
Heimagerður ís á 30 mín! Sumarsmellur
20.04.2018Þessi ljúffengi og framandi heimagerði ís er alger snilld og tekur nánast enga stund að gera
Það sem þú þarft:
- 200 ml hrein jógúrt
- 200 ml kókosmjólk
- 150 ml hreinn ananassafi
- 200 gr saxaður ananas
- 1-2 ástaraldin
- 1 kiwi
- Sú sæta sem þig langar að hafa (agavesíróp, stevia, hlynsíróp…) og smakkaðu þig áfram.
Aðferð með Azura ísvél:
Geymdu Azura ísskálina inni í frysti í 30 mínútur.
Taktu ísskálina út úr frystinum. Hrærðu saman jógúrtinu, kókosmjólkinni, ananassafanum og sætunni. Bættu ávöxtunum út í og blandaðu vel.
Aðferð án ísvélar:
Hrærðu saman jógúrtinu, kókosmjólkinni, ananassafanum og sætunni. Bættu ávöxtunum út í, blandaðu vel og helltu í grunnt ílát. Skelltu blöndunni inn í frysti, taktu ílátið svo út á 40 mín fresti, hrærðu aðeins í blöndunni og settu aftur inn. Endurtaktu þar til þér finnst ísinn vera tilbúinn.
Ooooog njóttu!
