Fróðleikur

iPhone 12 Pro

15.10.2020

iPhone 12 Pro styður næstu kynslóð farsímakerfa, hann er ótrúlega kraftmikill og sparneytinn með nýja 5 nm A14 Bionic örgjörvanum. Háþróuðu myndavélarnar bjóða upp á eiginleika þar á meðal Night Mode og myndbandsupptöku með Dolby Vision HDR.

Þetta er iPhone 12 Pro.


Smelltu hér til að lesa nánar um iPhone 12 / 12 mini.


Hönnun

iPhone 12 Pro er með sígilda hönnun í nútíma formi. Ramminn er gerður úr fallegu ryðfríu stáli og bakhliðin er með möttu gleri. Vatnsvörnin er einnig talsvert bætt og síminn er IP68 vottaður allt að 6 metra dýpi í 30 mínútur.

Til þess að veita snertiskjánum betri endingu hefur Apple unnið náið með Corning og þróað byltingarkennda glertækni, Ceramic Shield er sérstakt gler sem inniheldur Nano-keramik-kristalla. Þetta nýja ferli við styrkingu á gleri tryggir fjórum sinnum betra fallþol miðað við iPhone 11 seríuna.

iPhone 12 Pro státar einnig af IP68 vottun sem þýðir að síminn þolir þrýsting og Vatnsvörnin er einnig talsvert bætt og síminn er IP68 vottaður allt að 6 metra dýpi í 30 mínútur.

iPhone 12 Pro / Pro Max eru fáanlegir í fjórum mismunandi litum, dökk blár, gull, silfur og grár.


5G

Venjulegt 5G er eitt, en 5G á iPhone er aðeins meira. iPhone 12 er með sérhönnuðum loftnetum sem eru einstaklega nákvæm og skilvirk. Síminn er hlaðinn mörgum 5G böndum svo þú nærð sambandi á fleiri stöðum. Hugbúnaðurinn var einnig endurhannaður til að hámarka nýtni 5G, til dæmis nýta mörg snjallforrit 5G án þess að þurfa auka afl.


Skjárinn

Super Retina XDR OLED skjárinn nær frá jaðri til jaðars. 6,1“ skjárinn er með 2532x1170p upplausn og með aðstoð True Tone tækni sýnir hann skýra, bjarta mynd með djúpum svörtum lit. Apple unnu í samstarfi við Corning til að gera endingarbetri skjá en nokkru sinni fyrr með Ceramic Shield hönnun sem er með 4 sinnum betri höggvörn en iPhone 11.

iPhone 12 Pro vs. iPhone 12 Pro Max

Skjárinn á iPhone 12 Pro er 6,1” Super Retina XDR og iPhone 12 Pro Max er með 6,7“ skjá. Þeir eru báðir aðeins 0,74 cm á þykkt.


Örgjörvinn

Allar gerðir af iPhone 12 símanum eru með sama örgjörvann.

A14 Bionic býður upp á 40% meiri hraða en A13 án þess að hafa áhrif á rafhlöðulífið. Apple sagði í kynningunni að þetta væri hraðasti örgjörvinn í farsíma hingað til.


Myndavélin

Aðalmyndavélin lagfærir myndstöðugleikann (OIS) allt að 5000 sinnum á sekúndu – fimm sinnum hraðar en iPhone 11 Pro og tekur því ótrúlega skarpar og stöðugar myndir og myndbönd. Til þess að gera þetta mögulegt er neminn enn stærri en á forvera sínum og grípur einnig fleiri liti og smáatriði. Nýja tæknin bætir líka næturmyndir, í samvinnu við A14 örgjörvann þarf ekki mikla birtu til að grípa augnablikið. Örgjörvinn notar svo gervigreind til að bera kennsli á viðfangsefni og magnar liti til að líkjast raunveruleika enn frekar.

Tvöfalt myndavélakerfi með Ultra Wide linsu

iPhone 12 kemur með tvöföldu myndavélakerfi með Ultra Wide myndavél sem gerir þér kleift að taka myndir og 4K myndbönd utan rammans og fangar allt að fjórum sinnum meira af myndefni. Þessi eiginleiki er fullkominn til að taka upp landslag, hópamyndir, arkitektúr og hreyfimyndir. önnur, 12Mpix gleiðhornsmyndavélin getur tekið fallegar myndir, janfvel við léleg birtuskilyrði með nýrri næturstillingu.

Fyrir ljósmyndun á andliti (e. Portrait mode) eru 6 stillingar í boði og dýptarstýringin gefur náttúrulegri Bokeh áhrif og kemur með meira birtustýringu til að skila ljómandi árangri í hvert skipti.

QuickTake

Þessi handhægi eiginleiki tryggir að þú færð öll óvænt augnablik inn í myndskeið. Með iPhone 12 getur þú auðveldlega tekið upp myndskeið í ljósmyndastillingu með því að halda takkanum (e. Shutter) inni.

TrueDepth myndavél

TrueDepth myndavélin að framan er með 12Mpix upplausn gerir þér kleift að taka fallegar sjálfumyndir og hópmyndir, fullar af líflegum litum. Þú getur meira að segja tekið svokallaða slofie, hágæða sjálfsmynd með hægri hreyfingu.

Næsta kynslóð Smart HDR

Fáðu skarpar myndir með Smart HDR 3, sem notar vélanám til að hámarka alltaf möguleika hverrar myndar með því að stilla birtu og lit. Þannig færðu fallegar myndir og myndband með fullkomlega teknum húðlitum og áferð, óháð birtuskilyrðum.


Hver er munurinn á myndavélinni á Pro og Pro Max?

iPhone 12 Pro

Aðalmyndavél 12MP (f/1.6) 2x aðdráttur, ofurgleiðlinsa 12MP (f/2.4), aðdráttarlinsa 12MP (f/2.0) 4x aðdráttur, 10x stafrænn aðdráttur

iPhone 12 Pro Max

Aðalmyndavél 12MP (f/1.6) 2x aðdráttur, ofurgleiðlinsa 12MP (f/2.4), aðdráttarlinsa 12MP (f/2.2) 5x aðdráttur, 12x stafrænn aðrdráttur


Apple ProRAW

– Væntanlegt –

Fáðu enn betri stjórn á myndunum. ProRAW tæknin veitir þér allar hefðbundnu RAW upplýsingarnar með fleiru. Til að flýta ferlinu fyrir er suð og lýsingartími leiðréttur fyrir fram.


Stýrikerfið

iPhone 12 státar af nýjum og endurbættu iOS 14 stýrikerfi.

Þökk sé nýjum og néttum símtalaglugga þurfa símtöl og FaceTime ekki að taka upp allan skjáinn. Skilaboðaforritið er endurbætt svo þú getur svarað með þráðum og fjölda nýrra eiginleika í Memoji. Heimaskjárinn er einnig uppfærður með smáforritum (e. widget) sem sýna hentugar upplýsingar á fljótlegan máta.

iphone 12 og iOs 14 stýrikerfið

Þú getur lesið nánar um iOS stýrikerfið hér.


Færri fylgihlutir, betra fyrir umhverfið

Apple ætlar að taka stórt skref með útgáfu, framleiðslu og dreifingu á iPhone 12. Þau hafa fækkað fylgihlutum sem koma í kassanum, það fylgir ekki heyrnartól eða hleðslukubbur, aðeins USB-C Lightning snúra. Með þessari breytingu minnkar óþarfa framleiðsla og pakkningar eru fyrirferða minni.

This image has an empty alt attribute; its file name is iphone12Pakkning.jpg

MagSafe stuðningur

MagSafe er komið aftur og einfaldlega virkar. Smelltu þráðlausu hleðslutæki, hulstri, kortahulstri og mörgu fleiru (sem styður MagSafe) aftan á símann. Segullinn heldur öllu á sínum stað.

This image has an empty alt attribute; its file name is magsafe_urval-1024x366.jpg

Aðrir eiginleikar iPhone 12 Pro:

– 6,1“ Super Retina XDR skjár
– Stálrammi- WiFi 6
– FaceID
– Bluetooth 5.0
– Dolby Atmos
– LiDAR nemi
– Aðalmyndavél 12MP (f/1.6) 2x aðdráttur, ofurgleiðlinsa 12MP (f/2.4), aðdráttarlinsa 12MP (f/2.0) 4x aðdráttur, 10x stafrænn aðdráttur
– Night Mode sjálfumyndir
– Myndbandsupptaka: 4K@60/30/24, 4K@60/30 með Dolby Vision HDR, 1080p@60/30, 1080p@240/120
– 189 g

Aðrir eiginleikar iPhone 12 Pro Max:

– 6,7“ Super Retina XDR skjár
– Stálrammi- WiFi 6
– FaceID
– Bluetooth 5.0
– Dolby Atmos
– LiDAR nemi
– Aðalmyndavél 12MP (f/1.6) 2x aðdráttur, ofurgleiðlinsa 12MP (f/2.4), aðdráttarlinsa 12MP (f/2.2) 5x aðdráttur, 12x stafrænn aðrdráttur
– Night Mode sjálfumyndir
– Myndbandsupptaka: 4K@60/30/24, 4K@60/30 með Dolby Vision HDR, 1080p@60/30, 1080p@240/120
– 228 g


Smelltu á myndina til að stækka töfluna.

Fjallað var um iPhone 12 í Græjurannsóknarstofunni í síðdegisþættinum fimmtudaginn 15. október. Þú getur hlustað á þáttinn hér.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.