Hefur þú nýtt þér vefverslun ELKO til þess að leita að upplýsingum um vöru, athuga lagerstöðu í verslunum eða klára kaupin? Hér fyrir neðan finnur þú einfaldar leiðbeiningar sem gætu hjálpað þér að nýta þér vefverslun ELKO en ef þú ert ennþá í vandræðum getur þú alltaf nýtt þér netspjallið á elko.is sem er opið til 21:00. Nánari upplýsingar um netspjallið er að finna neðst hér í blogginu.
Að finna vöru/r á elko.is
Þú getur valið um tvær aðferðir við að finna vöruna.
- Vafra um síðuna og skoða vöruflokka.
- Hægt er að nota síur þegar komið er á vöruflokka til að aðgreina t.d. eftir framleiðenda eða lit.
2. Nota leitarvélina á elko.is. Skráðu inn leitarorð og kíktu á niðurstöðurnar.
Upplýsingar á vöruspjaldi
Þegar þú smellir á vöruna úr vörulista eða úr leitarniðurstöðum koma nánari upplýsingar um vöruna sem við köllum vöruspjald. Á vöruspjaldinu sérðu vöruheitið, vörunúmer, stutta lýsingu á vörunni, helstu atriði í punktaformi.
Þú getur farið neðar á síðuna til að sjá svo nánari upplýsingar um vöruna og tæknileg atriði.
Lagerstaða í verslunum:
Þú sérð einnig þarna lagerstöður í verslunum. Ef varan er afgreidd af vörulager stendur hvort vara er til á lager og í hvaða verslun hún er til sýnis.
Ef varan er uppseld í vefverslun, hvað þá?:
Ef varan er væntanleg aftur birtist möguleiki fyrir skráningu. Þú getur þá skráð inn netfang og fengið póst þegar hún er fáanleg aftur.
Setja vöru í körfu
Ef varan er fáanleg í vefverslun birtist ‘Setja í körfu’ takki fyrir neðan verð.
- Smelltu á takkann til að setja vöru í körfuna þína.
- Viðbótartrygging: Ef hægt er að kaupa viðbótartryggingu á vöru birtist gluggi þegar vara er sett í körfu.Þú getur valið að bæta við tryggingu eða loka glugganum.
Ganga frá kaupum
Skoðaðu ‘litlu’ körfuna þína og smelltu á ganga frá kaupum.
- Þá opnast karfan þín. Þarna sérðu yfirlit yfir allt sem er í körfunni.
Smelltu á ‘KLÁRA PÖNTUN’
- Fylltu út alla reitina til þess að geta valið afhendingarmáta.
- Veldu afhendingarmáta sem hentar þér: Fáðu vöruna senda eða nýttu þér að sækja vöruna á afhendingarstað sem hentar þér. Til dæmis eru fleiri en 20 afhendingarstaðir í boði ef þú vilt sækja smávöru + Póstbox.
- Veldu greiðslumáta sem hentar þér og kláraðu kaupin.
- Nú fer pöntun í ferli. Vara/vörur fara í tiltekt og settar í valin afhendingarmáta.
Afhendingarmátar
Smelltu hér til að skoða afhendingarmáta sem eru í boði.
Greiðslumátar
Smelltu hér til að skoða upplýsingar um greiðslumáta.
Nóturnar þínar
Þú getur skráð þig inn á minar.elko.is með rafrænum skilríkjum til að skoða nótur fyrir kaupum í ELKO.
Netspjallið
Netspjall ELKO er opið alla virka daga frá 9:00 til 21:00 og um helgar frá 12:00 til 21:00. Þjónustuver ELKO sér um að svara fyrirspurnum þínum eða koma málinu áfram á rétta aðila.
Nánari upplýsinga um netspjallið er að finna hér.
Mynd í haus: Photo by Kaitlyn Baker on Unsplash