Gaming

Star Wars Jedi: Fallen Order

16.10.2019

Tölvuleikjaútgáfa – Útgáfudagur 15. nóvember 2019

Star Wars Jedi: Fallen Order er þriðju persónu hasar- og ævintýraleikur frá Respawn Entertainment. Söguþráðurinn er glænýr og leikurinn gerður fyrir einn spilara. Leikmenn fara í hlutverk Jedi lærlings sem rétt slapp frá því að vera tekinn af lífi eftir að skipun 66 var gefin eftir atburði Episode 3: Revenge of Sith. Markmiðið er að byggja upp Jedi regluna aftur og þurfa leikmenn að púsla saman brotum úr fortíðinni til að geta klárað þjálfun sína, þróað með sér nýja og öfluga krafta, ná að sveifla geislasverðinu og á sama tíma að vera skrefi á undan keisaraveldinu og þeirra illmennum.

Leikurinn inniheldur ótrúlega bardaga þar sem leikmenn þurfa að hafa sig alla við til þess að ná yfirhöndinni. Hasaratriði leiksins eru vel gerð og fá leikmenn þá tilfinningu að þeir séu staddir í Star Wars mynd. Leikmenn þurfa að beita herkænsku í bardögum, meta styrkleika og veikleika óvina og nota alla þá Jedi þjálfun sem er í leiknum.

Aðdáendur Star Wars munu þekkja marga staði leiksins sem hafa komið fyrir í Star Wars myndunum, einnig vopn leiksins, tæki og óvini. Auk þessa inniheldur leikurinn mikið af nýjum persónum, stöðum, kvikindum, vélmennum og fleira.

Leikurinn inniheldur

  • Nýtt bardagakerfi sem sækir innblástur sinn í Star Wars myndirnar. Hér fá þeir leikmenn sem hafa dreymt um að verða Jedi riddarar drauma sína uppfyllta. Bardagar leiksins eru blanda af geislasverðshæfni og hversu góðir leikmenn eru að nota kraftana. Kerfið er einfalt í notkun, en það tekur tíma að verða góður í því.
  • Leikurinn inniheldur glænýjan söguþráð þar sem leikmenn verða að byrja á að ljúka Jedi þjálfun sinni og finna út úr því hvernig best sé að ná Jedi reglunni til baka. Leikmenn þurfa að berjast, skoða spennandi svæði og leysa þrautir til að klára leikinn.
  • Leikurinn inniheldur fjölbreytt umhverfi, skóglendi, kletta og margt fleira. Umhverfi leiksins er mjög opið og það er í valdi leikmanna hvert skal haldið næst. Eftir því sem kraftar leikmanna aukast er meira sem þeir geta gert til að hafa áhrif á umhverfið og þar með opnað fyrir nýjar leiðir og uppgötvað leyndarmál.
Myndband – Gameplay Demo (lengri útgáfa)
Myndband – Sýnishorn af leiknum frá EA games.

Leikurinn er væntanlegur 15. nóvember 2019. Forsala á elko.is

Smelltu hér til að skoða leikinn á elko.is.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.