
Æfingarfélaginn Garmin Venu4
4.11.2025Garmin Venu 4 snjallúrið sameinar stílhreina hönnun og háþróaða tækni til að styðja við heilsu þína og daglega hreyfingu. Með 41 eða 45 mm ramma úr ryðfríu stáli og skýrum AMOLED snertiskjá færðu bæði glæsilegt útlit og notendavænt viðmót.

Rúmlega 80 innbyggðar æfingar
Fylgstu með allri þinni hreyfingu með yfir 80 innbyggðum íþróttaforritum fyrir innan- og utandyra æfingar — þar á meðal göngu, hlaup og margt fleira. Náðu markmiðum þínum með Garmin Coach æfingaáætlunum fyrir hlaup, hjólreiðar, styrktaræfingar og almenna þolþjálfun — sumar þeirra aðlagast jafnvel að líkamsástandi þínu og heilsufarsmælingum. Þú getur líka fengið sérsniðnar æfingatillögur fyrir hvern dag.
Body Battery orkumæling
Fylgstu með orkustöðu líkamans til að sjá hvort þú sért með næga líkamsorku til að fara á æfingu eða hvort þú ættir að taka hvíld
Hjartsláttartíðni
Fáðu betri skilning á heilsunni, æfingum og endurheimt með hjartsláttartíðni í svefni.
Garmin ECG
ECG forritið⁴ notar skynjara til að skrá rafmerki hjartans sem stjórna hjartslættinum. Forritið greinir þessi merki til að skima eftir einkennum hjartsláttaróreglu sem kallast gáttatif (AFib).
Lýstu upp daginn með innbyggðu vasaljósi


Bjartur AMOLED skjár
Með skýrum AMOLED snertiskjá færðu bæði glæsilegt útlit og notendavænt viðmót.
Litaskipti
Stilltu skjáinn á rauðan, grænan eða appelsínugulan lit — eða virkjaðu bláljósasíu — til að vernda nætursjón og draga úr truflunum á dægursveiflu og svefnmynstri.
Leturstærðir
Hægt er að velja á milli tveggja mismunandi leturstærða á úrinu.
Litasíur
Úrið býður upp á sérhæfðar litasíur — t.d. gráskala, rautt/grænt, grænt/rautt og blátt/gult — sem auka aðgengi og bæta upplifun notenda með litblindu.
Allt að 10 daga rafhlöðuending
Frábær rafhlöðuending eða allt að 10 dagar. Ending á einni fullri hleðslu fer eftir notkun, hvort að þú ert að nota GPS möguleikann, Bluetooth og fleira.


Snjalltilkynningar
Fáðu tilkynningar um tölvupóst, smáskilaboð, símtöl og margt fleira í úrið þegar það er tengt við snjallsíma.
Textaskilaboð
Notaðu lyklaborðið til að senda fljótleg svör beint úr úrinu (virkar aðeins fyrir Android eða í gegnum Garmin Messenger™ appið⁷) – þannig getur þú haldið símanum í vasanum.
Sjáðu myndir á úrinu
Með Android síma geturðu skoðað myndir sem eru sendar til þín, beint á skjánum á úrinu.
Garmin Pay
Notaðu snertilausan greiðslumöguleika úrsins til þess að versla á hlaupum eða hvar sem er.
Garmin Connect appið
Fáðu betri skilning á heilsu þína og skráðu daglegar venjur til að sjá áhrif þeirra á heilsuna þína. Skráðu fyrirfram skilgreinda eða sérsniðna hegðun — eins og neyslu koffíns og áfengis — og skoðaðu skýrslur um hvernig þessar lífsstílsvenjur hafa áhrif á svefn, streitu og hjartsláttartíðni
Sjáðu hvort heilsubreytur eins og púls, hjartsláttartíðni, húðhiti³ og súrefnismettun¹ í svefni séu að færast frá þínum venjulegu viðmiðunargildum — sem gæti bent til aukins álags á líkamann. Þessar breytingar geta tengst hreyfingu, streitu, umhverfisbreytingum, áfengisneyslu, veikindum og fleiru (í beta útgáfu⁴).

24/7 heilsuskráning
Fáðu betri innsýn í heilsuna þína og stuðlaðu að heilbrigðari lífsstíl með fjölbreyttri heilsuskráningu allan sólarhringinn. Fylgstu með Body Battery™, streitu, súrefnismettun¹ og skráðu tíðahringinn² – ásamt fleiru
Ítarleg svefnskráning
Fáðu einkunn fyrir svefninn og persónulega leiðsögn um hversu mikinn svefn þú þarft og hvernig þú getur bætt hann. Úrið fylgist með svefnskeiðum eins og létt-, djúp- og REM-svefni, ásamt lúrum, og hjartsláttatíðni og húðhitastig³ til að gefa þér betri skilning á heilsu þinni. Með svefnsamræmiseiginleika sýnir úrið samræmi svefns við dægursveiflu líkamans og veitir betri innsýn í svefnvenjur.
Smelltu hér til að skoða Garmin Venu4 snjallúr á elko.is
