
Tillaga um afnám virðisaukaskatts á viðgerðum og sölu notaðra raftækja
13.10.2026Í tilefni af alþjóðlegum degi raftækjaúrgangs, 14. október 2026, hefur ELKO lagt fram formlega tillögu til ríkisstjórnar um að virðisaukaskattur á viðgerðarþjónustu raftækja fyrir heimili og sölu á notuðum og endurnýjuðum raftækjum verði felldur niður.
Helstu ástæður
- Í dag er orðið mun algengara að ódýrara sé að henda raftæki og kaupa nýtt en að gera við það.
- Verðmunur á nýjum og notuðum eða endurnýjuðum raftækjum er einfaldlega of lítill og viðskiptavinir velja því oftar en ekki ný tæki. Afleiðingin er aukinn úrgangur og sóun sem koma mætti í veg fyrir með einfaldri breytingu.
Við teljum að skattkerfið geti snúið þessari þróun við.
Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem mynda mestan raftækjaúrgang á mann í heiminum. Rétt eins og rætt er um hraðtísku (e. fast fashion) má tala um hraðtækni (e. fast tech): raftæki sem eru keypt, notuð í stuttan tíma og hent þegar þau bila, því viðgerð borgar sig ekki. Ein einföld breyting í skattkerfinu gæti breytt því hvað fólk gerir þegar þvottavélin, ísskápurinn, síminn eða fartölvan bilar. Breytingin myndi jafnframt styrkja hringrásarhagkerfið og hvetja fólk til að velja endurnýjað tæki frekar en nýtt.
ELKO selur bæði ný og notuð raftæki og rekur viðgerðarþjónustu með samstarfsverkstæðum. Við höfum því hagsmuni af málinu og kjósum að segja það hreint út. Við viljum sýna ábyrgð í sjálfbærnimálum og teljum því rétt að hvetja til hagstæðari aðstæðna fyrir viðgerðir og sölu notaðra raftækja. Þar höfum við hagsmuni umhverfis, neytenda og íslensks atvinnulífs að leiðarljósi. Framtíðarsýn ELKO í umhverfismálum er að vera leiðandi í hringrásarhagkerfi raftækja á Íslandi.
Ísland er í efstu sætum heims hvað varðar raftækjaúrgang - Árið 2022 féllu til um 22 kg af raftækjaúrgangi á hvern Íslending. Heimsmeðaltalið var 7,8 kg og meðaltal Evrópu 17,6 kg. Við erum í hópi fimm efstu þjóða Evrópu, ásamt Noregi, Bretlandi, Sviss og Frakklandi. Það endurspeglar ekki að Íslendingar gangi verr um en aðrir. Á litlum eyjamarkaði, fjarri endurnýjunar- og endurvinnslukerfum meginlands Evrópu, er einfaldlega dýrara að halda tækjum í umferð en að farga þeim. Samkvæmt ársskýrslu Úrvinnslusjóðs var söfnunarhlutfall raftækja aðeins 39% árið 2025, langt undir 65% markmiði, en söfnun og meðhöndlun raftækjaúrgangs er fjármögnuð með úrvinnslugjaldi sem neytendur greiða í verði nýrra tækja. Hvert tæki sem fær lengra líf þarf hvorki að safna né meðhöndla sem úrgang.
Við erum að tapa hæfni - Aðilum sem gera við heimilistæki fækkar stöðugt og sífellt færri sjá sér hag í að reka slíka þjónustu. Tækin krefjast talsverðrar sérhæfingar, þekkingar og símenntunar, en tryggja þarf nýliðun og fjölga fagfólki til að mæta þörfinni til framtíðar. Afnám virðisaukaskatts gæti því ekki aðeins gert viðgerðir hagkvæmari fyrir neytendur, heldur einnig styrkt rekstrargrundvöll verkstæðanna og skapað svigrúm til ráðninga og þjálfunar. Ef efla á viðgerðir og endurnýtingu þarf bæði að auka eftirspurn eftir þjónustunni og tryggja að þekking og mannskapur séu til staðar til að sinna henni. Verði ekkert að gert, og það fljótlega, gæti reynst erfitt að snúa þróuninni við.
Verðið ræður því hvort gert er við vöru eða ekki - Samkvæmt Eurobarometer-könnun ESB vilja 77% Evrópubúa frekar gera við tæki en kaupa ný. Samt er viðgerð aðeins fjárhagslega hagstæð fyrir um 5% þvottavéla og 33% ryksuga. Í flestum tilvikum er nýtt tæki ódýrara en varahlutir og vinna. Á Íslandi er staðan líklega verri, því viðgerð er oft dýr miðað við verð nýrra tækja. Verkstæði á Íslandi eiga erfitt með að ná endum saman og hvert af öðru hættir rekstri. Eitt stærsta heimilistækjaverkstæði landsins tapaði 10,5 m.kr. árið 2024 og skilaði 5,7% hagnaði af veltu árið 2025.
Afnám vsk af viðgerðaþjónustu skilar sér beint til heimila.
Dæmi um viðgerð sem kostar 40.000 kr. í dag:

Fordæmin eru til, bæði hér og erlendis
- Svíþjóð lækkaði VSK á tilteknum viðgerðum úr 25% í 12% og endurgreiðir helming vinnukostnaðar við viðgerðir stærri heimilistækja. Belgía beitir einnig lægra skattþrepi á tilteknar viðgerðir. Austurríki hefur greitt helming viðgerðarkostnaðar raftækja, allt að 200 evrur, og niðurgreiddi yfir 350.000 viðgerðir á fyrstu níu mánuðunum. Virðisaukaskattstilskipun ESB heimilar nú sérstaklega lægra þrep á viðgerðum heimilistækja og með tilskipun ESB um rétt til viðgerða frá 2024 er stefnan skýr: Evrópa vill að fleiri tæki séu lagfærð og færri hent. Á Íslandi hefur ríkið áður endurgreitt VSK af vinnu við íbúðarhúsnæði og bílaviðgerðir, svo kerfið kann þetta nú þegar.
Viðgerðir styðja loftslagsmarkmið og innlend störf - Stærstur hluti kolefnisspors raftækis verður til við framleiðslu og flutning til landsins. Hvert tæki sem lifir lengur er losun sem aldrei verður til. Slíkur ávinningur kallast kolefnishandspor (e. carbon handprint). Viðgerðir eru jafnframt unnar af innlendum verkstæðum um allt land, og hvert tæki sem gert er við hér heima í stað þess að nýtt sé flutt inn heldur verðmætum, störfum og gjaldeyri í landinu. ELKO starfar með um 60 slíkum verkstæðum og í rekstri ELKO árið 2025 fóru 4.324 tæki í hringrásarhagkerfið og 852 endurnýjuð tæki voru seld. Ljóst er að gera má töluvert betur.
Notuð raftæki bera virðisaukaskatt tvisvar - Þegar tæki er keypt nýtt greiðir neytandinn fullan VSK. Kaupi verslun tækið síðar af einstaklingi, yfirfari það og selji aftur, leggst 24% VSK á allt söluverðið. Enginn innskattur fæst á móti, því seljandinn var einstaklingur. Sama tæki ber þannig virðisaukaskatt í tvígang.
Tökum einn síma sem dæmi: - Anna kaupir nýjan síma á 100.000 kr. Ríkið fær 19.355 kr. í VSK.
- Ári síðar selur Anna ELKO símann á 34.000 kr.
- ELKO prófar símann, eyðir gögnum og selur hann Jóni á 49.600 kr. Ríkið fær aftur VSK, nú 9.600 kr.
Ríkið hefur þá fengið VSK tvisvar af sama símanum. Svona skiptast krónurnar sem Jón borgar:

- Í dag fær ríkið meira en ELKO fyrir að gera símann tilbúinn. Með tillögunni borgar Jón 9.600 kr. minna, ELKO fær nákvæmlega það sama og áður og ríkið hefur fengið virðisaukaskatt einu sinni af símanum, eins og eðlilegt er. Framlegð ELKO af notuðum tækjum var 15% árið 2025, eins og í dæminu.
- Skatturinn étur virðisaukann. Verslunin prófar tækið, eyðir gögnum, gerir við og veitir ábyrgð. Fyrir það fær hún 6.000 kr., en ríkið fær 9.600 kr. í VSK.
- Skattkerfið ýtir viðskiptum á einkamarkað. Sala milli einstaklinga ber engan VSK. Þar er tækið hvorki prófað né gögnum eytt og kaupandinn nýtur engrar ábyrgðar. Söluaðili sem gerir þetta vel er skattlagður, en sá sem gerir það ekki sleppur.
- Raftæki eiga sér ekki „loppumarkað“. Það er ekki rekstrarlegur grundvöllur fyrir smásölurekstur eingöngu með notuð raftæki. Þetta hefur skapað VSK-lausan markaðsvettvang á netinu sem er iðulega misnotaður af svikahröppum. Þarna geta ábyrg smásölufyrirtæki stigið inn sem milliliðir ef skattaumhverfi styddi það.
- Innflutt endurnýjuð tæki eru skattlögð eins og ný. Stór hluti endurnýjaðra tækja er keyptur af erlendum dreifingaraðilum. Á þau leggst fullur VSK í tolli, þótt tækið hafi þegar borið virðisaukaskatt í fyrra lífi sínu.
Niðurstaðan er að munurinn á nýju og notuðu tæki verður of lítill til að breyta vali fólks. Án virðisaukaskatts lækkar notaði síminn í dæminu um 9.600 kr., eða 19,4%, án þess að verslunin breyti álagningu sinni. Notað tæki fer þá úr 50% af verði nýs tækis niður í 40%. Ódýrari notuð og viðgerð tæki gera jafnframt fleiri heimilum kleift að eignast vönduð tæki með ábyrgð, sem skiptir máli á tímum hárrar verðbólgu. Hjá ELKO nam sala notaðra tækja aðeins 0,23% af veltu árið 2025, en afskrifaðar gallaðar og ósöluhæfar vörur 0,74%. Þrisvar sinnum meira fer því í afskriftir en selst aftur sem notað.
Tillaga að útfærslu
Við leggjum til einfalda leið sem nýtir kerfi sem þegar eru til:
- Viðgerðarþjónusta á raftækjum heimila og sala á notuðum og endurnýjuðum raftækjum verði undanþegin skattskyldri veltu með fullum innskattsrétti, sambærilegt við útflutning skv. 12. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Sú leið er þekkt í kerfinu og krefst ekki nýrra kerfa hjá Skattinum.
- Undanþágan nái til vinnu og varahluta í viðgerðinni sjálfri.
- Til vara, verði viðgerðir og sala notaðra raftækja færð í lægra skattþrepið, 11%, eða virðisaukaskattur af vinnu við viðgerðir raftækja endurgreiddur, að fyrirmynd átaksins Allir vinna.
- Breytingin verði metin eftir tvö ár, með tölum um fjölda viðgerða, magn raftækjaúrgangs, áhrif á tekjur ríkissjóðs og hvort breytingin hafi skilað sér í verði til neytenda.
Við gerum okkur grein fyrir að staða ríkisfjármála kallar á aðhald. Ef ekkert breytist í hegðun kostar afnám virðisaukaskattsins ríkissjóð um 194 m.kr. fyrir hvern milljarð króna sem nú er greiddur fyrir viðgerðir og notuð tæki. Á móti koma skatttekjur af nýjum störfum á verkstæðum, minni svört atvinnustarfsemi og lægri kostnaður við meðhöndlun úrgangs. ELKO er reiðubúið að leggja fram eigin gögn um viðgerðir og sölu notaðra tækja og vinna með ráðuneytinu að mati á nettóáhrifum.