Fróðleikur

Shark CryoGlow – Áhrifarík húðumhirða heima

9.03.2026

SharkCryo Glow LED andlitsgríman hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum undanfarna mánuði, þar sem áhrifavaldar og aðrir notendur hafa deilt reynslu sinni og sýnt fram á árangur eftir notkun hennar.

Með grímunni geta notendur nýtt áhrifaríka LED-ljósmeðferð og kælingu undir augun heima við. Með einföldum meðferðarstillingum sem taka aðeins nokkrar mínútur getur þú bætt áferð húðar, minnkað fínar línur og dregið úr þrota undir augum.

@alixearle

It’s worth the hype @Shark Beauty cryoglow LED mask ♥️👏🏻 #sharkcryoglow #sponsoredbysharkbeauty

♬ original sound – Alix Earle

Af hverju ættir þú að nota LED-andlitsgrímur?

LED-meðferðir hafa verið notaðar í snyrtigeiranum lengi, bæði hjá fagfólki og í læknisfræðilegum aðstæðum. Andlitsgríman nýtir LED-ljósin til að örva frumur, stuðla að auknu kollageni og vinna gegn bólum og bólgum í húðinni.

Hvernig virkar CryoGlow?

Shark CryoGlow sameinar rauða, bláa og innrauða LED-ljósmeðferð og býður upp á fjórar forstilltar meðferðir sem miða að stinnleika, bólum og auknum ljóma húðarinnar. Hver litur vinnur á mismunandi hátt: rauða og innrauða ljósið styður við kollagenframleiðslu og hjálpar til við að mýkja fíngerðar línur, á meðan bláa ljósið heldur húðinni hreinni og vinnur gegn bakteríum sem geta valdið bólum og ójöfnum húðlit.

Samhliða LED-meðferðinni notar CryoGlow kælipúða undir augunum, sem notast við InstaChill-tækni en það róar húðina, minnkar þrota og gefur ferskara yfirbragð eftir hverja notkun.

Hvað gerir LED-gríman?

Minni þroti undir augum

Tveir málmkælipúðar í grímunni veita markvissa kælingu undir augunum. Þeir eru knúnir af InstaChill-tækni og bjóða upp á þrjú stillanleg kælistig til að róa, draga úr þrota og þétta svæðið undir augunum. Þú getur notað þennan eiginleika einan sér eða samhliða LED-meðferðum.

Gegn öldrun

Með rauðu og innrauðu LED-ljósi styður CryoGlow við náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar. Þetta hjálpar til við að þétta húðina og draga úr fínum línum með reglulegri notkun.

Hreinsun húðar og bólur

Samsetning blás, rauðs og innrauðs ljóss vinnur að því að minnka roða og bólumyndun. Ljósmeðferðin hjálpar jafnframt til við að berjast gegn bakteríum á yfirborði húðarinnar sem geta valdið bólum.

Viðhald og ljómi

CryoGlow býður einnig upp á stutta daglega viðhaldsmeðferð sem tekur aðeins um 4 mínútur. Hún hjálpar til við að viðhalda jafnvægi húðarinnar og gefa henni heilbrigðan ljóma.

Hvernig á að nota Shark CryoGlow?

Gríman er hönnuð til að vera einföld í notkun, þar sem þú velur þá stillingu sem hentar þínum þörfum hverju sinni. Gríman sér sjálf um ljósmagn og tímalengd, sem gerir notkunina bæði örugga og þægilega.

Svona notar þú CryoGlow skref fyrir skref:

Byrjaðu með hreina og þurra húð. Þú vilt ekki að húðvara eða olía hindri ljósameðferðina.

Settu hana á andlitið með stillanlegum ólum þannig að hún liggi þægilega yfir húðinni.

Veldu viðeigandi meðferð með fjarstýringunni. Gríman býður upp á mismunandi stillingar (t.d. Better Aging, Skin Clearing, Skin Sustain, Under-Eye Revive) en hver og ein stilling miðar að sérstöku markmiði.

Gríman keyrir meðferðina sjálfkrafa og slekkur á sér þegar lotunni er lokið, þannig að þú getur einfaldlega tekið hana af að lokinni notkun.

Þegar meðferð hefur verið lokið. Slökktu á grímunni og taktu hana af. Þrífðu grímuna eftir notkun með rökum klút — þetta heldur henni hreinri og tilbúinni fyrir næstu lotu.

Shark CryoGlow LED andlitsgríman er öflug og notendavæn lausn sem sameinar LED ljósameðferð og kælingu undir augunum til að vinna gegn húðvandamálum á skjótan og þægilegan hátt. Með fyrirfram stilltum meðferðum, fjarstýringu og útpældri hönnun er hún frábær viðbót við húðrútínuna heima.

Nánari upplýsingar um Shark CryoGlow er að finna á elko.is

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.