sous vide creme brulee
Hugmyndir

Sous Vide Creme Brulee uppskrift

26.01.2018

Creme brulee hefur alltaf verið vinsæll eftirréttur en margir sem hafa ekki lagt í að gera hann heima frá grunni. Það er alger óþarfi að mikla það fyrir sér, þetta er í raun sára einfalt!

Með Sous Vide aðferðinni færðu fullkominn Creme brulee – alltaf!

Hráefni:
  • Eggjarauður úr 4 stórum eggjum (80g)
  • 300ml rjómi
  • 45g sykur
  • örlítið salt
  • Valkostur: 1 vanillustöng (mæli með!)
Áhöld:
  • Sous Vide tæki
  • Pottur eða plastbox fyrir vatnsbaðið
  • Krukkur með loki (4-6)
  • Brennari
Aðferð:
  1. Stilltu Sous Vide tækið á 80°C (Ef þú ert með Anova getur þú fundið uppskriftina í appinu.
  2. Blandaðu saman eggjarauðum, sykri, rjóma og salti*. Hrærðu því vel saman og notaðu sigti til að fjarlægja loftbólur.  *Ef þú vilt búa til vanillu Creme Brulee getur þú bætt við fræjum úr einni vanillustöng
  3. Helltu blöndunni í krukkur.
  4. Settu krukkurnar í vatnsbaðið.  Leyfðu þeim að vera í vatnsbaðinu í 1 klst við 80°C.
  5. Eftir klukkustund fjarlægir þú krukkurnar úr vatnsbaðinu og setur á ís til að kólna í 2 klukkustundir.
  6. Stráðu sykri yfir og notaður brennara til að brenna sykurinn.

Heimild: www.anovaculinary.com | Höfundur: Wook Yoo Yong
Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.