
Hvernig vel ég réttu Dyson ryksuguna?
9.01.2026Dyson skaftryksugurnar hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum, sérstaklega hjá þeim sem vilja öflugar og þægilegar ryksugur sem gera þrifin heima við örlítið skemmtilegri. Þessar ryksugur eru þekktar fyrir notendavæna hönnun og fjölhæfa notkun. Valið getur þó reynst flóknara en margir gera ráð fyrir, þar sem Dyson býður upp á mismunandi gerðir ryksuga sem henta ólíkum heimilum og aðstæðum.
Það sem hentar vel í lítilli íbúð er ekki endilega besti kosturinn fyrir stærra heimili, fjölskyldu með gæludýr eða heimili þar sem þörf er á tíðum og markvissum þrifum. Því er mikilvægt að velta fyrir sér eigin þörfum áður en endanlegt val er tekið.
Hvernig heimili ert þú með?
Þegar fjárfest er í nýrri ryksugu er gott að hafa í huga hvernig heimilið þitt er uppbyggt og hvernig ryksugan yrði notuð í daglegu lífi.
Í minni íbúðum eða heimilum þar sem þrif eru snögg og markviss, getur létt og meðfærileg skaftryksuga verið hentug. Slíka ryksugu er auðvelt að grípa í og ganga frá, sem hentar vel þegar ryksugað er oftar og í styttri lotum.
Á stærri heimilum eða húsum með meira gólfpláss getur hins vegar verið mikilvægt að huga að rafhlöðuendingu og burðargetu ryksugunnar. Þar skiptir máli að geta ryksugað lengur í einu án þess að þurfa að hlaða tækið á milli og að ryksugan ráði við fjölbreytt yfirborð.
Ef heimilið er á fleiri en einni hæð eða með tröppum verður meðfærileiki einnig lykilatriði. Létt skaftryksuga sem auðvelt er að bera á milli hæða einfaldar þrifin verulega og gerir þau þægilegri í framkvæmd.
Hvað greinir ryksugurnar að?
Hjá ELKO er að finna gott úrval af skaftryksugum frá Dyson, en ryksugurnar eru hannaðar með ólíkar þarfir heimila í huga.
Dyson V8 og V8 Absolute eru léttar og meðfærilegar skaftryksugur sem henta vel fyrir dagleg þrif. Absolute-útgáfan kemur með fleiri aukahlutum sem gera ryksuguna sveigjanlegri í notkun. Báðar hafa allt að 40 mínútna rafhlöðuendingu og tvær kraftstillingar.
Þessar ryksugur henta sérstaklega vel fyrir minni til meðalstór heimili, íbúðir eða heimili þar sem léttleiki og meðfærileiki skipta mestu máli.

Dyson V11 Extra er öflug með 60 mínútna rafhlöðuendingu og einangrað síukerfi sem grípur allt að 99.9% ryks og ofnæmisvalda. Hún býður upp á þrjár kraftstillingar; auto, eco og boost mode og kemur með fjölbreyttum aukahlutum fyrir mismunandi yfirborð.
Ryksugan hentar vel fyrir millistór heimili, heimili með mismunandi gólfefni og þá sem ryksuga reglulega. Hún er einnig góður kostur fyrir heimili með gæludýr.

Dyson V12 Detect Slim Absolute er öflug ryksuga með sterkan sogkraft. Hún er með ljós og skynjara í ryksuguhausnum sem gerir ryk og óhreinindi sýnilegra. Ryksugan stillir einnig sogkraft sjálfkrafa eftir þörfum. Með henni fylgja fjölbreyttir aukahlutir til að einfalda þrif á heimilum og hefur allt að 60 mínútna rafhlöðuendingu.
Ryksugan hentar vel fyrir íbúðir og meðalstór heimili, þar á meðal heimili með tröppum. Hún er einnig góður kostur fyrir heimili með gæludýr og blönduð gólfefni.

Dyson V15 Detect Absolute og V15 Detect Submarine eru kraftmiklar skaftryksugur sem byggja á sömu V15-tækninni frá Dyson. V15 eru með 60 mínútna rafhlöðuendingu og þrjár kraftstillingar. Þær eruð með sterkt sog, snjalla rykgreiningu og ljós í ryksuguhausnum sem gerir ryk og óhreinindi sýnilegra. Báðar ryksugur koma með fjölbreyttum aukahlutum og stilla sogkraft sjálfkrafa eftir þörfum, sem tryggir skilvirkari þrif og betri nýtingu rafhlöðunnar. Þær henta vel fyrir heimili með mismunandi gólfefni og gæludýr.
Munurinn á þessum tveimur gerðum liggur fyrst og fremst í notkunarmöguleikum þeirra. Dyson V15 Detect Absolute er hefðbundin, en mjög háþróuð ryksuga sem hentar vel fyrir þá sem vilja öfluga og ítarlega ryksugun á öllum flötum heimilisins. Dyson V15 Detect Submarine bætir hins vegar við möguleikanum á blautþrifum, þar sem hún kemur með moppuhaus sem gerir kleift að þrífa hörð gólf með vatni. Submarine-útgáfan hentar því sérstaklega vel fyrir heimili þar sem einnig er þörf á reglulegum gólfþrifum, og fyrir þá sem vilja sameina ryksugun og moppun í einu og sama tækinu.

Dyson V16 Piston Animal og V16 Piston Animal Submarine eru öflugar skaftryksugur byggðar á nýjustu V16-tækni frá Dyson. Þær eru knúnar af 900 W Hyperdymium-mótor, bjóða upp á sterkt sog og allt að 70 mínútna rafhlöðuendingu. Ryksugurnar eru með skilvirka síun, flækjuvarnarhönnun sem dregur úr því að hár vefjist í burstana og stilla sogkraft sjálfkrafa eftir þörfum. Með fjölbreyttum aukahlutum henta þær vel fyrir dagleg þrif á bæði hörðum gólfum og teppum, sérstaklega á heimilum með gæludýr.
Munurinn á þessum tveimur gerðum liggur einnig í notkunarmöguleikum þeirra. Dyson V16 Piston Animal er hefðbundin, en öflug ryksuga sem hentar vel fyrir heimili þar sem lögð er áhersla á kröftuga og ítarlega ryksugun, sérstaklega þar sem gæludýrahár eru algeng. Dyson V16 Piston Animal Submarine bætir hins vegar við möguleikanum á blautþrifum, þar sem hún kemur með sérstökum moppuhaus.

Dyson Gen5 Detect Absolute er ein öflugasta skaftryksuga Dyson og er búin Gen5 mótor, HEPA síu, Piezo skynjara og Cyclonic tækni, ásamt allt að 70 mínútna rafhlöðuendingu. Hún hefur mjög sterkt sog, snjalla rykgreiningu og ljós í ryksuguhausnum sem gerir smá ryk og óhreinindi sýnilegri á hörðum gólfum. Ryksugan hentar vel fyrir heimili með gæludýr, mismunandi gólfefni og þar sem lögð er áhersla á ítarlega og skilvirka hreinsun.

Dyson ryksugurnar eru ólíkar að uppbyggingu, en eiga það sameiginlegt að vera hannaðar með þægindi og skilvirkni í daglegum þrifum í huga. Með því að velja gerð sem passar notkuninni frekar en að horfa eingöngu á afl eða nýjustu tækni, verður ryksugan raunveruleg hjálp í heimilishaldinu.
Smelltu hér til að skoða allar Dyson ryksugur á elko.is.