
Hvernig á að aftengja „Find My“?
19.06.2025Leiðbeiningar um aftengingu „Find My“ öryggiskerfis
FMD öryggiskerfi aftengt í tæki
Hægt er að aftengja FMD (Find My Device) í gegnum stillingar á tækinu sjálfu. Þetta er einfaldasta leiðin.
1. Aflæsið símanum og opnið Settings.
2. Veljið nafn notandans (sjá mynd).

3. Veljið iCloud.
4. Veldu Find My undir Apps Using iCloud.
5. Slökktu á Find My.
1. Byrjaðu á því að slökkva á tækinu.
2. Farðu inn á www.icloud.com og skráðu þig þar inn með Apple ID og lykilorði


5. Að lokum þarf að velja „Remove from account“
Alls ekki velja „Erase iPhone“
FMD öryggiskerfi aftengt án tækis og apple id aðgangs
Eins og skilmálar Apple segja til um, þá er FMD samningurinn, sem er hluti af iCloud þjónustunni, samningur sem viðskiptavinur stofnar sjálfur við Apple.

Til að fjarlægja FMD öryggislæsinguna og opna fyrir aðgang að tækinu þarf nú að fara í gegnum AppleCare Support hjá Apple: www.iforgot.apple.com
Við mælum með þjónustunni hjá:
Apple í Danmörku: 0045 802 49625
Apple í Bretlandi: 0044 800 107 6285 / 0044 0800 048 0754
Til að taka af allan vafa þá hafa þjónustuaðilar Apple (AASP) ekki lengur heimild frá Apple um milligöngu við aftengingu FMI öryggiskerfisins.
Breytingar á Find my í iOS 17.3 uppfærslu
Í iOS 17.3 uppfærslunni er ákveðin breyting á FMI sem gerir það að verkum að tíminn sem það tekur að afvirkja það eru 60 mínútur. Það er semsagt 60 mínútna delay á aflæsingunni.
Ef þú ert að koma með símann í viðgerð eða ert að selja t.d. ELKO símann í gegnum ‘Eitthvað fyrir ekkert’ er mikilvægt að vera búin að aftengja ‘Find my’ áður en þú mætir með símann.
Uppfært í júní 2025.