Fróðleikur

Samsung Tab s11 Ultra

15.09.2025

Eiginleikar:

Ofurglæsileg hönnun. Búin næstu kynslóðar S Pen

Ofurglæsileg hönnun. Búin næstu kynslóðar S Pen

Ræddu við Google Gemini

Frá hugmynd í gervigreindarteikningu yfir í minnispunkta, á augabragði

Heillandi skjáupplifun. Bæði innandyra og utandyra

Með ofurþunnum römmum og aukinni birtu býður 14,6″ Dynamic AMOLED 2X skjár Galaxy Tab S11 Ultra upp á stórkostlega sjónræna upplifun, jafnvel í björtu sólarljósi. Hvort sem þú ert að streyma eða spila leiki gerir þessi yfirburðaskjár þér kleift að njóta uppáhaldsafþreyingarinnar þinnar á alveg nýjan hátt, heima eða á ferðinni.

Mjó og þunn

Galaxy Tab S11 Ultra er aðeins 5,1 mm á þykkt og er ein þynnsta og léttasta spjaldtölva okkar til þessa. Ofurglæsileg lögunin er hönnuð þannig að hún passar auðveldlega í höndina eða töskuna, svo þú getur unnið og skapað hvar sem er með léttleika.

Uppfærð til að ná fleiri sjónarhornum

Njóttu heillandi upplifunar úr hverju sjónarhorni með þynnri römmum og aukinni birtu Galaxy Tab S11 Ultra. Sökkvu þér algjörlega inn í stóran skjá sem skilar stórkostlegum myndgæðum, jafnvel í björtu sólarljósi utandyra.

Öflug gervigreind. Frammistaða í þungavigt

Njóttu hnökralausrar notkunar með ofurhraðri frammistöðu, nú fínstillt sérstaklega fyrir gervigreind. Uppfærður örgjörvi Galaxy Tab S11 Ultra skilar stórkostlegri grafík, hnökralausri fjölverkavinnslu og meiri hraða.Með bættri NPU, CPU og GPU skiptir þú á milli forrita og efnis á augabragði.

Endist frá morgni til kvölds

Vertu með orku allan daginn með öflugri og snöggri hleðslu ásamt lengri endingartíma á rafhlöðu sem veitir allt að 23 klukkustundir af myndbandsafspilun.

Öruggt gegn höggum og ryki

Galaxy Tab S11 Ultra er klætt styrktu Armor Aluminum efni og með IP68-vottun sem gerir henni kleift að standast allar áskoranir sem dagurinn hefur uppá að bjóða..

Afkastamikil vinnustöð með Samsung DeX

Með Samsung DeX geturðu stækkað skjá Galaxy Tab S11 Ultra og búið til hnökralaust vinnu umhverfi með allt að fjórum vinnusvæðum. Færðu forrit á auðveldan hátt á milli skjáa til að halda vinnuflæðinu sléttu og skilvirku. Skiptu auðveldlega á milli skjáa með því að draga og sleppa gluggum, eða speglaðu efni úr Galaxy Tab S11 Ultra á skjávarpa eða tölvuskjá til að fá heimabíótilfinningu.

Fljótlegur aðgangur að Quick Tools

Opnaðu Quick Tools valmyndina samstundis beint úr S Pen. Uppfærðu stillingar eins og línuþykkt, lit, uppáhalds verkfæri, Note Assist og margt fleira á örskotsstundu.

Hraðar hugmyndir. Stór áhrif

Festu auðveldlega Sticky note við skjöl í Samsung Notes með S Pen. Haltu mikilvægum smáatriðunum sýnilegum þar sem þú þarft á þeim að halda, í hvert skipti.

Forritin þín. Á þinn hátt

Galaxy Tab S11 Ultra kemur með uppsettum öppum eins og Goodnotes, LumaFusion, Clip Studio Paint og Notion, sem gerir þér kleift að taka minnispunkta, breyta, teikna og halda skipulagi strax frá byrjun. Þú færð einnig aðgang að sérhönnuðum öppum eins og Noteshelf 3, ArcSite, Sketchbook og Picsart, sem öll eru hönnuð til að keyra hnökralaust og efla skapandi upplifun þína.


Berðu saman Galaxy spjaldtölvur:


Galaxy Tab S11

allt sem þú þarft, hvar og hvenær sem er.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.