Fróðleikur Hugmyndir

USB-C hleðsla – það sem þú þarft að vita

26.08.2026

Þetta er líklega þekkt vandamál á mörgum heimilum: skúffa full af hleðslutækjum og snúrum og enginn alveg viss um hvaða snúra tilheyrir hvaða tæki.

Þetta er smám saman að breytast. Nýjar reglur Evrópusambandsins gera USB-C að sameiginlegu hleðslutengi fyrir sífellt fleiri raftæki. Markmiðið er einfalt; að sama hleðslutæki geti nýst með fleiri tækjum, fækka óþarfa hleðslutækjum á heimilinu og auðvelda neytendum að velja rétta hleðslulausn.

USB-C verður sameiginlegt hleðslutengi

Reglur ESB taka gildi í tveimur skrefum fyrir mismunandi vöruflokka.


28. desember 2024


Reglurnar taka meðal annars til farsíma, spjaldtölva,
heyrnartóla, stafrænna myndavéla, lesbretta,
flytjanlegra hátalara, lyklaborða, músa og
handfesta leikjatölva.


28. apríl 2026


Fartölvur sem falla undir reglurnar bætast við.


Í stuttu máli:
USB-C verður sameiginleg hleðslulausn fyrir sífellt fleiri tæki,
sem getur þýtt færri hleðslutæki og snúrur á heimilinu.

Þýðir þetta að eitt hleðslutæki geti hlaðið allt?

Í mörgum tilfellum, já – en það er einn hængur á.

Þótt tækin noti sama USB-C tengið geta þau þurft mismikið afl. Heyrnartól þurfa oft lítið afl á meðan símar og fartölvur geta þurft töluvert meira. Þess vegna er mikilvægt að skoða vöttin (W) þegar hleðslutæki er valið.

Öflugra USB-C hleðslutæki er ekki að fara að „troða“ öllu aflinu inn í lítið tæki. Með USB Power Delivery, eða USB PD, eiga tækið og hleðslutækið samskipti og ákveða viðeigandi hleðslu. Þannig er til dæmis hægt að nota öflugt USB-C fartölvuhleðslutæki til að hlaða síma sem þarf mun minna afl.

Núverandi USB Power Delivery staðall styður allt að 240 W hleðslu um USB-C. Reglur ESB gera jafnframt ráð fyrir USB PD fyrir tæki sem falla undir reglurnar þegar hleðsluaflið er yfir 15 W.

Eitt hleðslutæki fyrir fartölvuna, símann og spjaldtölvuna

Sandstrøm 140 W 3x GaN hleðslutæki

Ein áhugaverðasta þróunin samhliða USB-C er fjölgun svokallaðra GaN-hleðslutækja.

GaN stendur fyrir Gallium Nitride og gerir meðal annars mögulegt að smíða fyrirferðarlítil hleðslutæki sem geta skilað miklu afli með góðri nýtni.

Kosturinn fyrir venjulegan notanda er að eitt hleðslutæki getur verið með nokkur USB-C tengi og hlaðið fleiri en eitt tæki samtímis.

Í stað þess að ferðast með hleðslutæki fyrir fartölvuna, annað fyrir símann og það þriðja fyrir spjaldtölvuna getur eitt öflugt GaN-hleðslutæki séð um öll tækin.

Á elko.is má til dæmis finna 65 W GaN-hleðslutæki frá Sandstrøm með tveimur USB-C-tengjum og einu USB-A. Fyrir meiri aflþörf eru einnig í boði 100 W lausnir með allt að þremur USB-C-tengjum og einu USB-A. Fyrir þá sem þurfa enn meira afl má einnig finna 140 W GaN hleðslulausnir á elko.is.

Þetta getur verið sérstaklega hentugt fyrir heimili þar sem mörg tæki eru hlaðin á sama stað, á skrifborðið eða fyrir þá sem vilja fækka hleðslutækjum í ferðatöskunni.

Athugaðu hvernig aflið skiptist

Þegar hleðslutæki er með mörgum tengjum þarf þó að skoða eitt mikilvægt atriði.

„65 W“ á hleðslutæki þýðir ekki endilega að hvert tengi geti gefið 65 W samtímis.

Hleðslutækið gæti til dæmis geta gefið allt að 65 W þegar eitt tæki er tengt en skipt aflinu á milli tengjanna þegar fleiri tæki eru hlaðin samtímis.

Ef ætlunin er að hlaða fartölvu, síma og spjaldtölvu á sama tíma er því gott að velja hleðslutæki með nægilegt heildarafl og skoða hvernig framleiðandinn skilgreinir afldreifingu milli tengja.

USB-C hleðsla – hvað þarf ég mörg vött?

Hér eru einföld viðmið sem geta hjálpað þér að velja rétt USB-C hleðslutæki.

Heyrnartól, úr og smátæki
5–20 W
Farsími
20–45 W
Spjaldtölva
20–45 W
Létt fartölva
45–65 W
Flestar fartölvur
65–100 W
Aflmeiri fartölvur
100–140 W+

Athugaðu: Þetta eru almenn viðmið. Athugaðu alltaf uppgefið
hleðsluafl framleiðanda fyrir þitt tæki.

Ekki gleyma USB-C snúrunni

Sandstrøm 240W USB-C snúra – 2 metrar

Hleðslutækið er aðeins einn hluti af jöfnunni. USB-C snúran þarf líka að ráða við aflið. Ef fartölvan getur tekið við 100 W og hleðslutækið getur skilað 100 W, en snúran styður aðeins 60 W, verður snúran takmarkandi þátturinn.

Þetta verður sífellt mikilvægara eftir því sem USB-C tekur við hleðslu á stærri tækjum.

Á elko.is má nú finna USB-C snúrur fyrir mismunandi aflþörf, allt frá 60 W snúrum upp í 240 W Power Delivery snúrur. Sem dæmi er Sandstrøm með tveggja metra USB-C í USB-C snúru sem styður allt að 240 W Power Delivery.

Það er því góð regla að skoða þrjú atriði saman:

Hversu mikið afl þarf tækið? Hversu mikið getur hleðslutækið gefið? Og hversu mikið afl styður snúran?

Hvað með öflugar leikjafartölvur?

USB Power Delivery getur í dag skilað allt að 240 W, en sumar aflmiklar leikjafartölvur og vinnustöðvar geta þurft meira afl þegar örgjörvi og skjákort eru keyrð á fullum afköstum.

Það þýðir þó ekki að slíkar tölvur séu sjálfkrafa undanþegnar nýju reglunum.

Leiðbeiningar framkvæmdastjórnar ESB taka sérstaklega fram að fartölva sem þarf meira en 240 W og fellur undir reglurnar þarf samt að styðja samræmdu USB-C hleðslulausnina upp að 240 W. Framleiðandinn getur jafnframt boðið sérstaka hleðslulausn fyrir meira afl.

Öflug leikjafartölva getur því verið hlaðin með USB-C við venjulega eða létta notkun en þurft sérstakt hleðslutæki frá framleiðanda til að ná fullum afköstum við krefjandi leikjaspilun.

USB-C er meira en bara hleðsla

Sandstrøm 7-í-1 USB-C tengikví

USB-C tengið getur gert mun meira en að hlaða tæki. Það getur einnig flutt gögn og á tækjum sem styðja það, myndmerki til skjás.

Þetta gerir mögulegt að tengja fartölvu við tengikví með einni USB-C snúru og fá í gegnum hana hleðslu, skjái, USB-tæki og nettengingu.

Á elko.is eru til dæmis USB-C tengikvíar með HDMI, USB-A, USB-C og öðrum tengimöguleikum. Sandstrøm 140 W USB-C tengikvíin sameinar meðal annars GaN-hleðslu, allt að 96 W hleðslu til tölvu og tvö 4K HDMI skjátengi.

Hér þarf þó að hafa í huga að USB-C tengi líta öll eins út en styðja ekki endilega sömu eiginleika. Ef tengja á skjá eða tengikví þarf að athuga hvaða mynd- og gagnaflutning viðkomandi USB-C tengi tölvunnar styður.

Þarf ég þá að kaupa nýtt hleðslutæki?

Ekki endilega – og það er einmitt hluti af hugmyndinni.

Reglur ESB gera ráð fyrir að hægt sé að kaupa tæki sem falla undir reglurnar án þess að nýtt hleðslutæki fylgi með. Ef þú átt nú þegar hentugt USB-C hleðslutæki getur verið óþarfi að eignast annað eins. Umbúðir eiga jafnframt að gefa upplýsingar um hvort hleðslutæki fylgi tækinu og hvaða hleðsluafl það þarf.

Þegar nýr sími, spjaldtölva eða fartölva er keypt er því góð hugmynd að athuga fyrst hvaða hleðslutæki eru nú þegar til á heimilinu.

Ef þau styðja USB Power Delivery og hafa nægilegt afl gæti verið hægt að halda áfram að nota þau. Það er einnig hægt að sjá á heimasíðu Elko hvort hleðslutæki fylgir með nýrri fartölvu.

Hvaða hleðslutæki hentar mér?

Veldu afl eftir því hvaða tæki þú ætlar að hlaða.

Sími og minni tæki
Til dæmis farsímar, heyrnartól og snjallúr
20–30 W
USB-C hleðslutæki

Sími og spjaldtölva
Gott fyrir daglega hleðslu á fleiri en einu tæki
30–65 W
USB-C / GaN

Fartölva og sími
Hentugt fyrir vinnu, skóla og ferðalög
65–100 W
GaN með fleiri tengjum

Nokkur tæki samtímis
Til dæmis fartölva, sími og spjaldtölva
100–140 W+
Fjölport GaN

Athugaðu: Þetta eru almenn viðmið. Skoðaðu alltaf
uppgefið hleðsluafl tækisins og hvernig afl skiptist milli tengja
þegar fleiri en eitt tæki er hlaðið samtímis.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.