
Niðurstöður fermingarkönnunar ELKO 2026
19.03.2026Könnunin varpaði ljósi á eftirminnilegustu fermingargjafirnar, hvaða skemmtikrafta fólk vill helst fá í veisluna og fleiri áhugaverða þætti tengda fermingum. Fram kom að um 76% landsmanna er boðið í fermingarveislu í ár og því ljóst að fermingar verða á milli tannana á landanum næstu vikurnar.
Raftæki og peningar tróna á toppnum hjá fermingarbörnum árið 2026
Fermingartímabilið er fram undan og eins og undanfarin ár lét ELKO framkvæma viðamikla könnun á viðhorfi landsmanna til ferminga, gjafa og veisluhalds. Niðurstöðurnar byggja á svörum tæplega 2.000 þátttakenda og gefa skýra mynd af því hvað er efst á óskalista fermingarbarna og í hvaða átt hefðirnar eru að þróast.
Er þér boðið í fermingu í ár?
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar má gera ráð fyrir að 76,4% landsmanna fái boð í fermingarveislu í ár og að slíkar veislur fari í langflestum tilvikum fram í veislusölum, eða í 76,9% tilvika. Einungis um 16,5% fermingarveislna fara fram í heimahúsi.

Eins og síðustu ár notast langflestir við viðburði á Facebook til þess að bjóða gestum, eða 73,3%. Tæpur fjórðungur (23,4%) notar enn formleg boðskort í prentformi en styðst þó oft við báðar lausnirnar.

Hver er minnisstæðasta fermingargjöfin?
92,4% svarenda fermdust í kirkju en einungis um 4,8% hafa ekki fermst, hvorki í kirkju né borgaralega. Ef við skoðum minnisstæðustu gjafirnar þá tróna raftæki á toppnum, peningar koma svo í öðru sæti en þar á eftir koma gjafir sem tengjast upplifunum, áhugamálum, skarti eða heimilinu. Ef fólk væri að fermast í dag segist það helst myndu vilja peningagjöf (28,7%), raftæki (27,6%) eða utanlandsferð (23%).

Ef við skoðum raftækin sérstaklega þá eru það snjallsímar, fartölvur, leikjatölvur og snjallúr sem myndu rata á óskalista svarenda könnunarinnar ef þau væri að fermast í dag.
PC eða Macbook? iPhone eða Android?
Við spurðum einnig hvort að viðkomandi mundi velja sér að kaupa PC eða Macbook fartölvu og er niðurstaðan sú að það er 62,2% sem velja PC og 37,8% sem velja Apple Macbook.
Þegar kemur af snjallsímum var einnig spurt: Ef þú værir að velja þér síma í dag, hvernig síma myndir þú velja? Og er 48,5% sem velja iPhone, 45,2% Samsung en einnig voru nefndir Oppo, Xiaomi og OnePlus símar.


Hvað á að gefa fermingarbarninu háa upphæð?
Þegar spurt er hvaða upphæð fólk miði við að gefa fermingarbarni sem telst ekki til náskylds ættmennis þá segjast 56,4% miða við tíu þúsund krónur, 17,7% miða við fimmtán þúsund og um 16,5% miða við fimm þúsund krónur. Út frá þessum niðurstöðum mætti áætla að tíu þúsund krónur séu góð viðmiðunarupphæð fyrir fermingarbarnið og eru það svipaðar niðurstöður og fyrir ári síðan. Þegar sömu spurningu er snúið að foreldrum fermingarbarna þá segjast um 30% miða við um hundrað þúsund krónur en þess ber að geta að 60,1% svarenda finnst of miklum fjármunum varið í fermingargjafir í dag.

Hvað á að gefa gestunum að borða?
Þegar kemur að því að halda fermingarveislu þarf að huga að því hvað á að bera á borð og fermingarbörnin sjálf oft með sterka skoðun á því hvað skuli vera á boðstólum. Heitir brauðréttir eru alltaf klassík en 53,4% sögðu þá vera í uppáhaldi hjá sér í fermingarveislum. 43,6% völdu pinnamat og snittur, 25,8% kaldar brauðtertur og um 23% völdu marengsköku, kransaköku og veislumat í formi kjötmetis og sósu. Við þessa spurningu gafst svarendum kostur á þremur valmöguleikum á fyrir fram ákveðnum lista.


Afþreying fyrir þau yngstu
Vantar þig eitthvað til að bjóða þeim yngstu upp á sem afþreyingu? Smelltu á myndina hér fyrir neðan ef þú vilt sækja A4 blað til að prenta út. Tilvalið fyrir fermingar, brúðkaup eða í stórafmæli.

Hægt er að sjá meira frítt prentefni hér.
Hvað með hefðirnar?
Margar hefðir tengdar fermingarveislum halds sér vel og ber þar helst að nefna gjafirnar, veitingarnar og mikilvægi dagsins í lífi fermingarbarnanna. 34% segja sérmerkt fermingarkerti vera nauðsynlegt í veislunni, um 23% vilja fá kransakökuna sína og heitu brauðréttirnir standa alltaf fyrir sínu. En þó eru líka að mótast nýjar hefðir. Fimmtungur, um 20%, segist hafa tekið þátt í rafrænni spurningakeppni tengdri fermingarbarninu í síðustu fermingu og verður gaman að fylgjast með þeirri þróun á næstu árum.
ELKO leggur mikið upp úr að bjóða úrval fermingargjafa, hvort sem það eru símar, fartölvur, heyrnartól, snyrtivörur, leikjatölvur eða hreinlega gjafakort sem renna aldrei út. Eins hefur ELKO virkjað skilarétt á fermingargjöfum sem þýðir að fermingarbörn geta skilað gjöfum með skilamiða úr ELKO til allt að 30. júní 2026. Á lendingarsíðunni elko.is/fermingar má finna úrval vara en svo bendum við auðvitað á leitarvélina og stafrænan ráðgjafa á elko.is sem getur gefið skráðum notendum ýmis ráð þegar kemur að fermingargjöfum.