Hugmyndir

Hindberja- og kókos hrákaka

27.09.2017

Ég fann þessa hjá Ninjakitchen og gat ekki látið hana fram hjá mér fara.

Það sem þú þarft:

Botninn

  • 50g kókoshveiti
  • 50g möndlumjöl
  • 2 msk hlynsýróp eða hunang
  • 2 ms fljótandi kókosolía
  • 2 msk möndlumjólk

Fylling

  • 150g kókosmjöl (gamla góða tætta)
  • 2 msk möndlu eða hnetu smjör
  • 4 msk hlynsýróp eða hunang
  • 2 msk bráðin kókosolía
  • 1 tsk vanillu extract
  • 100g frosin eða fersk hindber

Toppur

  • 50g dökkt súkkulaði
  • 1 tsk kókosolía
  • 2 msk þurrkuð hindber

 

Aðferð

  1. Blandaðu fyrst saman kókoshveiti og möndlumjöli, bættu restinni af uppskriftinni við og blandaðu vel saman.
  2. Þrýstu deiginu í mót.
  3. Fyrir fyllinguna, blandaðu öllum hárefnunum saman í blandarann og hrærðu þar til blandan verður mjúk.
  4. Bættu nú blöndunni við í mótið ofan á deigbotninn og settu í frystinn í 4 tíma.
  5. Taktu kökuna úr frysti rétt áður en þú ætlar að bera hana fram. Gott er að skera hana í teninga eða sneiðar núna.
  6. Bræddu súkkulaði og kókosolíu saman. Toppaðu kökuna með bræddu súkkulaði og þurkkuðum hindberjum.
  7. Ef það er afgangur af kökunni endist hún í fyrsti í mánuð.
  8. Njóttu!

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.