Fróðleikur

HUAWEI WATCH GT Runner 2

10.04.2026

Ofur afköst

HUAWEI WATCH GT RUNNER 2

Huawei Watch GT Runner 2 er snjallúr hannað sérstaklega fyrir hlaupara sem vilja taka næsta skref í þjálfuninni. Með ofurnákvæmri staðsetningu og snjöllum hlaupaeiginleikum fylgir það þér í hverju skrefi.

Byggt til að endast

GT Runner 2 er hannað með endingu í huga, með léttu og sterku títanhúsi sem sameinar þægindi og slitstyrk í daglegri notkun. Úrið er þægilegt og nett á úlnliðnum og býður upp á allt að 32 klukkustunda rafhlöðuendingu og nákvæmar mælingar á vegalengd, hraða og leið.

Úrið fylgir hverju skrefi af mikilli nákvæmni og gefur þér skýra yfirsýn yfir æfingarnar. Þú sérð vegalengd, hraða og leið í rauntíma, sem hjálpar þér að halda takti og bæta árangurinn með hverju hlaupi. Með snjöllum hlaupaeiginleikum verður auðveldara að setja sér markmið og fylgjast með framförum.


Nú er komið að þér.
Finndu kraftinn í hverju skrefi.
Ýttu þér áfram. Farðu lengra.
Ert þú tilbúin/n?

Huawei Watch GT Runner 2 er þróað í samstarfi við Eliud Kipchoge, einum fremsta maraþon hlaupara heims, þar sem reynsla hans hefur haft bein áhrif á hönnun úrsins. Með reynslu hans að baki er úrið hannað til að styðja þig í hverju hlaupi og hjálpa þér að ná lengra.

Ráðleggingar mínar byggja á reynslu sem ég hef safnað í gegnum árin í daglegri þjálfun og keppni,“ segir Kipchoge. Hann leggur sérstaklega áherslu á mikilvægi hraða og nákvæmra mælinga í hlaupum, sem endurspeglast í því hvernig úrið sýnir lykilupplýsingar skýrt og aðgengilega á meðan á hlaupi stendur.

Að hans sögn skipta nákvæm gögn eftir æfingu einnig miklu máli, þar sem þau hjálpa hlaupurum og þjálfurum að greina árangur og bæta sig markvisst. Til að tryggja slíka nákvæmni er úrið búið þróuðu GPS-kerfi og 3D loftneti sem fylgir vegalengd, hraða og leið með mikilli nákvæmni. Með snjöllum eiginleikum eins og maraþonstillingu er úrið þannig hannað til að styðja við markvissa þjálfun og stöðugar framfarir.

Kallaðu fram
hlauparann í þér

Hönnunin er útfærð með áherslu á hlaupahreyfingar, þar sem hvert smáatriði styður við náttúrulegt flæði í handleggjum á meðan þú hleypur. Létt uppbygging og efnisval draga úr óþarfa álagi, sérstaklega í lengri æfingum þar sem stöðugleiki og jafnvægi skipta máli. Þetta gerir þér kleift að einbeita þér að takti og frammistöðu án truflana.

  • Aðeins 34,5 g að þyngd
  • 10.7 mm á þykkt
  • 9 g HUAWEI AirDry ofið armband

Titanium Alloy

  • Þunn hönnun úr títanblöndu
  • Létt uppbygging fyrir meiri þægindi
  • Sterkt efni sem eykur endingu
  • Einföld og fáguð málmáferð

.

Kunlun Glass

  • 2. kynslóðar Kunlun gler sem sameinar styrk og léttleika
  • Sterkt og endingargott gler þrátt fyrir þunna hönnun
  • Mjög bjartur skjár með allt að 3000 nita birtu fyrir notkun utandyra

Andaðu léttar, hlauptu hraðar

Ólin á Huawei Watch GT Runner 2 er hönnuð með þægindi og notkun í hlaupum í huga. HUAWEI AirDry™ ofna ólin er létt og andar vel, sem hjálpar til við að halda úlnliðnum þurrum á krefjandi æfingum. HUAWEI AirDry ólin er með sérstöku mynstri sem eykur loftflæði og dregur úr raka, sem gerir hana sérstaklega hentuga fyrir lengri hlaup.

Úrið kemur einnig með fluoroelastomer ól sem er endingargóð og þægileg í daglegri notkun. Báðar ólar eru hannaðar með mismunandi notkun í huga, þannig að þú getur valið það sem hentar hverju sinni, hvort sem það er fyrir æfingu eða daglegt líf. Ólarnar á Huawei Watch GT Runner 2 koma í líflegum litum sem gefa úrinu ferskt og sportlegt útlit. Þær gera þér kleift að setja þinn eigin stíl á hlaupin.

Kraftur í hverju skrefi

Úrið fylgir hverju skrefi með aukinni nákvæmni og skilar allt að 20% betri staðsetningarmælingum, jafnvel í krefjandi aðstæðum eins og í borgarumhverfi eða göngum. Með 3D loftneti og snjöllum staðsetningarreikniritum færðu áreiðanleg gögn um leið, hraða og vegalengd í hverju hlaupi.

Auk þess nýtir úrið uppfærðan örgjörva og snjalla útreikninga til að fylgjast með lykilmælingum eins og hjartalínuriti (ECG) og hjartsláttartíðnibreytileika (HRV), sem gefa þér betri innsýn í endurheimt líkamans og hjálpa þér að stilla æfingaálag.

Intelligent Marathon Mode

Hlauptu til að ná árangri

Intelligent Marathon Mode er eiginleika í úrinu sem hjálpar þér að æfa markvisst fyrir maraþon með leiðbeiningum sem byggja á þínum eigin gögnum. Ólarnar á Huawei Watch GT Runner 2 koma í líflegum litum sem gefa úrinu ferskt og sportlegt útlit. Þær gera þér kleift að setja þinn eigin stíl á hlaupin, hvort sem þú vilt halda því einföldu eða bæta smá lit í æfingarnar.

Með skýrum hraðamælingum færðu betri yfirsýn yfir hlaupið á meðan á því stendur og áminningar um næringu og vökvun hjálpa þér að halda orkunni uppi í lengri æfingum. Þetta gerir þér kleift að halda jafnvægi í álagi og bæta árangurinn með skipulagðri þjálfun.

Huawei Watch GT Runner 2 styður þig í gegnum allt hlaupið, frá undirbúningi til endurheimtar. Fyrir hlaup geturðu valið æfingar og hitað upp með leiðsögn sem undirbýr líkamann fyrir álagið.

Á meðan á hlaupinu stendur fylgist úrið með lykilmælingum eins og hraða og hjartslætti og lætur þig vita ef þú ferð út fyrir þitt marksvæði. Þú færð einnig skýra yfirsýn yfir leiðina og einfaldar stjórnanir sem halda fókusnum á hlaupinu sjálfu.

Eftir hlaup tekur greining við, þar sem þú færð yfirlit yfir frammistöðu og ráðleggingar fyrir næstu æfingu, ásamt teygjuæfingum sem styðja við endurheimt.

Heilsan í forgangi

GT Runner 2 er ekki bara hlaupa úr, heldur fylgir það þér í daglegu lífi líka. Úrið fylgist með svefni, súrefnismettun í blóði (SpO₂), fylgist með hvernig líkaminn aðlagast hæð og veitir innsýn í andlegt ástand með greiningu á streitu og líðan og öðrum lykilmælingum sem hjálpa þér að skilja hvernig líkaminn bregst við álagi og æfingum.

súrefnismettun í blóði (SpO₂), fylgist með hvernig líkaminn aðlagast hæð og veitir innsýn í andlegt ástand með greiningu á streitu og líðan

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.