Fréttir Fróðleikur

Verðsaga nú aðgengileg á elko.is

3.03.2021

ELKO birtir nú verðsögu á öllum vörum á elko.is.

Fyrirtækið hefur lengi vel verið leiðandi á raftækjamarkaði þegar það kemur að neytendarétti, en nýjasta útspil ELKO er hluti af innleiðingu nýrrar stefnu þar sem áhersla er lögð á gagnsæi, þjónustu og aukið samtal við viðskiptavini. Með því að sýna verðsögu á vörum í vefverslun viljum við tekur fyrirtækið þátt í umræðunni með neytendum og sýnir í verki að það sem skiptir viðskiptavini máli, skiptir okkur máli.

Hugmyndin um að birta verðsögu á öllum okkar vörum hefur blundað hjá fyrirtækinu um þó nokkra stund en vegna tæknilegra mála hefur ekki verið farið í verkefnið fyrr en nú. Þetta verkefni er eitt af mörgum sem munu líta dagsins ljós á næstu mánuðum þar sem gagnsæi og þjónusta við viðskiptavini okkar verða í forgrunni.


Um verðsöguna

Gögnin eru sett fram á vöruspjaldi hverrar vöru á þann hátt að viðskiptavinir eiga auðvelt með að lesa úr þeim. Verðsagan er birt á grafi þar sem sjá má auglýst verð vöru við lok dags ásamt því að tilboðsverð vöru á gefnu tímabili er sérstaklega merkt inn á grafið.


Traust viðskiptasamband til framtíðar

Viðskiptavinir eru ávalt á tánum varðandi réttindi sín og ósjaldan skapast þarfar umræður um verðbreytingar á einstökum vörum. Þessi umræða er yfirleitt hvað hæst í kringum útsölur eða aðra tilboðsdaga þegar mikið er pantað inn af nýjum vörum og verðbreytingar eru örar.

Í ELKO er vandað gríðarlega vel til verks við verðlagningu á vörum og kappkostar fyrirtækið við að bjóða þekkt vörumerki á lágu verði þar sem tilboð eru auglýst á heiðarlegan hátt. Með birtingu verðsögu vill fyrirtækið auka gagnsæi og stuðla þannig um leið að traustu viðskiptasambandi við viðskiptavini sína til framtíðar.

Birting verðsögu er bæði góð og rökrétt viðbót við aðra þjónustuþætti ELKO eins og 30 daga skilaréttinn, verðöryggi, viðbótartryggingu og inneignarnótur án gildistíma og verulega lengdan skilarétt í kringum t.d. jól og fermingar.

Þú getur skoðað þínar kaupnótur á mínum síðum.


Þekkt vörumerki á lágu verði

ELKO er stærsta raftækjaverslun landsins og er áhersla sett á framúrskarandi þjónustu, vöruúrval og þekkt vörumerki á lágu verði. Stór hluti af innkaupum fyrirtækisins fer fram í norskum krónum sem og öðrum erlendum gjaldmiðlum og getur gengi krónunnar því haft talsverð áhrif á verðlag líkt og hjá öðrum fyrirtækjum hér á Íslandi.

Á útsölum og öðrum tilboðsdögum spila samningar við birgja stóran þátt þar sem birgjar bjóða vörur á sérstökum verðum fyrir þessi tilboð og eru þær vörur oft í takmörkuðu magni. Tilboðsverð endurspegla því ekki alltaf almennt verðlag á vörum fyrirtækisins.

Vert er að taka það fram að það eru margir þættir sem geta haft áhrif á verðlagningu eins og t.d. innkaupsverð, gengi og opinber gjöld svo eitthvað sé nefnt.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.