
Fallegt hár á einfaldan hátt með Mermade
17.02.2026Mermade hárvörurnar hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og eru þekktar fyrir fallega hönnun, bjarta liti og hagstætt verð. Hárvörurnar frá Mermade eru hannaðar með það í huga að vera einfaldar í notkun óháð reynslu og til að ná fallegri útkomu án mikillar fyrirhafnar. Á sama tíma er lögð áhersla á að vernda hárið með stillanlegum, lægri hita og með keramíkhúðun sem dreifir hitanum jafnt og hjálpar til við mildari mótun.
Vinsælar vörur frá Mermade
Krulluburstar
Mermade Infrared Thermal hitaburstinn er upphitaður hringbursti sem gefur fallega lyftingu, gljáa í hárið ásamt því að móta það. Með innrauðri ljósatækni og keramíksívaling dregur burstinn úr úfningi, eykur gljáa og heldur raka inni í hárinu á meðan þú mótar það.

Mermade The Interchangeable hitaburstinn er fjölnota hitabursti sem kemur með þremur mismunandi hausum sem þurrka, slétta og móta hárið. Burstinn er stílhreinn og einfaldur í notkun. Hann skilar vel mótuðu hári með fallegri áferð, hvort sem markmiðið er að slétta eða móta það. Interchangeable burstinn hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja ná góðum árangri í hárstílingu á skömmum tíma.

Bylgjujárn
Inn á elko.is má finna nokkrar mismunandi gerðir af bylgjujárnum frá Mermade, en þau bjóða upp á ólíka útkomu eftir stærð og lögun bylgjuhausanna. Það sem allar þessar vörur eiga þó sameiginlegt er að þær eru hannaðar til að gera hármótun einfalda og fljótlega. Bylgjujárnin eru keramíkhúðuð og nýta jóníska hitatækni þannig það dreifir hitanum jafnt, dregur úr úfningi og verndar hárið gegn óþarfa hitaskemmdum.
Mermade Pro bylgjujárnið er með 32 mm bylgjuhaus sem skilar stórum bylgjum á nokkrum sekúndum. Þú getur valið á milli beachy, boho eða glamorous bylgjum óháð sídd og áferð.

Mermade Mini bylgjujárnið er með 25 mm bylgjuhaus og býr til þéttar bylgjur. Það er létt og meðfærilegt og hentar vel fyrir allar hártýpur.

Mermade Style Wand bylgjujárnið er fjölnota bylgjujárn með þremur skiptanlegum hausum. Með því fylgja 25 mm og 32 mm krullujárn ásamt 28 mm bylgjuhaus, sem gerir það auðvelt að breyta um stíl. Allir hausarnir eru keramíkhúðaðir og nýta jóníska tækni sem hjálpar til við að draga úr hitaskemmdum og halda hárinu glansandi.

Mermade Cutie Waver er með 22 mm bylgjuhausa sem skapa þéttar og jafnar bylgjur með náttúrulegu strandarútliti. Járnið mótar hárið mjúklega án þess að skilja eftir sig skarpar línur og hentar vel fyrir þá sem vilja meiri áferð og fyllingu með ferskum, afslöppuðum blæ.

Mermade Double Waver bylgjujárnið er með tveimur 25 mm keramíkplötum og snjallri hitatækni sem gerir þér kleift að skapa mjúkar og náttúrulegar bylgjur á fljótlegan og einfaldan hátt.

Skoðaðu úrvalið hér á elko.is