Fróðleikur

Oppo Reno 14

3.02.2026

Hvað er Oppo?

Oppo er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem hefur vaxið hratt á heimsmörkuðum snjallsíma undanfarið. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 í Kína og hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á nýsköpun, vandaða hönnun og notendavæna tækni. Oppo er þekkt fyrir að blanda saman háum gæðum og góðu verðmæti, sem endurspeglast í símtækjum sem henta bæði kröfuhörðum tækninördum og venjulegum notendum.

Oppo er hluti af BBK Electronics, risasamstæðu sem á einnig vörumerki á borð við OnePlus, Vivo og Realme. Þessi tengsl gera Oppo kleift að samnýta þekkingu, tækni og hugmyndir yfir vörulínur – og bjóða upp á símtæki í mörgum verðflokkum og stílum.

Oppo leggur mikið upp úr því að símar þeirra séu ekki aðeins öflugar tæknivörur, heldur einnig fallegir fylgifiskar í daglegu lífi. Léttar byggingar, glæsileg yfirborð og hóflega vönduð smáatriði gera Oppo-síma að eftirsóknarverðum fylgihlutum.

Oppo hefur fest sig í sessi sem eitt af fremstu vörumerkjum í heimi snjallsíma — með áherslu á góðan frágang, myndavélar sem standa sig vel, hraða og rafhlöðuendingu. Hvort sem þú ert tæknisinni eða einfaldlega vilt áreiðanlegan síma í daglegri notkun, þá er Oppo með valkosti sem eiga eftir að höfða til fjölbreyttra notenda.


Oppo Reno 14 og Reno 14f – stílhreinir og notendavænir

Oppo heldur áfram að styrkja stöðu sína á snjallsímamarkaðnum með kynningu á Reno 14 og Reno 14f, tveimur símtækjum sem sameina fágaða hönnun, snjalla tækni og notendavæna upplifun. Reno-línan hefur lengi verið þekkt fyrir gott jafnvægi milli verðs og eiginleika – og nýjustu módelin eru engin undantekning.

Ef þú vilt hafa Android snjallsíma en finnst stýrikerfið í Apple símanum einfaldara og notendavænna gæti Oppo hentað sem snjallsími fyrir þig. Oppo Reno 14 er með ColorOS stýrikerfi sem er byggt upp á

Hönnun sem sker sig úr

Báðir símarnir leggja áherslu á nútímalegt og glæsilegt útlit. Þunn bygging, falleg áferð og létt hönnun gera þá þægilega í daglegri notkun, hvort sem þú ert í vinnunni eða á ferðinni. Oppo heldur áfram að leggja áherslu á smáatriði sem láta símana líta út og finnast eins og dýrari tæki.

Reno 14F er aðeins 7,74-,7,78mm og vegur aðeins 180gr. Síminn er með IP69 vottun, vatns- og rykvörn.

Skjár og notendaupplifun

Oppo Reno 14 og 14f bjóða upp á bjarta og skýra skjái sem henta vel bæði fyrir samfélagsmiðla, myndbönd og leiki. Notendaviðmótið er lipurt og einfalt í notkun, með áherslu á hraða og stöðugleika – eitthvað sem bæði nýir og vanir Android notendur kunna að meta.

Skjárinn er 6,57“ OLED skjár á Reno 14 F og 6,59“ á Reno 14, bæðir með 120Hz endurnýjunartíðni.

Oppo Reno 14 símarnir eru með Color OS 15 stýrikerfið sem er byggt ofan á Android en gefur notendavænt viðmót. Ath ekki er hægt að velja íslenskt viðmót.


Myndavélin

Reno 14 er með öflugari myndavél en 14 F síminn.

Reno 14 er með þrefalda myndavéla þar sem ein er telephoto linsa með 3,5× optískum zoom, sem gefur betri möguleika á að taka fjarstæðir hlutir skýrt. Aðalmyndavélin er 50MP og Selfie myndavélin er 32MP.

Reno 14f er með 50MP aðal- og ultrawide, og aukmálmynd (macro) og svo 32MP selfie myndavél eins og á 14.

4K Ultra-Clear myndbönd

Taktu upp frábær myndbönd í 4K, engin þörf að stilla inn síur eftirá.

Getur þú tekið myndbönd í kafi með Reno14?

Já Reno 14F og 14 eru IP69 vottaðir símar, vatns- og rykvarnir. Vatnsvarin mv 1 metra í 30 mínútur. Ef þú tekur myndir í saltvatni er mælt með að skola símann eftirá. Vatnsvörn er mæld miðað við ferskvatn, aðrir vökvar t.d. saltvatn gætu haft skaðleg áhrif. 


Myndavélar sem fanga augnablikið

Myndavélin hafa verið einn af styrkleikum Reno seríunnar frá Oppo og hér er engin breyting á. Símarnir eru hannaðir til að taka skýrar og flottar myndir við mismunandi aðstæður, hvort sem um er að ræða í dagsljós, við léleg birtuskilyrði eða sjálfur. Fyrir þá sem elska að deila myndum á samfélagsmiðlum eru Reno 14 og 14f frábært val.

Vertu betri ljósmyndari

Með AI Perfect Shot getur þú notað AI til að lesa andlit og finna aðra mynd í myndaseríunni sem þú tekur til að skipta út andliti, td ef besta myndin inniheldur einhvern með lokuð augu.

Settu ferskt útlit á myndina

Með AI Styler Tranfer getur þú sett myndina í vissan stíl,


Frammistaða og rafhlaða

Í daglegri notkun standa báðir símarnir sig vel, forritin opnast hratt og ekkert mál að hafa mörg forrit í gangi í einu. Rafhlaðan er hönnuð til að endast út daginn og hleðslulausnir Oppo tryggja að þú eyðir minni tíma með símann í sambandi.


Samanburður – Oppo Reno 14 vs Oppo Reno 14f

Oppo hefur gefið út Reno 14 og Reno 14f, tvö símtæki sem sitja í svipuðum verðflokkum en bjóða upp á mismunandi lausnir eftir því hvað þú metur mest; afl, skjáupplifun, rafhlöðuendingu eða myndavélin. Hér er einfaldur samanburður sem hjálpar þér að átta sig á hvað hvor sími býður upp á.

Örgjörvi og afköst

Oppo Reno 14

Er knúinn af MediaTek Dimensity 8350, sem skilar mun meiri afköstum í daglegri vinnslu og leikjum samanborið við Reno 14f. Betri CPU og GPU gefa honum skýr yfirburði í hraða og fjórum kjarna vinnslu.

Oppo Reno 14f

Notar Qualcomm Snapdragon 6 Gen 1, sem er duglegur en almennt veikari í beinum samanburði við MediaTek Dimensity örgjörvann í Reno 14. Hentar vel fyrir venjulegt daglegt not og samfélagsmiðla, en er ekki eins öflugur í kröfuharðari forritum og leikjum.

Skjár

Reno 14

  • Stærri skjár (6.59″) með hærri upplausn og píxelþéttleika, sem skilar örlítið skarpari mynd.
  • 120Hz uppfærsluhraða.

Reno 14f

  • Skjárinn er örlítið minni (6.57″) en samt AMOLED og 120Hz.
  • Hefur betri hámarks birtustig (HBM) sem nýtist vel utandyra.

Myndavélin

Reno 14

  • Þrí-kerfi myndavéla þar sem ein er telephoto-linsa með 3,5× optískum zoom, sem gefur betri möguleika á að taka fjarstæðir hlutir skýrt.
  • 32MP selfie myndavél

Reno 14f

  • Klasi með aðal- og ultrawide, og aukmálmynd (macro).
  • 32MP selfie myndavél eins og á 14.

Rafhlaðan og hleðsla

Sama rafhlöðustærðin á bæði 14 og 14F, 6000 mAh sem gefur mjög góða endingu fyrir daglegt not.

Hleðsla

  • Reno 14: 80W hraðhleðsla – hleður mun hraðar upp.
  • Reno 14f: 45W hraðhleðsla – hægari en Reno 14.

Reno 14 er góður kostur fyrir þá sem vilja aðeins meiri kraft og fínni útfærslur.

Reno 14f hentar sérstaklega vel þeim sem leita að stílhreinum og áreiðanlegum snjallsíma á hagkvæmara verði.


Hvaða Reno síma ættir þú að velja?

Veldu Oppo Reno 14 ef þú vilt:

  • meiri afl og hraða
  • öflugri myndavél og meiri möguleika í upptökum
  • hraðari hleðslu og stærra vinnsluminni

Veldu Oppo Reno 14f ef þú vilt:

  • góða heildarupplifun á hagkvæmara verði
  • Góðan skjá og rafhlöðuendingu
  • minni og léttari síma með gagnlegum eiginleikum

Smelltu hér til að skoða Oppo Reno snjallsíma á elko.is.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.