Fróðleikur

Snjallara heimili með SmartThings

22.09.2020

Með Samsung SmartThings appinu getur þú tengt saman flestar snjöllu vörurnar á heimilinu þínu, allt frá ljósum yfir í þvottavélar og sjónvörp. Allt sem þú þarft er SmartThings Hub og SmartThings snjallforritið sem tengir saman flest snjallvörumerki.

SmartThings Hub

SmartThings Hub tengist við Wi-Fi heimilisins og myndar sjálfstætt net sem tengist flestum snjallheimilis græjunum þínum. Með SmartThings snjallforritinu stýrir þú og tengir saman nánast öll snjalltækin, óháð framleiðanda. Þannig getur þú vaknað á morgnana og sagt „Good morning Alexa“ og um leið kvikna öll ljós á þægilegri morgunstillingu, morgunlagalistinn þinn fer í gang í og kaffivélin byrjar að hella upp á rjúkandi heitt kaffi.

Uppsetning á Hub tengistöð og skynjurum.

Snjallari ljós, hljóð og mynd

Hversu oft hefur þú gengið um húsið og kveikt á lampa eftir lampa? Hefði ekki verið auðveldara að ýta bara á einn takka? Það verður nú leikur einn með SmartThings snjallforritinu og SmartThings rafmagnstengi. Þannig getur þú kveikt á lömpum eða jafnvel kaffivélinni með því að ýta á takkann eða með hjálp raddskipanna.

Snjallt öryggi og yfirsýn

Með hreyfiskynjaranum getur þú m.a. stýrt lýsingu og lýst upp innkeyrslur, tröppur og kjallara. Þú getur einnig sett upp myndavélar sem skynja hreyfingu þannig að þú sérð allar manna- og dýraferðir í húsakynnum þínum. Hreyfiskynjarar á ljósin geta aukið öryggi hússins út af fyrir sig. En þar að auki getur þú látið „Who let the dogs out“ með Baha Men hljóma í botni í öllum græjum hússins ef óboðinn gest ber að garði.

SmartThings vatnsskynjari. Tilvalið undir vask, fyrir neðan þvottavél eða uppþvottavél.

Skynjarar

Er hurðin opin eða lokuð? Vilt þú kveikja á lampanum í skápnum þegar skáphurðin opnast? Þú getur stjórnað þessu með hjálp skynjara. Sumir skynja hreyfingar, titring, breytt hitastig eða hraða. Það er til sérstakur skynjari sem nemur vatn og getur greint leka um leið og vatnið byrjar að flæða.

SmartThings fjölnota skynjari. Þú getur sett hann á hurð, glugga og t.d. skápa.

Snjallari heimilistæki

FamilyHub ísskáparnir frá Samsung virka sem Samsung Hub.

Mörg nýlegri helluborð, ofnar, þvottavélar, ryksuguróbótar og aðrar heimilisvörur bjóða upp á snjalltengimöguleika. Þú getur stillt tækin þannig að þau vinni sína vinnu þegar þér hentar jafnvel á meðan þú ert að heiman. Eins getur þú sett þvottavélina af stað og séð þegar hún er búin í símanum þínum eða í skjánum á Samsung kæliskápnum þínum. Þ.e.a.s. ef kæli- eða frystiskápurinn þinn er partur af SmartThings fjölskyldunni.

Hvernig gerir þú heimilið þitt að snjallheimili.

Þú færð SmartThings Hub og aðrar SmartThings vörur í ELKO. Hægt er að tengja Ring dyrabjöllu, Philips Hue og Arlo snjallmyndavélakerfi við SmartThings.

Í SmartThings línunni eru fáanlegar eftirfarandi vörur:

í ELKO eru einnig fáanlegar vörur sem hægt er að tengja við SmartThings Hub og gera heimilið þitt ennþá snjallara.

*Hægt er að sækja Smartthings smáforritið bæði í Android og iPhone snjallsíma.

SmartThings Hub – Heilinn fyrir snjallheimilið.
Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.