Fréttir

ELKO hefur opnað nýja og glæsilega verslun í Skeifunni 19

8.07.2022

ELKO hefur verið með starfsemi í Skeifunni frá árinu 2004 en hefur nú flutt verslunina einungis 250 metra frá Skeifunni 7 yfir í Skeifuna 19. Nýja verslunin er í sama endurhannaða útliti og verslanir ELKO á Akureyri og í Leifsstöð, en verslunarrýmið telur 1400 fermetra og með nýjum innréttingum og sérhannaðri lýsingu er verslunin sjálf orðin ein af glæsilegustu raftækjaverslunum landsins. Aukið rými á nýjum stað þýðir einnig að hægt er að efla vöruval til muna.

Verslunin býður upp á tækni sem hefur ekki sést áður hérlendis en þar er að finna heilan vegg af sjónvarpsskjám sem viðskiptavinir geta stýrt sjálfir með símanum sínum. Einnig eru skjáir staðsettir í ýmsum deildum með margvíslegum upplýsingum fyrir viðskiptavini. Í Skeifunni er einnig salur sem verður tekinn í notkun á næstu mánuðum þar sem haldin verða námskeið og tækjakennsla.

Aðgengi að nýju versluninni er mun betra en á fyrri stað en alls eru um 150 bílastæði við verslunarhúsið nýja í Skeifunni. Fyrir rafmagnsbíla verða á svæðinu alls 20 hleðslustaurar sem kann að verða fjölgað í framtíðinni. Einnig er fyrir utan húsið ágæt aðstaða fyrir fólk sem kemur á reiðhjólum og ekki langt frá verða meginæðar fyrirhugaðar Borgarlínu. Fordyri verslunarhússins er stórt og rúmgott og þar eru möguleikar fyrir mannamót og markaðshald.

Verið hjartanlega velkomin!

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.