
Bættu myndum við stafræna myndarammann þinn
14.01.2026Stafrænir myndarammar eru sniðug og þægileg leið til að halda uppáhaldsmyndum fjölskyldunnar lifandi í daglegu lífi. Þeir gera það einfalt að sýna ferðaminningar, fjölskyldumyndir og augnablik úr hversdeginum, án þess að þurfa að prenta út myndir eða skipta þeim út handvirkt.
Með flestum stafrænum myndarömmum er hægt að bjóða vinum og vandamönnum aðgang að rammanum þannig að þeir geti sent myndir beint í hann, hvar sem þeir eru.
Margir myndarammar styðja við Frameo appið, en til að fá sem mest út úr slíkum ramma er mikilvægt að setja hann rétt upp og að tengja símann við rammann.
Hér fyrir neðan eru einföld skref sem sýna hvernig þú tengir rammann við netið og bætir myndum inn á hann.

Tengdu myndaramman við netið
Fyrsta skrefið er að tengja myndaramman við Wi-Fi net. Þegar ramminn er kveiktur í fyrsta skipti birtist uppsetningarskjár þar sem þú velur tungumál, tengist Wi-Fi og klárar grunnstillingar. Þessi tenging er nauðsynleg svo hægt sé að senda myndir í rammann úr síma eða spjaldtölvu.
Sæktu Frameo appið
Þegar myndaramminn hefur verið tengdur við netið er næsta skref að tengja símann eða spjaldtölvuna við hann. Til þess þarftu að sækja Frameo appið í App Store eða Google Play.
Þegar appinu hefur verið halað niður, velur þú „Add new frame“ og slærð inn kóðann sem birtist á skjánum á myndarammanum. Þessi kóði tryggir að aðeins þeir sem eigandi rammans samþykkir geti sent myndir í hann. Þegar kóðinn hefur verið staðfestur tengist síminn eða spjaldtölvan við rammann
Sendu myndirnar úr símanum í rammann
Þegar þú hefur sett upp appið í símanum getur þú byrjað að senda myndir í rammann. Með Frameo getur þú valið myndir úr myndasafninu í símanum eða spjaldtölvunni og sent þær beint í rammann. Einnig er hægt að bæta við textaskilaboðum með myndunum sem gerir rammann enn persónulegri.

Leyfðu vinum og vandamönnum að senda þér myndir
Hægt er að bjóða vinum og vandamönnum að senda myndir í stafræna myndaramman með svokölluðum vinakóða (friend code). Eigandi rammans hefur fulla stjórn á notkuninni og getur valið hvaða aðilar mega senda myndir, hversu oft þær birtast á skjánum og hversu hratt ramminn skiptir á milli mynda.
1. Búðu til vinakóða
Opnaðu valmyndina á myndarammanninum og ýttu á „Add friend“ hnappinn til að búa til kóða. Kóðinn birtist á skjánum og gildir í 12 klukkustundir
2. Deildu kóðanum
Sendu kóðann til þeirrar manneskju sem á að fá að senda myndir. Þú getur deilt honum á þann hátt sem þér hentar, til dæmis með skilaboðum eða því að taka mynd af kóðanum
3. Tengdu vin við rammann
Vinurinn opnar Frameo appið í síma sínum, ýtir á „Add friend“ inn í appinu og slær inn kóðann.
Þetta þýðir að vinir og fjölskylda geta sent myndir án þess að vera í nánd við rammann, jafnvel þó þeir séu í öðru landi. Það gerir Frameo myndarammann að mjög persónulegum og lifandi myndavegg sem uppfærist reglulega með nýjum augnablikum og minningum.

Stafrænir myndarammar eru einfaldir í noktun þegar þeir eru settir rétt upp. Með Wi-Fi tengingu og Frameo appinu er hægt að senda myndir úr síma í rammann hvar sem er í heiminum og deila minningum á persónulegan og þægilegan hátt. Með fáeinum skrefum verður stafrænn myndarammi lifandi myndasafn sem uppfærist sjálfkrafa með nýjum augnablikum.
Smelltu hér til að skoða alla stafræna myndaramma í ELKO.