. Það sama má segja um kvikindin sem fylgja honum.

Zane er OPERATIVE – Sérhæfir sig í allskyns græjum, en Zane er snillingur í að henda sér inní bardagann, valda uppnámi og læða sér svo aftur út.
Í Borderlands 3 hafa leikmenn nær endalaus mismunandi vopn og græjur og hver bardagi er tækifæri til að finna nýtt stöff. Gætirðu hugsað þér byssu sem kastar út skildi sem ver leikmenn fyrir byssukúlum? Klárlega! Viltu riffil sem skýtur út eldi? Auðvitað. Hefur þig dreymt um byssu sem getur látið á sig vaxa fætur og eltir þannig upp óvini? Þetta er allt í leiknum.

Borderlands heimurinn

Í Borderlands 3 eru nýir heimar sem ná mun lengra en svæði Pandóru, en hver heimur hefur sín sérkenni, umhverfi og óvini. Leikmenn verða að vaða í gegnum eyðimerkur, stórborgir, skóglendi og fleira.

Leikurinn býður upp á möguleikann að spila við hvern sem er í gegnum netið eða með félögunum í sófanum heima. Allir fá sitt “loot”


Myndband – Sýnishorn
Myndband – Fyrstu 14 mínúturnar í Borderlands 3
Myndband – Fyrsta sýnishornið fyrir 4 leikmanna Co-op spilun
Myndband – Vopnin

Borderlands 3 er væntanlegur í ELKO 13.september. Forsala á elko.is

Smelltu hér til að skoða Borderlands 3 á elko.is

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.