Fréttir Fróðleikur

Apple kynning 7. september

12.09.2022

Þann 7. september kynntu Apple væntanlegar vörur, Apple Watch, AirPods Pro og að sjálfsögðu nýja iPhone-inn. Úrin og símarnir hafa til dæmis nýjan eiginleika sem nemur bílslys og hægt er að hringja í neyðarnúmer þegar þú átt þess ekki kost.


Hin nýja kynslóð Apple Watch nemur hitastig og hægt verður að fá allar útgáfur með eSIM. Series 8 kemur í stærðum 45 og 41 mm, SE í 44 og 40 mm og nýr meðlimur bætist í hópinn, Watch Ultra í 49 mm. Apple Watch Ultra er harðgert úr sem er sérstaklega hannað fyrir útivist.

Önnur kynslóð AirPods Pro er með bættri hljóðeinangrun, betri hljóm og hleðsluhylkið er endurhannað með mörgum hentugum eiginleikum eins og hátalara og lykkju fyrir snúru.

iPhone 14 er með bættri rafhlöðuendingu, öfluga örgjörva iPhone 13 Pro og kemur nú í tveimur stærðum, iPhone 14 og iPhone 14 Plus.

iPhone 14 Pro er með bættri rafhlöðuendingu, myndavélum og skemmtilegri eyju í skjá sem stækkar og minnkar með smáforritum.


Apple Watch Ultra

Watch Ultra er nýjasti meðlimur Watch-fjölskyldunnar sem er hannað fyrir útivist. Í úrinu eru margir sérstæðir eiginleikar eins og nákvæmari GPS staðsetningartækni í þéttbýli. Allt að 36 klukkustunda rafhlöðuending, eSIM og þrjár sérhæfðar ólar fyrir alls kyns ævintýri.

Hönnun

Fáguð og harðbyggð hönnun sem þolir erfiðar aðstæður. Stóri Retina skjárinn er alltaf reiðubúinn og auðlæs á björtum sólardegi eða um miðja nótt. Á hlið hans bætist nýr stór flýtihnappur sem hægt er að stilla eftir þörfum. Rifflur á skrunhjóli eru dýpri og auðvelt er að nota úrið, jafnvel í hönskum.

  • 49 mm títaníumumgjörð
  • Vatnshelt á allt að 100 metra dýpi*
  • Stenst MIL-STD 810H
  • IP6X rykvörn

Ending

Watch Ultra þolir erfiðar aðstæður, allt frá nístingskulda í hita eyðimerkur. Sérstök skífa er á úrinu með næturham og háþróuðum áttavita ásamt sírenu sem heyrist í úr allt að 180 metra fjarlægð. Ultra er hannað til að fara hvert sem er – og aftur heim. Rafhlaðan endist í 36 klukkustundir þegar notkun er venjuleg og úrið er með sparnaðarstillingu (kemur bráðum) og endist í allt að 60 klukkustundir.

Köfun

Ultra er vatnshelt á allt að 100 metra dýpi og er vottað fyrir köfun á allt að 40 metra dýpi. Dýptarviðmótið sýnir allar helstu upplýsingar í flýti og Oceanic+ (kemur bráðum), smáforrit, sérstaklega hannað fyrir Ultra, breytir úrinu í köfunartölvu og er einstaklega auðvelt í notkun.

Heilsa og öryggi

Ultra fylgist nákvæmlega með hitastigi og getur reiknað út tíðahring og egglos. ECG smáforritið tekur EKG sem samsvarar einnar rásar hjartalínuriti og mælir súrefnismettun í blóði. Ultra nemur einnig slys eins og fall eða árekstur og hringir í neyðarnúmer ef þú bregst ekki við.

Með símann á hendinni

Apple Watch Ultra styður LTE tengingu og með áskrift hjá símfyrirtæki er hægt að hringja og senda skilaboð, heima og í útlöndum. Streymdu tónlist og hlaðvörpum, fáðu vegvísi í Maps smáforritinu eða veldu úr þúsundum smáforrita til að gera enn meira. Ultra er með aukahátalara og betri hljóðnemum en fyrri kynslóðir sem bæta símtöl enn frekar.

*Apple Watch Ultra er vatnshelt á allt að 100 metra dýpi samkvæmt ISO staðli 22810 en ætti ekki að nota á meira en 40 metra dýpi. Vatnsvörn er ekki varanleg og getur dvínað með tímanum.


Apple Watch 8

Helsta nýjungin í Watch Series 8 er ný hitastigsmæling og nemi fyrir bílslys en úrið heldur að sjálfsögðu öllum hentugum eiginleikum fyrri kynslóðar eins og EKG, stóra skjánum og vatnsvörn.

Ending

Apple Watch Series 8 er höggvarið, vatnshelt* og rykvarið. Úrið endist í allt að 18 klukkustundir með hefðbundinni notkun eða 36 klukkustundir með sparnaðarstillingu (kemur bráðum).

Heilsa og öryggi

Watch Series 8 fylgist nákvæmlega með hitastigi og getur reiknað út tíðahring og egglos. ECG smáforritið tekur EKG sem samsvarar einnar rásar hjartalínuriti og mælir súrefnismettun í blóði. Úrið nemur einnig slys eins og fall eða árekstur og hringir í neyðarnúmer ef þú bregst ekki við.

Svefn

Sleep smáforritið fylgist ekki einungis með svefntíma, heldur nemur það einnig REM, djúpan svefn og hvenær þú nærð bestum svefni og vaknar.

Race Route (Væntanlegt)

Race Route fylgist með hlaupi eða hjólreiðum sem þú stundar oft og hægt er að keppa á móti seinustu ferð eða bestu ferðinni. Úrið lætur þig einnig vita í rauntíma hvort þú sért á undan eða eftir.

Með símann á hendinni

Apple Watch Series 8 úrin eru fáanleg með LTE tengingu. LTE útgáfan styður eSIM og með áskrift hjá símfyrirtæki er hægt að hringja og senda skilaboð, heima og í útlöndum. Streymdu tónlist og hlaðvörpum, fáðu vegvísi í Maps smáforritinu eða veldu úr þúsundum smáforrita til að gera enn meira.

*Apple Watch Series 8 er vatnshelt á allt að 50 metra dýpi samkvæmt ISO staðli 22810 en ætti ekki að nota á miklu dýpi. Vatnsvörn er ekki varanleg og getur dvínað með tímanum.


Apple Watch SE 2022

Ending

Apple Watch Series SE er vatnshelt* og endist í allt að 18 klukkustundir með hefðbundinni notkun eða 36 klukkustundir með sparnaðarstillingu (kemur bráðum).

Heilsa og öryggi

Watch Series 8 fylgist nákvæmlega með hitastigi og getur reiknað út tíðahring og egglos. ECG smáforritið tekur EKG sem samsvarar einnar rásar hjartalínuriti og mælir súrefnismettun í blóði. Úrið nemur einnig slys eins og fall eða árekstur og hringir í neyðarnúmer ef þú bregst ekki við.

svefn

Sleep smáforritið fylgist ekki einungis með svefntíma, heldur nemur það einnig REM, djúpan svefn og hvenær þú nærð bestum svefni og vaknar.

Race Route (væntanlegt)

Race Route fylgist með hlaupi eða hjólreiðum sem þú stundar oft og hægt er að keppa á móti seinustu ferð eða bestu ferðinni og úrið lætur þig vita í rauntíma hvort þú sért á undan eða eftir.

*Apple Watch Series SE er vatnshelt á allt að 50 metra dýpi samkvæmt ISO staðli 22810 en ætti ekki að nota á miklu dýpi. Vatnsvörn er ekki varanleg og getur dvínað með tímanum.


Nýr AirPods Pro

Nýju AirPods Pro eru með allt að tvisvar sinnum betri hljóðeinangrun en fyrri kynslóð. Hljómurinn er betri og nýja hleðsluhylkið er uppfullt af hentugum eiginleikum.

Hljómurinn

Nýi H2 örgjörvinn er galdurinn á bak við frábæran hljóm AirPods Pro. Sérstilltur hátalari og magnari vinna með örgjörvanum til að framkalla tærari hljóm, sem skilar sér í dýpri bassa og fínni hátónum. H2 vinnur ofurhratt með flóknu reikniriti sem skilar sér í betri hljóðeinangrun, frábærum þrívíddarhljóm og betri rafhlöðuendingu.

Hljóðeinangrun

Nýju AirPods Pro eru með allt að tvisvar sinnum betri hljóðeinangrun en fyrri kynslóð. Fylgstu með umhverfinu eða einbeittu þér að tónlistinni. Með annarri kynslóð fylgir auka XS tappi svo þau henta enn fleiri notendum. Tapparnir haldast vel í eyrum og hindra utanaðkomandi hljóð enn frekar.

Með Adaptive Transparency er hægt að hleypa umhverfishljóðum í gegn en þessi stilling kemur einnig í veg fyrir óþægileg hljóð eins og sírenur eða há hljóð úr borum.

Snertistjórnun

Auðvelt er að stjórna heyrnartólunum með snertingu. Strjúktu upp eða niður til að hækka og lækka, smelltu til að spila eða gera hlé á tónlist eða til að svara símtölum og skella á. Með langri snertingu er hægt að skipta á milli ANC hljóðeinangrunar eða Adaptive Transparency.

Nýtt hleðsluhylki

Nýja MagSafe hleðsluhylkið er uppfullt af hentugum eiginleikum. Nú er hátalari á hylkinu sem lætur þig vita hvenær það er fullhlaðið eða kallar á þig með hjálp Find My ef hylkið týnist. Neðst á hylkinu er lykkja fyrir snúru svo heyrnartólin séu alltaf innan seilingar. Hægt er að hlaða hylkið með Lightning snúru, MagSafe eða Qi þráðlausu hleðslutæki.

Rafhlöðuending

Heyrnartólin endast í allt að sex klukkustundir með kveikt á ANC hljóðeinangrun eða 30 klukkustundir með aðstoð hleðsluhylkis.


iPhone 14

iPhone 14 er með betri rafhlöðuendingu en fyrri kynslóðir og kemur í tveimur stærðum, 6,1“ og 6,7“. Myndavélarnar taka allt að 2,5 sinnum betri myndir þegar birtustig er lágt og síminn er með sama öfluga örgjörva og iPhone 13 Pro.

Lágstemmd og stílhrein hönnun iPhone 14 samanstendur af gleri og áli sem veita góða endingu að framan og aftan og styður þráðlausa hleðslu. Skjárinn er harðgerður og höggþolinn með Ceramic Shield og síminn er einnig með IP68 vottun, sem þýðir að hann er vatnsþolinn og þolir allt að 30 mínútur á sex metra dýpi.

Skjárinn

Super Retina XDR Oled snertiskjárinn nær frá horni til horns og veitir enn meira pláss fyrir myndefni og auðvelt er að halda á símanum í annarri hendi. Hámarksbirtustig er 800  nit þegar notkunin er venjuleg og 1200 nit fyrir HDR myndefni, þú sérð því allt skýrt, jafnvel á björtum degi.

Örgjörvinn

A15 Bionic örgjörvinn er með sex kjarna örgjörva með tveimur háhraða örgjörvum og fjórum skilvirkum ásamt nýrri fjögurra kjarna skjástýringu fyrir kröftuga frammistöðu í leikjum og margmiðlunarefni ásamt 16 kjarna Neural Engine.

Myndavélin

iPhone 14 er með frábært tveggja myndavéla kerfi með Photonic Engine sem gerir þér kleift að taka fallegar og skarpar myndir allan sólarhringinn. 12 MP aðalmyndavélin með f/1.5 ljósopi tekur góðar myndir, jafnvel þegar birtustig er lágt. Hægt er að taka hágæðamyndir í 4K upplausn með 60 römmum á sekúndum og síminn heldur myndinni stöðugri, jafnvel þótt þú sért það ekki. Fangaðu heiminn með f/2.4 gleiðlinsunni og kannaðu margar stillingar eins og Night Mode fyrir næturmyndir eða Portrait Mode sem dregur athygli að viðfangi með því að gera bakgrunn óskýran.

TrueDepth sjálfumyndavél

Að framan er iPhone 14 með 12 MP TrueDepth myndavél sem gerir þér kleift að taka frábærar sjálfur og hópmyndir í réttum litum. Með þessari myndavél er einnig hægt að taka slofiehágæða sjálfur í hægmynd.


iPhone 14 Pro og Pro Max

Myndavélakerfi iPhone 14 Pro er magnað, hakið í skjá er farið, í stað þess er komin skemmtileg eyja efst á skjánum sem stækkar og minnkar með smáforritum.

Dynamic Island

Tónlist, íþróttir, FaceTime og margt fleira blómstrar úr Dynamic Island án þess að trufla venjulega notkun. Hægt er að stækka og minnka smáforrit í Dynamic Island og stjórna þeim.

Kraftur

A16 Bionic er sex kjarna örgjörvi með tveimur kraftmiklum kjörnum og fjórum skilvirkum, fimm kjarna skjástýringu sem er frábær í leikjum og myndvinnslu ásamt 16 kjarna Neural Engine. Þessi öflugi örgjörvi getur unnið 17 trilljón aðgerðir á sekúndu og hann er einnig skilvirkur með 5nm hönnun.

Myndavélin

iPhone 14 Pro kemur með mögnuðu myndavélakerfi, 48 MP aðalmyndavélin getur tekið myndir í ProRAW sniði. Í myndavélinni er 12 MP gleiðlinsa og 120° sjónvídd sem nær enn betri myndum við lágt birtustig. Þriðja myndavélin með 12 MP upplausn og aðdrætti getur stækkað mynd með 3x aðdrætti, jafnvel við lágt birtustig.

TrueDepth sjálfumyndavél

Að framan er iPhone 14 Pro með 12 MP TrueDepth myndavél sem gerir þér kleift að taka frábærar sjálfur og hópmyndir í réttum litum. Með þessari myndavél er einnig hægt að taka slofiehágæða sjálfur í hægmynd.

Rafhlaðan

Öfluga rafhlaðan endist í allt að 23 klukkustundir á iPhone 14 Pro eða 29 klukkustundir á Pro Max.


iPhone 14, Apple Watch 8, Apple Watch Ultra og nýjasta útgáfan af AirPods Pro eru væntanleg í sölu á næstu vikum.


Skráðu þig á póstlistann ELKO til að fá tölvupóst þegar sala hefst á elko.is.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.