Fróðleikur

Galaxy Watch Ultra er tilbúið í hvað sem er

15.07.2024

Galaxy Watch Ultra er öflugasta úrið frá Samsung og er tilbúið í hvaða aðstæður sem er, sama hversu erfiðar, þökk sé títaníum umgjörð og skjá úr safír gleri. Úrið fylgist með heilsunni þinni, allt frá svefnmælingum að hjartslátts- og blóðþrýstingsmælingum. Þökk sé nýja Galaxy AI ert þú núna með einkaþjálfara á úlnliðnum.


Samsung Galaxy Watch Ultra er bæði fyrir hið kröfuharðasta íþróttafólk og þá sem vilja öflugt og endingargott úr.

Galaxy Watch Ultra er útbúið 47 mm skjá úr safír gleri sem er auðvelt að sjá sama hversu bjart er úti. Exynos W1000 og 564 mAh rafhlaða veitir úrinu allt að 100 klukkustunda rafhlöðuendingu (48 klukkustundir með GPS). 

Þökk sé nýjum flýtihnapp getur þú tekið tímann, byrjað og endað æfingar, kveikt á vasaljósinu eða látið hann virkja næstum hvaða aðgerð sem þér sýnist. Ef þú lendir síðan í vandræðum þá er úrið með öfluga 85 dB neyðarsírenu sem heyrist í 180 metra radíus.


Hönnun og ending

Galaxy Watch Ultra er hannað fyrir erfiðar aðstæður með IPX8 og MIL-STD 810H einkunn, svo hvort sem þú ert í skógi, á fjöllum eða í sjó þarft þú ekki að hafa áhyggjur.

Títaníum umgjörð og safír gler ver úrið gegn höggum og rispum og það þolir hitastig frá -22 til +50°C án nokkurra vandamála ásamt lofthæð frá -500 til 9000 metra.


Rafhlaða sem endist

Í mikilvægari keppni er rafhlaðan ekki það sem þú vilt einbeita þér að. Galaxy Watch Ultra endist einstaklega lengi og í orkusparnaðarham endist rafhlaðan allt að 100 klukkustundir. Þegar á æfingu stendur endist það í allt að 48 klukkustundir. 


Nýr BioActiveSensor2

Hjartslátturinn þinn er mældur hárnákvæmt þökk sé nýjum BioActiveSensor2.

Snjallari æfingar með Galaxy AI

Skynjarar úrsins og Galaxy AI vinna saman til að læra á líkamann þinn þegar þú notar úrið. Hjartslátturinn þinn og meðaltal hans við hvíld er stanslaust mældur svo að þú getur fengið nákvæma greiningu á æfingunum þínum. Með GPX gögnum getur þú borið æfingar saman og fengið tillögur um sambærilega slóða sem gætu hentað þér.

Þolpróf hvenær sem er

Gerðu þolpróf hvenær sem er þökk sé Galaxy AI. Með háþróuðum skynjurum úrsins getur þú tekið þolpróf hvenær sem er með því að hlaupa eða hjóla. Það tekur aðeins tíu mínútur!

Sigraðu sjálfan þig

Þegar þú hleypur eða hjólar sömu leið og áður gerir Galaxy AI þér kleift að fylgjast með fyrri hraða í rauntíma. Nýttu einnig persónuleg púlssvæði til þess að bæta þig á þeim hraða sem þú vilt. Skynjararnir á úrinu og Galaxy AI fylgjast með hjartslættinum og öndun til þess að meta heilsuna þína á mismunandi æfingum og erfiðleikastigum.

Snjallari eftirfylgni

Galaxy AI fylgist með heilsunni og gefur þér upplýsingar um æfingar, hvíld og svefn. Galaxy AI greinir svefninn þinn og býr til sérhannaðar tillögur til að bæta svefninn, sem leiðir af sér betri æfingar. Ef að hjartslátturinn þinn er óreglulegur er þér bent á að taka ECG mælingu með úrinu til að rannsaka málið frekar.


Dual GPS fyrir nákvæmari mælingar

Galaxy Watch Ultra er með stórbættan GPS þökk sé tvöföldum GNSS (L1+L5) örgjörvum og háþróuðu algrími sem bætir staðsetningartækni í þéttbyggð. Það bætir einnig mælingu á staðsetningu þegar úrið er notað í krefjandi umhverfi eins og skógum eða fjöllum.


Örgjörvin

5 kjarna Exynos örgjörvinn knýr Galaxy AI og bætir skilvirkni um 30% miðað við fyrra Galaxy Watch og lætur úrið virka betur og endast lengur.

Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy Watch Ultra snjallúrin á elko.is.

Einnig var kynnt á sama tíma Samsung Galaxy Watch7 sem hægt er að skoða hér.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.