Fréttir Fróðleikur

iPhone Duo – fyrsti samanbrjótanlegi iPhone-síminn

10.09.2026

Það er alltaf spennandi þegar Apple kynnir nýjar vörur á haustin og kynningin 9. september 2026 var engin undantekning. Að þessu sinni kynnti Apple meðal annars fyrsta samanbrjótanlega iPhone-símann, nýja Pro-línu, ný Apple Watch-úr og fimmtu kynslóð AirPods.

Stærstu nýjungarnar voru iPhone Duo, iPhone 18 Pro, iPhone 18 Pro Max, Apple Watch Series 12, Apple Watch Ultra 4 og AirPods 5. Við skulum fara yfir helstu atriðin.

Hvenær hefst salan á nýju Apple vörunum?

iPhone 18 Pro og Pro Max, Apple Watch 4 og Airpods 5 eru væntanlegt í sölu í ELKO 18. september. iPhone Duo er væntanlegur í sölu í Elko 23. október.

iPhone Duo – fyrsti samanbrjótanlegi iPhone-síminn

Stærsta nýjung Apple-kynningarinnar var án efa iPhone Duo. Þetta er fyrsti samanbrjótanlegi iPhone-síminn og ein umfangsmesta breyting sem Apple hefur gert á iPhone-hönnun frá upphafi.

iPhone Duo samanbrjótanlegur iPhone í litunum Star White og Night Sky

Þegar iPhone Duo er lokaður er hann með 5,4″ Super Retina XDR-skjá sem gerir hann nettan og þægilegan í notkun með annarri hendi. Þegar síminn er opnaður tekur við 7,6″ innri skjár, sá stærsti sem Apple hefur sett í iPhone.

Innri skjárinn er um 50% stærri en skjár iPhone 18 Pro Max og opnar fyrir nýja möguleika í myndbandi, leikjum, lestri og fjölverkavinnslu. Báðir skjáir styðja ProMotion, Always-On og allt að 3.000 nit birtustig utandyra.

Samanbrjótanleg hönnun

Apple hefur hannað sérstakan lamabúnað með yfir 100 íhlutum til að halda innri skjánum flötum þegar síminn er opinn og tryggja mjúka hreyfingu þegar honum er lokað.

Innri skjárinn er styrktur með rispuvörn, nano-texture yfirborði, sterku gleri ofan og neðan við skjáflötinn og títanplötu undir honum. Apple notar einnig sérstakt bindiefni milli laga sem gerir þeim kleift að hreyfast lítillega þegar skjárinn er brotinn saman.

Fjölverkavinnsla á iPhone

iOS 27 hefur verið aðlagað sérstaklega að iPhone Duo. Með Split View er í fyrsta sinn hægt að opna tvö iPhone-forrit hlið við hlið og jafnvel tvo glugga úr sama forriti.

Stóri innri skjárinn getur því nýst eins og lítill vinnuflötur þar sem til dæmis Safari er opið öðrum megin og Messages, Notes eða Siri AI hinum megin. Athugið að Siri AI verður ekki aðgengilegt í Evrópu til að byrja með.

A20 Pro og myndavélarnar

iPhone Duo notar nýja A20 Pro-örgjörvann sem er framleiddur með 2 nm framleiðslutækni. Apple segir CPU-afköst vera allt að 20% meiri en hjá A19 Pro og GPU allt að 40% hraðari.

Að aftan eru tvær 48 MP Fusion-myndavélar: aðalmyndavél og Ultra Wide. Samanbrjótanlega hönnunin gerir einnig kleift að nota ytri skjáinn sem forskoðun þegar tekið er á öðrum eða þegar aðalmyndavélarnar eru notaðar fyrir sjálfsmyndir.

iPhone Duo styður einnig Apple Pencil USB-C og er eingöngu með eSIM.

iPhone 18 Pro og iPhone 18 Pro Max

Með iPhone 18 Pro og iPhone 18 Pro Max leggur Apple mesta áherslu á myndavélar, afköst og rafhlöðuendingu. Pro-símarnir fá nýjan A20 Pro-örgjörva, öflugra kælikerfi og umfangsmiklar breytingar á myndavélakerfinu.

iPhone 18 Pro og iPhone 18 Pro Max í Burgundy lit

iPhone 18 Pro kemur með 6,3″ Super Retina XDR-skjá en iPhone 18 Pro Max með stærri 6,9″ skjá. Báðir styðja ProMotion með allt að 120 Hz endurnýjunartíðni og allt að 3.000 nit birtustig utandyra.

Símarnir koma í fjórum litum: svörtum, silfurlituðum, Glacier og nýjum Burgundy-lit.

Breytilegt ljósop

Ein stærsta nýjungin er ný 48 MP Fusion Main myndavél með breytilegu ljósopi. Í fyrsta sinn í iPhone getur myndavélin breytt ljósopinu eftir birtu og því hversu mikla dýptarskerpu á að hafa í myndinni.

  • ƒ/1.48 hleypir miklu ljósi inn og hentar vel í lítilli birtu.
  • ƒ/1.8 gefur gott jafnvægi milli birtu og dýptarskerpu.
  • ƒ/2.8 heldur stærri hluta myndarinnar skörpum.
  • ƒ/4.0 getur aukið dýptarskerpu enn frekar, til dæmis í hópmyndum.

Ljósopið stillist sjálfkrafa en þeir sem vilja meiri stjórn geta einnig valið það handvirkt í Camera-forritinu.

Þrjár 48 MP myndavélar

  • 48 MP Fusion Main með breytilegu ljósopi.
  • 48 MP Fusion Ultra Wide fyrir víðari myndir og macro.
  • 48 MP Fusion Telephoto með 4× aðdrætti.

Telephoto-myndavélin getur einnig skilað 12 MP myndum með optical-quality 8× aðdrætti. Apple hefur jafnframt bætt við nýjum Pro-stýringum fyrir ljósop, lokarahraða og hvítjöfnun.

A20 Pro og betri kæling

Báðir Pro-símarnir nota A20 Pro og nýja kynslóð vapor chamber kælikerfis. Apple segir þetta skila hæstu stöðugu afköstum sem iPhone hefur boðið upp á til þessa.

Dynamic Island hefur einnig verið minnkað og getur nú sýnt fleiri Live Activities samtímis.

Apple Watch Series 12

Apple Watch Series 12 leggur enn meiri áherslu á heilsu og líkamsrækt með nýju Health Sensing System og S11 örgjörvanum.

Apple Watch Series 12 með nýju Health Sensing System

Apple segir nýja skynjarakerfið bjóða upp á nákvæmustu hjartsláttarmælingu sem fyrirtækið hefur sett í snjallúr ásamt tíðari mælingum á hjartslætti og HRV – breytileika á milli hjartslátta.

Readiness – hversu tilbúinn er líkaminn?

Ný Readiness-einkunn notar meðal annars gögn um hjartslátt, HRV, svefn og fyrri hreyfingu til að gefa notandanum vísbendingu um hversu tilbúinn líkaminn er fyrir álag dagsins.

Það getur verið sérstaklega gagnlegt fyrir þá sem vilja meta hvort dagurinn henti betur fyrir erfiða æfingu eða léttari endurheimt.

S11 og Apple Intelligence

Nýr S11-örgjörvi sér um úrvinnslu heilsugagna og gerir jafnframt nýja Audio Intelligence-eiginleika mögulega. Með watchOS 27 kemur Siri AI einnig á Apple Watch og getur nýtt persónulegt samhengi og almennar upplýsingar til að svara flóknari spurningum.

Apple Watch Series 12 verður fáanlegt í fjölbreyttum ál-, títan- og keramíkútgáfum. Álútgáfurnar fá einnig Ceramic Shield 2 sem Apple segir vera 60% sterkara en Ion-X gler fyrri kynslóða.

Apple Watch Ultra 4

Apple Watch Ultra 4 heldur áfram að vera öflugasta Apple Watch úrið fyrir íþróttir og útivist, en fær nú sömu nýju Health Sensing System tækni og Series 12 ásamt lengri rafhlöðuendingu.

Apple Watch Ultra 4 fyrir íþróttir og útivist
  • Nýtt Health Sensing System með tíðari hjartsláttar- og HRV-mælingum.
  • Ný Readiness-einkunn fyrir líkamsástand og endurheimt.
  • Nýr S11-örgjörvi.
  • Allt að 45 klukkustunda mæling á útivistaræfingum.
  • Endurbætt GPS sem Apple segir vera nákvæmasta innbyggða GPS-kerfi í íþróttaúri.
  • Stuðningur við gervihnattasamskipti þegar farsíma- eða Wi-Fi samband er ekki til staðar.

Ultra 4 verður fáanlegt í bæði náttúrulegum og svörtum títanlit.

AirPods 5

Apple kynnti einnig AirPods 5 með endurbættri hljóðvinnslu, nýrri hljóðhönnun og öflugri Active Noise Cancellation í opinni AirPods-hönnun.

Apple AirPods 5 og hleðsluhulstur

Betri hljóðdeyfing án sílikontappa

AirPods 5 halda opinni hönnun hefðbundinna AirPods en Apple hefur endurhannað hljóðkerfið með nýrri multiport acoustic architecture og næstu kynslóð Adaptive EQ.

Apple segir Active Noise Cancellation geta fjarlægt allt að 50% meiri utanaðkomandi hávaða en AirPods 4 með ANC.

Transparency-stillingin hefur einnig verið endurbætt og Adaptive Audio getur blandað saman ANC og umhverfishljóði eftir aðstæðum.

Siri AI og þýðing í rauntíma

Með samhæfum iPhone og Apple Intelligence geta AirPods 5 nýtt Siri AI án þess að notandinn þurfi að taka símann upp. Siri getur meðal annars nýtt upplýsingar úr skilaboðum, tölvupósti og öðrum gögnum til að svara spurningum í samhengi.

Live Translation gerir einnig kleift að nota AirPods til að aðstoða við samtöl milli mismunandi tungumála.

AirPods 5 koma í tveimur útfærslum og dýrari útgáfan fær meðal annars þráðlaust hleðsluhulstur, lengri rafhlöðuendingu og hljóðstyrkstýringu á stilk heyrnartólanna.

Apple Intelligence verður stærri hluti af Apple-vistkerfinu

Sameiginlegur þráður í gegnum stóran hluta kynningarinnar var Apple Intelligence og Siri AI. iPhone Duo og iPhone 18 Pro línan nýta A20 Pro til að keyra öflug gervigreindarlíkön á tækinu sjálfu, á meðan Apple Watch fær Siri AI og AirPods geta nýtt Siri í gegnum tengdan iPhone.

Í Health appinu bætir Apple Intelligence einnig við nýjum persónulegum upplýsingum og útskýringum út frá heilsugögnum úr Apple Watch. Ný Longevity-síða mun meðal annars geta sýnt svokallaðan Health Age sem ber mæld heilsugögn saman við líffræðilegan aldur.

Helstu nýjungarnar í hnotskurn

  • iPhone Duo: Fyrsti samanbrjótanlegi iPhone-síminn með 5,4″ ytri skjá og 7,6″ innri skjá.
  • iPhone 18 Pro og Pro Max: A20 Pro, þrjár 48 MP myndavélar og aðalmyndavél með breytilegu ljósopi.
  • Apple Watch Series 12: Nýtt Health Sensing System, S11 og Readiness einkunn.
  • Apple Watch Ultra 4: Ný heilsutækni, lengri rafhlöðuending og öflugri eiginleikar fyrir íþróttir og útivist.
  • AirPods 5: Betri ANC, ný hljóðhönnun, Siri AI og Live Translation.

Apple-kynningin 2026 markar því töluvert stærri breytingu á vörulínunni en venjuleg árleg uppfærsla. iPhone Duo bætir við alveg nýjum vöruflokki, iPhone 18 Pro fær eina stærstu myndavélabreytingu í sögu iPhone og nýju Apple Watch-úrin færa heilsumælingar enn lengra.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.