
Samsung Galaxy Watch Ultra2 – Harðgerður lúxus
24.07.2026Samsung Galaxy Watch Ultra2 er með 1,52″ Super AMOLED skjá, títaníumhúsi og 10ATM-vatnsþol. Snjallúrið er með LTE-tengingu, EN13319 köfunarstaðalvottun og ítarlegt heilsuvöktunarkerfi fyrir Android notendur.
Hannað fyrir allar aðstæður
Samsung Galaxy Watch Ultra2 er hannað fyrir krefjandi útivist og þjálfun, en útlitið hentar jafnvel í daglegu lífi.
Þrátt fyrir mun stærri rafhlöðu er úrið 7% þynnri en á fyrri gerðinni, sem skiptir miklu máli fyrir þægindin á úlnliðnum. Mýkri ól tryggir þægindi við langar æfingar og gerir það að verkum að úrið er þægilegt að bera allan sólarhringinn.

Rafhlaðan
Samsung Galaxy Watch Ultra2 er með 800 mAh rafhlöðu sem er hönnuð fyrir langa daga og langvarandi notkun. Rafhlaðan er 35% stærri og nýi Qualcomm örgjörvinn nýtir orkuna 15% betur, sem gerir úrinu kleift að endast lengur á hverri hleðslu.
Þegar þú þarft að hlaða úrið gengur það hratt fyrir sig. Svo þú getir haldið áfram án þess að þurfa að skipuleggja þig út frá hleðslustöðunni.

Bjartasti skjárinn
Hraðinn, leiðin eða hjartsláttur helst vel sýnilegur, jafnvel í björtu sólarljósi. Galaxy Watch Ultra2 er með stærri 1,52 tommu skjá og allt að 5.000 nita birtustig. það mesta sem sést hefur á Galaxy Watch, sem tryggir að upplýsingarnar séu skýrar og greinilegar á stærri skjánum. Hvort sem þú skoðar leiðina í sólskinsríku utanvegahlaupi eða kíkir á tölurnar þegar þú kemur upp úr vatninu í sólina, þá sést allt vel.

Frá fjallastígum til hafsins
Galaxy Watch Ultra2 er hannað til að endast og þola mikið álag. Títanium ramminn þolir högg vel en liggur samt léttur á úlnliðnum. Úrið uppfyllir IP69K og 10 ATM staðla og þolir því úrhellisrigningu, mikið ryk og mikinn þrýsting í djúpu vatni. Og nú er það einnig tilbúið fyrir köfun, enda fyrsta Galaxy úrið sem hlotið hefur EN13319 vottun.

Æfðu betur, saman á Strava
Deildu leiðum, bættu þínar eigin bestu tíma og fagnaðu hverjum áfanga. Með Strava á Galaxy Watch Ultra2 hlaðast æfingaupplýsingar þínar sjálfkrafa inn. Svo þú getir einbeitt þér að æfingunni í stað þess að hugsa um samstillingu. Æfðu betur með Strava á Galaxy Watch Ultra2.


Svefn
Góður svefn snýst ekki bara um endurheimt; hann hefur áhrif á orku, einbeitingu og hvernig líkaminn bregst við þjálfun og álagi. Þess vegna er svefnupplifunin í úrinu hönnuð til að auðvelda þér að skilja hvernig þér líður í raun og veru, og hvers vegna, fremur en aðeins hversu lengi þú svafst.
Úrin fylgjast með svefni þínum alla nóttina og nýta mæligögn til að veita heildstæðari mynd af endurheimt. Með stuðningi gervigreindar (AI) verður greiningin meira en bara skýrsla: þú færð innsýn sem hjálpar þér að sjá mynstur með tímanum og skilja hvað hefur áhrif á svefninn og hversu vel þú ert í stakk búinn til að takast á við daginn.
Snjallúrið sýnir alvarleikastig kæfisvefns (e. sleep apnea), veitir Sleep Apnea 2.0 þér skýrari mynd með því að sýna hversu oft kæfisvefnstilvik eiga sér stað á klukkustund og hversu alvarleg þau eru. FDA vottað.
Heilsumælingar
Blóðþrýsingur

Galaxy Watch Ultra2 á úlnliðnum þínum getur mælt blóðþrýsting og hjálpað þér að fylgjast með honum. Fyrir nákvæmari mælingar mældu blóðþrýsting með viðurkenndum blóðþrýstingsmæli og settu upplýsingar inn í Watch Ultra2 svo að hann hefur þau gögn sem viðmið. Þú getur svo fylgst með þróun í Samsugn Healt monitor forritinu.
Eiginleikinn er ætlaður til eftirlits með þróun blóðþrýstings, en er ekki lækningatæki og kemur ekki í stað mælinga með viðurkenndum blóðþrýstingsmæli eða ráðgjafar heilbrigðisstarfsfólks.
Púls + ECG
Eiginleikar sem tengjast mælingum á hjarta- og æðakerfi gegna lykilhlutverki Watch Ultra2 og Watch9, þar sem þeir veita mikilvægar upplýsingar um viðbrögð líkaman, hvort sem er við hreyfingu eða í hvíld.
Úrið geta greint óreglulegan hjartslátt og látið þig vita, svo þú getir tekið hjartalínurit (ECG) beint í úrinu og fengið frekari upplýsingar. Þetta er leið til að nýta hjartatengd gögn betur: ekki sem læknisfræðilega greiningu í sjálfu sér, heldur sem tæki sem hjálpar þér að nema merki líkamans og bregðast við þegar þörf krefur.
Frá hugsun til framkvæmdar – hraðar
Gervigreind er verðmætust þegar hún sparar þér tíma. Gervigreind er notuð til að auðvelda skjót viðbrögð, án þess að þú þurfir að fletta í gegnum valmyndir eða taka símann upp úr vasanum.
Með raddstýringu geturðu beðið úrið um aðstoð beint af úlnliðnum: sent skilaboð, bætt við áminningu eða sinnt daglegum verkefnum þegar þú hefur hendur fullar af öðru. Gervigreind getur einnig gert samskipti hnökralausari með því að stinga upp á svörum eða sjálfvirknivæða þau út frá því hvernig þú tjáir þig venjulega og sparar þannig tíma án þess að upplifunin verði ópersónuleg.

Með „Generative AI Tile“ segirðu einfaldlega hvað þú vilt fylgjast með, til dæmis niðurtalningu fyrir ferðalag eða mikilvægan viðburð, dagatalsfærslur, æfingamarkmið, endurheimt eða hlutabréf og færð persónulega og skýra yfirsýn sem uppfærist sjálfkrafa. Þegar þú þarft hjálp strax er „Raise to Talk“ til staðar: lyftu bara úlnliðnum og talaðu við Gemini.
Örgjörvinn
Snapdragon® Wear Elite-pallurinn setur nýjan staðal fyrir vinnslugetu snjallúra. Forrit opnast hraðar, viðbrögðin eru samstundis og öll samskipti við úrið ganga betur fyrir sig en nokkru sinni fyrr. Hvort sem þú skiptir úr hraðaupplýsingum yfir í tónlist í miðju hlaupi eða skoðar dagatalið á milli símtala, þá fylgir Galaxy Watch Ultra2 hverri hreyfingu þinni eftir.

Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy Watch Ultra2 á elko.is
Samanburður
