
Huawei X3 Pro WiFi Mesh kerfið
17.03.2026Ef WiFi sambandið heima hjá þér nær ekki til allra króka og kima eða hraðinn dettur niður þegar margir eru tengdir á sama tíma, þá getur Huawei X3 Pro WiFi Mesh verið lausnin. Þetta er öflugt mesh kerfi sem tryggir stöðugt, hraðvirkt og víðtækt þráðlaust net á heimilinu.
Fullkomið WiFi um allt heimilið
Mesh tæknin virkar þannig að nokkrir sendar vinna saman sem eitt net. Í stað þess að vera með einn router sem á erfitt með að ná til allra rýma, dreifir Huawei X3 Pro netinu jafnt um heimilið. Þetta þýðir:
- Betra samband í öllum herbergjum
- Minni truflanir og stöðugra net
- Sjálfvirk tenging við sterkasta punktinn.
Þú getur því gengið um heimilið án þess að WiFi-ið detti út eða hægi á sér.
______
Hraði, eins og þú vilt á nútíma, íslensku heimili
Huawei X3 Pro er hannaður til að takast á við mikla netnotkun. Hvort sem þú ert að streyma í 4K, spila tölvuleiki í gegnum netið, vinna heima eða tengja saman snjalltæki, heldur kerfið tengingunni stöðugri.
3.6 Gbps Dual-Band WiFI 7
Knúið áfram af öflugum Chipset með Quad-magnara, skilar stöðugri tengingu sem nær í gegnum veggi.

X3 Pro Mesh kerfið styður hraða sem hentar vel fyrir:
- Streymi á kvikmyndum og þáttum
- Að fjölmörg tæki séu tengd samtímis
- Snjallheimili með mörgum IoT tækjum
- X3 Pro er einnig með sér stuðning fyrir leikjaspilun, Game Turbo
- Þekkir leikina og minnkar Lag og eykur stöðuleika i leiknum.
- Game Turbo styður 90+ leiki
- 37% minna um seinkunn (e. Latency) í leiknum.

Stílhrein hönnun
Huawei X3 Pro er hannaður til að falla vel inn í nútíma heimili. Minimalísk og falleg hönnun gerir það að verkum að tækin líta vel út hvort sem þau eru í stofunni, skrifstofunni eða ganginum.
Þú getur stillt hversu bjarta þú vilt hafa lýsinguna á router og framlengingu.

Frábær lausn fyrir stærri heimili
Ef þú býrð í stærra húsi eða íbúð þar sem WiFi-ið nær ekki alls staðar, þá er mesh-kerfi eins og Huawei X3 Pro Golden Mountain sérstaklega góð lausn. Með fleiri einingum geturðu auðveldlega stækkað netið og tryggt góða tengingu á öllum svæðum heimilisins.

____
Huawei X3 Pro Golden Mountain WiFi Mesh er því öflug og einföld leið til að bæta þráðlaust net heima hjá þér, með meiri hraða, betri dreifingu og stöðugri tengingu.

Eldheit tenging, kæling sem virkar
Þú færð hámarksafköst á heimilisnetið með tvöföldu kælikerfi og aðra kynslóð af ‘Shark-fin’ kæliviftum.
Einföld uppsetning og stjórnun
Routerinn er með 2x LAN tengi og tengi fyrir rafmagnssnúruna. Uppsetningin er einföld og tekur aðeins nokkrar mínútur með Huawei AI Life smáforritinu. Þar getur þú:
- Sett upp netið skref fyrir skref
- Fylgst með tengdum tækjum
- Stjórnað foreldrastillingum
- Fínstillt netið ef þörf er á

Viltu stjórna skjátímanum á heimilinu?
Í Huawei AI Life smáforritinu er foreldra-stjórnun, þar sem þú getur stjórnað og séð skjánotkun, stillt inn bannaðar síður og fleira.

Hvað er í kassanum?

Þú getur sótt PDF eintak af Quick Start leiðbeiningum með því að smella hér.
Smelltu hér til að skoða vöruna á elko.is. (vara væntanleg, uppfært þegar komið)



______________
Hvernig setur þú upp X3 Pro WiFi Mesh kerfi. part 1
Part 2