Fróðleikur

Hvernig geta spil eflt málþroska barna?

19.03.2026

Það er leikur að læra

Eitt árangursríkasta form lærdóms er í gegnum leik barna. Að spila við barn er því ekki aðeins góð afþreying heldur býður slík stund upp á ótal tækifæri til að efla orðaforða, tjáningu og hlustun.

Málþroski er mikilvægur hluti af þroskaferli barna. Það er til mikils að vinna þegar kemur að því að styðja við málþroska barna, því börn með góðan málþroska eru líklegri til að ganga betur í námi og í félagslegum samskiptum. 

Málþroski eflist í samskiptum!

Málþroskinn eflist fyrst og fremst í gegnum samskipti og með því að spila veitum við barni óskipta athygli okkar og eigum í skemmtilegum og uppörvandi samskiptum. Oft skapast líflegar og áhugaverðar umræður þegar við spilum. 

Ýmis færni þjálfast þegar við spilum, því auk þess að spjalla saman, æfum við okkur í að hlusta, fylgja fyrirmælum og skiptast á. Við veltum fyrir okkur ýmsum möguleikum og æfum okkur í að draga ályktanir út frá upplýsingunum sem við höfum.

Eflum orðaforða með spilum

Mjög mörg spil eru til þess fallin að auka við orðaforða barna og veita okkur tækifæri til að útskýra orð og hugtök á skemmtilegan máta. Við getum leikið okkur með orðin með því t.d. að teikna þau, lýsa þeim eða leika þau. Við veltum fyrir okkur hvers eðlis orðin eru og hvað þau gera. Við flokkum orð í yfirflokka (er þetta matur, húsgagn, farartæki, dýr…?) og oft getum við aðlagað spilin eftir þörfum, að aldri og þroska barnsins (er þetta dýr? – eða – er þetta húsdýr, spendýr, villt dýr?). Við getum æft ýmis hugtök með spilum, s.s afstöðuhugtök (fyrir ofan, fyrir neðan, við hliðina á, fyrir framan, fyrir aftan o.s.frv.) og stærðar- og magnhugtök (stór-stærri-stærstur, lítill-minni-minnstur, mikið-mest, lítið-minnst, fullt-tómt o.fl.). 

Spil þjálfa margs konar færni

Þegar við spilum þurfum við að fylgjast grannt með gangi leiksins, skiptast á og bíða eftir að röðin komi að okkur. Stundum þurfum við að leggja á minnið, t.d. hvar tiltekin spil eru staðsett eða hvaða spil eru búin að koma fyrir. Sum spil, sérstaklega fyrir þau eldri, reyna á snerpu og hraða hugsun. Allt reynir þetta á athygli og einbeitingu barna, sem er svo gott að þjálfa, sem og vinnsluminni. Sum spil reyna á samvinnu en önnur snúast um keppni þar sem einn vinnur en annar tapar – og það er öllum hollt að læra hvoru tveggja!

Við hjá Töfratali ákváðum að velja þrjú spil sem eru í uppáhaldi hjá okkur. Förum yfir hvernig þau nýtast í tengslum við málþroska.

1.Krakka Alías er skemmtilegt spil fyrir börn á öllum aldri. Spilið inniheldur spjöld með skemmtilegum og skýrum myndum, spilaborð, tímaglas og spilakalla. Markmið spilsins er að útskýra myndina sem barn dregur fyrir mótspilara án þess að segja hvað er á myndinni, þannig að mótspilarinn geti giskað á hvaða orð er verið að tala um. T.d. gæti barn þurft að útskýra orðið ,,hundur” með því að segja ,,Þetta er dýr sem geltir og margir eiga sem gæludýr”. Börn æfa sig að flokka myndirnar í yfirflokka eins og hundur er dýr, tómatur er grænmeti eða matur o.s.frv. Fyrir þessi allra yngstu er sniðugt að notast við færri spil og velja úr, nota t.d. bara spil með mat og dýrum, það er einfaldara og við kennum þeim að byrja á að segja yfirheitið. Hvort er þetta dýr eða matur o.s.frv. Þegar þau eru að æfa sig eru þau gjarnan óvart að segja það sem er á myndinni en þá er sniðugt fyrir okkur að grípa það og segja “aaa já þú ert með banana, það er matur”. Í gegnum spilið koma oft orð sem barn þekkir ekki eða á erfitt með að útskýra og þá er sniðugt að taka þær myndir til hliðar og rifja upp í lokin. Þetta spil er ekki síður skemmtilegt fyrir okkur fullorðna fólkið, enda er Alias til í fleiri en einni útgáfu!  

2. Just One er orðaspil í miklu uppáhaldi því það er samvinnuspil – allir leikmenn hjálpast að við að ná markmiðinu sem er að ná réttum orðum. Það hentar sérstaklega vel börnum sem eru með slakan málþroska, því fyrir þau er oft erfitt að spila spil sem reyna á orðaforða og útskýringar þegar það er keppni. Einnig hentar það vel ólíkum aldri því færnin/getan skiptir ekki öllu þar sem spilið gengur út á að hjálpast að. Frábært fjölskylduspil sem styður við málþroska.

3. Brain Freeze er bæði til fyrir fullorðna og börn (Krakka Brain Freeze). Þetta spil er tilvalið til þess að taka með sér í ferðalagið! Það er fyrirferðalítið og ekkert mál að stinga ofan í tösku eða geyma í bílnum og nota í löngum bílferðum. Á hverju spili stendur einn flokkur, t.d. ,,álegg á pizzu”, ,,hljóðfæri” og leikmenn skiptast á að nefna orð sem tilheyrir flokknum. Leikmaður er úr leik ef hann segir orð sem hefur þegar verið sagt eða þá að hann finnur ekkert nýtt orð (fær brain freeze). Það er mjög auðvelt að aðlaga spilið eða breyta, t.d. hægt að hjálpast að við að finna sem flest orð.

Að lokum

Njótum þess að eiga gæðastundir saman, spilum, skemmtum okkur og sköpum minningar!

Hér finnur þú öll spil hjá Elko

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.