ELKO kemur með aukna samkeppni inn á markað unaðstækja í nóvember. Unaðsvörur eru fyrir löngu komnar upp úr skúffum landsmanna, umræðan er opin og fagleg og vöruúrvalið orðið mun almennra en t.d. var þegar ELKO kom inn á markaðinn fyrir tæpum 25 árum. Viðskiptavinir hafa kallað eftir þessum vöruflokki í ELKO samkvæmt könnunum og var því tekin ákvörðun um að bjóða upp á vöruflokkinn í vefverslun elko.is á næstunni, ásamt því að hluti af vöruúrvalinu verður í boði í verslun ELKO í brottfararverslun á Keflavíkurflugvelli. Markmiðið er að bjóða upp á einfalt og fágað úrval af helstu vörum og vörumerkjum í flokki unaðsvara.
ELKO vonast til þess að geta komið með virka samkeppni inn á markaðinn þar sem við höldum áfram að hjálpa öllum að njóta ótrúlegrar tækni. Fylgist spennt með en hér er hægt að skrá sig á póstlista og við látum þig vita þegar vöruflokkurinn kemur inn á elko.is.