Fréttir Fróðleikur

Galaxy Z Fold6 – snjallari með Galaxy AI

11.07.2024

Galaxy Z Fold6 er snjallsími fyrir þá sem vilja skjá í spjaldtölvustærð (7,6“) sem hægt er að brjóta saman í handhægan síma. Ytri 6,3″ skjárinn er stærri en á Galaxy S24 sem þýðir að þú getur auðveldlega gert allt sem þú þarft, jafnvel með símann lokaðan. Síminn er útbúinn fullt af nýjum eiginleikum þökk sé Galaxy AI.

Galaxy Unpacked kynning fór fram miðvikudaginn 10. júlí og var á þeirri kynningu kynnt Galaxy Z Fold6, Flip6, Watch7, Watch Ultra, Galaxy Ring og nýju Buds heyrnartólin; Buds3 og Buds3 Pro. Hér ætlum við að fjalla nánar um Galaxy Z Fold6.


Gerðu lífið auðveldara með því að nýta gervigreindina í þínu daglega lífi með Fold6. Síminn er með heilan helling af nýjum eiginleikum þökk sé mátt gervigreindarinnar. Dæmi um þá eiginleika sem gervigreindin býður upp á eru:

Tungumálaþýðing í beinni. Auðveldasta leiðin til að hafa samskipti

Fáðu beina tungumálaþýðingu í næsta símtali þínu.  Galaxy AI hjálpar þér að eiga samskipti  í síma á öðrum tungumálum. Bein þýðing virkar einnig í skilaboðum.

*Þýðing í beinni (e. Live Translate) krefst nettengingar og Samsung reikningsinnskráningar. Þýðing í beinni er aðeins fáanlegt í foruppsettu Samsung símaforritinu. Ákveðin tungumál gætu krafist tungumálapakka til að sækja. Íslenska er ekki í boði í beinni þýðingu en þú getur t.d. látið þýða spænsku yfir í ensku.

Dragðu hring um það, finndu það, einfalt og fljótlegt

Leitaðu á nýjan máta með ‚Circle to Search með Google‘. Taktu mynd, settu hring utan um viðfangsefnið og leitaðu á Google. Þetta er ný sjónræn leið til að finna það sem þú ert að leita að.

Þinn eigin persónulegi aðstoðarmaður

Taktu upp hljóð og Galaxy Al mun skrifa það niður,  umbreyta því í texta, og búa til útdrátt. Gervigreindin getur meira að segja séð um að þýða tungumál.

  • Edit Suggestions hjálpa þér við að hreinsa upp mynd, til dæmis með því að eyða óæskilegum hlutum í bakgrunninum.
  • Writing Style aðstoðar þig við hvernig tón og áherslur þig langar að hafa í skrifuðu máli.
  • Summarize styttir langan texta í þægilegan og einfaldan lista. Virkar bæði fyrir efni á símanum en einnig fyrir greinar og vefsíður.

AI myndvinnsla Breyttu stærðum, lagfærðu eða eyddu út viðfangsefnum með AI

Nýtt þér töfra AI myndvinnslu. Nú getur þú fullkomnað myndirnar þínar áreynslulaust og tryggt að hver ljósmynd fær að skína skært. En það er ekki allt, þú getur líka breytt bakgrunni og látið óæskilega hluti hverfa.

FlexZoom getur sjálfkrafa skilið efnið sem verið er að mynda og aðlagað aðdráttinn til að taka sem bestu mynd.

Generative Edit veitir þér möguleikann á að breyta myndum nákvæmlega eins og þú vilt hafa þær. Þú getur gert hluti óskýra, fært þá, og jafnvel stækkað eða breytt bakgrunninum

  • .


120Hz skjár

Skjárinn býður upp á háa upplausn, mikla birtu og er viðbragðsfljótur – hvort sem þú ert að nota ytri eða innri skjáinn færð þú hraða 120 Hz endurnýjunartíðni.

Skjárinn þegar síminn er opin er 7,6“ og þegar hann er lokaður er skjárinn að framan 6,3“

Fjölverkavinnsla

Galaxy Z Fold6 er með stóran skjá sem hýsir allt að þrjá opna glugga og gerir þér kleift að vinna í mörgum verkefnum á sama tíma. Búðu til fyrirlestur, finndu réttar myndir og fylgstu með tölvupóstinum – allt á sama tíma.

Aukin skilvirkni með S pennanum (seldur sér)

Með þynnsta S Pen til þessa getur þú tekið glósur á botn skjásins á meðan þú notar símann. Fyrir utan að taka glósur getur þú breytt myndum og myndböndum, skissað hugmyndir og stýrt kynningum með handhreyfingum. S Pen virkar líka sem þægileg fjarstýring.


Betri hönnun = upplifun

Með nýju lamatækninni er Galaxy Z Fold6 þynnri en forveri sinn og heilum 14 grömmum léttari.

Myndavélin

Galaxy Z Fold6 er afbragðs kostur fyrir ljósmyndaáhugafólk. Með 50 MP aðalmyndavélinni getur þú tekið skarpar, nákvæmar myndir með góðum litum, hvar og hvenær sem er. Þökk sé Nightography tækninnar verða myndir og kvikmyndir betri, jafnvel í dimmu umhverfi.

Ef þú vilt komast nær viðfanginu hefur þú bæði 3x aðdrátt og 30x Space Zoom þér við hönd. Galaxy Z Fold6 er líka með 12 MP 123° gleiðlinsu og 10 MP linsu. Myndavél er staðsett bæði á ytri og innri skjá svo það er auðvelt er að taka myndsímtöl og myndir, hvort sem að síminn er opinn eða lokaður.

Kraftur

Öflugi Snapdragon 8 Gen 3 örgjörvinn gerir þér kleift að spila leiki og streyma efni án nokkurra hika. Með 4400 mAh rafhlöðunni getur þú gert allt sem þú vilt í langan tíma.

Leikir og skemmtun

Misstu ekki af leiknum. Galaxy Z Fold6 hjálpar þér að fylgjast með spennandi þáttum, íþróttaviðburðum og leikjum. Stóri og bjarti skjárinn er fullkominn fyrir bæði leiki og skemmtun, hvar sem þú ert. Hann aðlagast að umhverfisljósi svo þú færð litríkar myndir, jafnvel á björtum degi.


Hraði

Mörg vinsæl smáforrit eru hámörkuð til að nýta stóran skjá Galaxy Z Fold6. Snjallt viðmót og hentugir eiginleikar gera upplifunina enn betri. Mörg algeng vinnuforrit eru líka tilbúin fyrir stóra innri skjáinn.

Rafhlaðan

Samsung Galaxy Z Fold6 síminn er með 4,400 mAh rafhlöðu sem gefur allt að 23 klst af myndbandaspilun og 77 klst ef hann er bara notaður til að hlusta á hljóð/tónlist.


Birtu efni á báðum skjám

Nú getur þú og viðfang myndatöku séð niðurstöðurnar á sama tíma. Þegar síminn er opinn og myndataka eða upptaka í gangi birta bæði innri og ytri skjár viðfangið. Að sjálfsögðu nýtist þessi eiginleiki líka í sjálfumyndum.


Hugarró með Samsung Knox

Samsung Knox er á Galaxy Z Fold6, tilbúinn að verja þínar dýrmætu minningar, myndbönd, myndir, möppur og gögn. Öryggi er samtvinnað á milli hugbúnað og vélbúnað svo að enginn nema þú getur fengið aðgang að þínum gögnum.


Galaxy Z Fold6 unboxing

Myndband frá Samsung:


Samanburður

Samanburður á Galaxy Z Fold6, Fold5 og Fold4

Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy Z Fold6 á elko.is.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.