Fróðleikur

Svona hugsar þú vel um þurrkarann

21.01.2020

Ef þvottahúsið er í ólagi þá getur ýmislegt farið úrskeiðis á heimilinu!

Því er mikilvægt að hugsa vel um tækin og tileinka sér góða umgengni um þau.

Hér eru nokkrir góðir punktar sem hægt er að koma inn í rútínuna:

  • Þurrka ló úr síu innan á hurðinni, helst eftir hverja þurrkun.
  • Tæma vatnsskúffu eftir hverja notkun.
  • Gott er að ryksuga þurrkarann og innvolsið reglulega.
  • Eins þarf að þrífa þéttirinn reglulega. Hann er staðsettur neðarlega á þurrkaranum og þarf að opna lok til að draga hann út. Skolið hann upp úr volgu vatn og losið um alla ló.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.