
Uppskrift af pizzudeigi frá Ooni
9.05.2023Viltu gera pizzuna alveg frá grunni? Hér er einföld uppskrift af ítölskum pizzubotni frá Ooni. Uppskriftin er fyrir ca 1 kg af deigi sem dugar fyrir þrjár 16“ pizzur (3x 330gr.) eða fjórar 12“ (4x250gr).
Hráefni
368 gr volgt vatn
3 tsk salt (ca 18gr.)
5 gr þurrger (ca 1/2 tsk)
613 gr “00“ hveiti
Aðferð
Settu þurrgerið í volgt vatn og blandaðu þurrefnum saman í annari skál. Blandið svo þurrefnum saman við gerblönduna og blandið vel saman. Ef þú notar hrærivél með krók er best að hnoða deigið í vélinni í 5 til 10 mínútur. Ef þú ert að hnoða deigið í höndunum er mælt með að hnota í 10 mínútur. Settu svo rakt viskustykki yfir og láttu hefast á heitum stað í tvær klukkustundir, degið ætti að tvöfaldast í stærð á þeim tíma.
Skiptu deiginu í 3 til 4 jafna hluta, miðað við hvort þú ætlar að baka 12 eða 16 tommu pizzur. Settu hverja kúlu í sér skál eða á bakka, settu viskustykki yfir og leyfðu þvi að hefast í annað skiptið, í 30 til 60 mínútur.
Þegar deigið er tilbúið setur þú hveiti á borðplötuna og notaðu fingurgómana til að teygja deigið í rétta stærð. Neapolitan pizzur eru mjög þunnar, passaðu að gera ekki gat á deigið.

Góð ráð frá Ooni
Hvernig er best að skipta deiginu niður í 2 til 4 hluta?
Notaðu deigsköfuna frá Ooni til að auðvelda þér að skipta niður deiginu. Mótaðu alltaf deigið í kúlu svo að auðvelt er að teygja út degið í rétt form þegar kemur að pizzubakstrinum.

Hvernig er best að fletja út deigið?
Fyrir nýliða í pizzugerð getur verið stressandi að teygja pizzudeigið í fyrsta skiptið, en það þarf ekki að vera þannig. Ooni hefur tekið saman fjögur skref sem eru fullkomin fyrir byrjendur í pizzubakstri.
Smelltu hér til að lesa fjögur einföld skref til að fletja út pizzudeig frá Ooni (á ensku).
Ætlar þú að frysta deigið
Ef þú vilt gera pizzudeig til að eiga í frystinum er best að frysta deigið eftir að það hefur hefst í eitt skipti (2 klst). Skiptu þá deiginu í kúlur, í þeirri stærð sem þú ætlar að baka pizzuna í. Settu smá olífuolía í ílátið sem þú ætlar að frysta deigið í.
Viltu líka prófa að gera þína eigin pizzusósu? Smelltu hér til að sjá uppskrift frá Ooni.
Heimild: heimasíða Ooni.com

Þú færð pizzuofnar frá Ooni sem ganga fyrir gasi, rafmagni og kolum + viðarperlum. Skoðaðu úrvalið á elko.is.