
Samsung Galaxy Book6 Pro
11.05.2026Samsung Galaxy Book6 Pro er fartölva sem leggur áherslu á jafnvægi á milli krafts og hreyfanleika. Hún er þunn, með afkastagetu til að sinna fjölbreyttum verkefnum, hvort sem það er vinna, nám eða afþreying. Book6 Pro er fáanleg í tveimur stæðrum, 14″ og 16″, en báðar eiga þær það sameiginlegt að vera léttar og öflugar fartölvur.
Hentar fyrir fjölbreytt verkefni
Galaxy Book6 Pro nýtist vel í fjölbreytt verkefni, líkt og í daglega notkun og nám. Tölvan ræður einnig auðveldlega við myndvinnslu, hönnun og vídeóvinnslu.
Með góðri fjölverkagetu er auðvelt að vinna í mörgum öppum í einu, sem gerir hana að góðum kost fyrir þá sem vilja sinna bæði vinnu og afþreyingu í sama tæki.
Afköst sem nýtast í fleiri verkefni

Galaxy Book6 Pro er búin Intel Core Ultra örgjörva sem heldur góðum hraða þegar þú vinnur í mörgum verkefnum í einu. Hvort sem þú ert með mörg forrit opin, vinnur í skjölum eða ert að vinna með efni, þá vinnur tölvan hratt og örugglega. Þetta gerir hana hentuga fyrir þá sem vilja vinna án þess að finna fyrir töfum eða hiksti í notkun.
Innbyggð Intel Arc grafík skilar auknum krafti í myndvinnslu og öðru efni, sem gerir tölvuna að góðum kosti í skapandi verkefni eins og hönnun og létta vídeóvinnslu.
Skjár sem sker sig úr

Galaxy Book6 Pro er með Dynamic AMOLED 2X snertiskjá sem skilar skörpum og djúpum litum. Skjárinn er skýr og hentar vel í allskyns verkefni, hvort sem þú ert að lesa, vinna eða horfa á myndbönd.
Skjárinn er með allt að 120Hz endurnýjunartíðni, sem gerir hreyfingar mýkri og notkunina þægilegri þegar þú vafrar eða vinnur í mismunandi forritum.
Með allt að 1000 nit birtu og sjálfvirkri aðlögun að birtuskilyrðum helst skjárinn vel læsilegur, jafnvel í björtu umhverfi.
Hönnun og notkun
Þunn og létt hönnun

Galaxy Book6 Pro er hönnuð til að vera auðveld í flutningi og nýtist vel fyrir þá sem eru á ferðinni. Hún er létt og þunn og passar vel í tösku.
Snertiskjár

Snertiskjárinn gerir notkunina sveigjanlegri og gerir þér kleift að vinna beint á skjánum þegar það hentar. Til dæmis er auðvelt að opna öpp, færa myndir eða vinna með myndir með skjótum viðbrögðum.
Helstu tengin

Tölvan er með helstu tengjum sem nýtast í daglegri notkun.
Snertiflötur sem bætir upplifunina

Stór snertiflötur með haptic endurgjöf gerir stýringu nákvæma og þægilega, sérstaklega þegar unnið er mikið án músar.
Góð hljóðupplifun
Hljóðkerfið skilar skýru og fylltu hljóði sem nýtist vel bæði í vinnu og afþreyingu, hvort sem þú ert í fjarfundi eða að horfa á efni.
Tölvan er búin fjögurra hátalara kerfi með Dolby Atmos, sem gefur hljóðinu meiri dýpt og rými. Kraftmiklir bassahátalarar skila dýpri bassatónum á meðan hátalarar að framan halda hljóðinu skýru, sem gerir samtöl og myndbönd auðveldari í hlustun.
Rödd kemur skýrt fram í samtölum, sem gerir fjarfundi þægilegri, á meðan tónlist og myndbönd njóta sín betur með fyllra og líflegra hljóði. Þetta gerir tölvuna hentuga fyrir daglega notkun þar sem hljóð skiptir máli, hvort sem það er í vinnu eða í frítíma.

Rafhlöðuending

Rafhlaðan er hönnuð til að endast vel yfir daginn við hefðbundna notkun. Þegar þarf styður tölvan hraðhleðslu, sem gerir þér kleift að hlaða hana á stuttum tíma.