Fréttir Fróðleikur

Þegar gæði og stíll mætast – HUAWEI Freeclip 2

18.03.2026

Létt í eyrum. Fullkomlega skýrt.

Létt C-brúarhönnun | Aðlögunarhæf opin hlustun | Kristaltær símtöl

Létt C-brúarhönnun

Snjöll opin hlustun

Kristaltær símtöl

Verðlaun frá leiðandi miðlum

Létt og loftkennd C-brúarhönnun

Njóttu langvarandi þæginda með HUAWEI FreeClip 2. Heyrnartólin eru með 25% mýkri⁵ C-brú úr húðvænu fljótandi sílikoni og lögunarminni málmblöndu. Þau vega aðeins 5,1 g hvert og veita nánast þyngdarlausa upplifun.

Comfort Bean

Byggt á gögnum úr yfir 10.000 eyrnasýnum hefur Comfort Bean verið hannað af mikilli nákvæmni og er 11% minna en áður, sem tryggir þægilega og örugga mátun við þitt eyra.

Acoustic Ball

Þó það virðist lítið, skilar það öflugum hljómi þökk sé tvöföldum himnudrifara.

Fágað. Ferkantað. Hleðsluhulstur.

Njóttu þægilegs grips á fáguðu og vönduðu hleðsluhulstri sem liggur einstaklega vel í hendi. Það er 17 prósent mjórra og 14 prósent léttara en áður, sem gerir það bæði nettara og auðveldara í meðhöndlun. Heyrnartólin liggja snyrtilega saman inni í hulstrinu og skapa heild sem er bæði falleg og praktísk í daglegri notkun.

Framúrstefnutækni

Njóttu þess að halda á fáguðu og vönduðu hleðsluhulstri sem liggur vel í hendi. Það er 17 prósent mjórra og 14 prósent léttara, sem gerir það nettara og þægilegra í daglegri notkun.

Tvöfaldur kraftdrifari

Þrátt fyrir smæð sína skila þessi heyrnartól ótrúlega öflugum hljómi. Með kraftmiklum tvöföldum himnudrifara bjóða þau upp á allt að 100 prósent meiri hljóðstyrk sem skilar dýpri og fyllri hljómi.

Hljóð sem aðlagast umhverfinu

Aðlögunarhæfur hljóðstyrkur

Frá nið borgarlestarinnar til kliðs í líflegum veitingastað laga þessi heyrnartól hljóðstyrkinn sjálfkrafa að umhverfinu. Þannig helst hljóðið skýrt og hreint, sama hvar þú ert.

Aðlögunarhæf raddbæting

HUAWEI FreeClip 2 gerir samtöl og hljóðbækur skýrari með því að bæta raddskýrleika og laga sig að umhverfinu. Niðurstaðan er betri og þægilegri hlustunarupplifun í hverjum aðstæðum.

Opin hlustun og Einkasímtöl

Kristaltær símtöl

Heyrðu og láttu heyra í þér skýrt og greinilega, jafnvel í hávaða á opinberum stöðum. Heyrnartólin greina bakgrunnshljóð og draga úr þeim með háþróuðu þriggja hljóðnema kerfi og fjölrása DNN reikniritum, sem tryggir skýrari og betri samskipti.

Hljóð beint til þín

Stígðu inn í þitt eigið hlustunarrými þar sem hljóðið beinist beint að eyrunum. Með öflugu hljóðbylgjukerfi berst hljóðið nákvæmlega þangað sem það á að fara, á meðan hljóðstyrkurinn aðlagast sjálfkrafa að umhverfinu.

Stjórnun með höfuðhreyfingum

Stjórnaðu tónlistinni með snertingum og strikum og kinkaðu kolli eða hristu höfuðið til að svara eða hafna símtölum. Svona einfalt er það!


HUAWEI FreeClip 2 sameinar þægindi, snjalla tækni og stílhreina hönnun í einni heild. Fullkomin lausn fyrir skýra og þægilega hlustun hvar sem er.

Þú finnur HUAWEI FreeClip 2 í ELKO


Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.