
Samsung Galaxy Z Flip4
24.08.2022Flippaður sími er betri en flatur, eða hvað finnst þér?
Við höfum tekið saman nokkur atrið um Samsung Galaxy Z Flip4 snjallsímann sem gefur þér vonandi ástæðu til að íhuga að kaupa þér samanbrjótanlegan síma frá Samsung. Það er erfitt að útskýra, en það er einhver tilfinning sem maður finnur; Hvernig síminn opnast og lokast, hvernig hann liggur í hendi og hljóðið sem þú heyrir þegar þú brýtur hann saman.

Uppgötvaðu einstaka möguleika Galaxy Z Flip4
Samanbrjótanlegur skjár gefur þér það besta úr báðum heimum. Þegar hann er brotinn saman passar Galaxy Z Flip4 vel í vasa, þegar þú opnar hann tekur á móti þér 120Hz 6,7‘‘ skjár, snjallsími í fullri stærð. Það sem meira er, litli skjárinn að framan sýnir nauðsynleg atriði, svo þú getur auðveldlega skoðað tilkynningar, svarað skilaboðum og forskoðað myndir; jafnvel í lokuðum ham.

Þegar að síminn er lokaður er auðvelt að fylgjast með á 1,9“ skjánum. Á honum getur þú svarað símtölum, lesið skilaboð og stjórnað mögulegum aðgerðum. Forskoðaðu myndirnar þínar og myndbönd á meðan að myndavélin er í gangi.
Svo lítill, svo æðislegur
Rétt eins of forverar hans, þá hefur Galaxy Z Flip4 einstaka hönnun sem notendur um allan heim elska, og það er auðvelt að sjá hvers vegna. Þegar hann er opin hefur þú snjallsímaskjá í fullri stærð, 120Hz 6,7‘‘, með nóg pláss fyrir allt sem þú vilt skjá og gera. En þegar hann er brotin saman er helmingi minni en venjulegur snjallsími, passar vel í vasa. Með öðrum orðum; Þú færð það besta af báðum heimum. 1,9‘‘ framskjár leyfir þér einnig að fylgjast með mikilvægustu hlutunum. Hið einstaka hálfopna Flex Mode sem býður upp á fullt af nýjum og snjöllum notendamöguleikum eins og FlexCam fyrir handfjálsar sjálfur og þægilega kvikmyndaupptöku. Z Flip4 hefur einnig breiðari, bjartari myndavélarlinsu og endurbættan hugbúnað, með eiginleikum sem verulega bæta myndir og myndbönd sem eru tekin upp við léleg birtuskilyrði.

Samsung hefur líka bætt rafhlöðuna; hún endist nú í allt að þrjá klukkustundir lengur en Flip3, svo þú getur haldið áfram að gera það sem þú vilt gera. Snjallari og jafnvel flottari.
Flex Mode
Haltu Galaxy Z Flip4 opnum, lokuðum eða hálfopnum. Í samanbrotnum ham er auðvelt að finna rétt sjónarhorn á milli 70° og 110° og koma svo símanum fyrir hvar sem þú villt. Síminn skiptir sjálfkrafa í Flex Mode sem veitir þægilega upplifun með sérhönnuðu viðmóti fyrir Galaxy Z Flip4.
Hönnun
Galaxy Z Flip4 er sterkbyggður að innan sem og utan. Innri skjárinn er allt að 10% endingarbetri en fyrri kynslóð, á meðan að Gorilla Glass Victus+ og Armor Aluminium hafa bætt ytri hlið símans um 12%. Síminn er einnig IPX8 vatnsvarinn.

Myndavélar
Nýjasta kynslóð Z Flip hjálpar þér að tjá þig á þinn hátt með endurbættu myndavélakerfi. Tvær myndavélar eru á ytri hlið símans sem geta tekið bæði víðar og ofur víðar myndir. Víðlinsan grípur 65% meira ljós en fyrri kynslóð og gervigreind veitir þér enn skarpari og nákvæmari myndir, hvort sem það sé dagur eða nótt.
Fangaðu hvert sjónarhorn
Z Flip 4 gerir þér kleift að taka myndir og myndbönd sem aldrei fyrr. Þökk sé FlexCam getur þú auðveldlega fundið hið fullkomna sjónvarhorn á milli 70 og 110°.

Ljósmyndir
Nú þarftu ekki að fara í gegnum allar síurnar, Galaxy Z Flip4 tekur myndir sem eru tilbúnar til deilingar strax. Háþróuð gervigreind þýðir stúdíó gæði fyrir myndirnar þínar. Myndavélin skynjar umhverfið sem þú ert í og setur þig í fókus, með því að nota réttu lýsinguna og náttúruleg Bokeh áhrif.
Fangaðu nóttina
Þú getur nú tekið betri mydnir og myndbönd allan sólahringin með Nightography. Þökk sé bjartari myndavélarlinsu og uppfærðum hugbúnaði verða myndir þínar í betri gæðum, jafnvel í myrkri.

Handfrjálsar sjálfumyndir
Með Galaxy Z Flip4 getur þú sagt bless við þrífætur. Þökk sé Flex Mode getur þú sett símann niður hvar sem er og fundið besta sjónarhornið og tekið svo ljósmynd handfrjálst. Þú ræður hvort þú notar sjálfumyndavélarnar eða bakmyndavélarnar. Ef þú velur að nota aðalmyndavélin getur þú séð þig í skjánum og auðveldlega stillt þér upp.
Snúðu myndavélini við
Nú getur þú skotið myndir í fleiri sjónarhornum á þægilegan máta, með stöðugleika. Z Flip4 í Flex Mode passar fullkomnlega í lófan þinn. Gripið sjálft er eðilegra en á venjulegum snjallsíma, næstum eins og að halda á klassískri kvikmyndaupptökuvél.
Fyrir afslappaðri samtöl
Nú eru myndsímtöl þægilegra en nokkru sinni fyrr, þar sem Z Flip4 gefur þér handfrjálst samtal. Snúðu símanum þínum í hálfopna stillingu og haltu áfram með símtalið.

Settu upp spjall á Google Meet. Bjóddu í kvikmyndakvöld í símanum þínum og horfðu á hágæða myndskeið með vinum þínum með því að deila í beinni.
Glugginn að heiminum þínum
Sérstilltu gluggaskjáin svo hann passar við persónuleikann þinn.
Með sérhönnuðum 1,9“ skjá að framan færðu frelsi til að leika þér og stilla hann eins og þú vilt með því að nota myndir, myndbönd eða þína eigin AR-emoji hönnun.

Smart Switch
Vissir þú að það er mjög auðvelt að skipta yfir í nýjan Galaxy síma? Með Smart Switch getur þú fært forrit, stillingar og gögn úr gamla símanum yfir í þann nýja. Þú getur valið hvaða forrit og gögn þú vilt færa yfir, þú getur meira að segja valið að hafa sömu mynd í heimaskjánum.
Samanburður
Hér fyrir neðan er samanburður á Galaxy Z Flip4 og Galaxy Z Fold4.

Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy Z Flip4 á elko.is.
Betra saman
Velkomin á stærri og skemmtilegri heim. Samsung Galaxy fjölskyldan er hönnuð til að gera líf þitt auðveldara, og gera allt skemmtilegt. Nýttu þér einfaldleikann við að tengja saman Galaxy vörurnar og auka þannig framleiðni og sköpunargáfu þína. Gerðu það sem þú vilt, óaðfinnanlega, vel og auðveldlega.
