Fréttir Gjafalistar

Fermingarkönnun ELKO – Niðurstaða

22.03.2023

Þann 10. mars 2023 sendum við út könnun á póstlista ELKO og einnig buðum við fólki á samfélagsmiðlum að taka þátt í fermingarkönnun ELKO þar sem við spurðum um fermingar og fermingarhefðir.


Hver var minnisstæðasta fermingargjöfin?

Fermingarúrið stendur upp úr sem minnisstæðasta fermingargjöfin í nýrri könnun ELKO. Auk þess að forvitnast um minnisstæðustu gjöfina var spurt út í ýmislegt fermingartengt, svo sem hvað fólk myndi helst langa í væri það að fermast í ár, hvort það væri fermt, og hvaða veitingar væru í uppáhaldi í fermingarveislum. 

Af minnisstæðum fermingargjöfum komu á eftir úrinu hljómflutningstæki í öðru sæti, fartölva, rúm og myndavél. Í sjötta sæti voru svo peningar og því ljóst að fólki er minnisstæðara að fá innpakkaða gjöf en peninga. Þá kemur í ljós að fólk langar í margvíslega hluti væri það að fermast nú, en þar voru efst á blaði fartölvur, leikjatölvur og símar. Þar á eftir komu svo sjónvörp, snjallúr, heyrnartól og hátalarar. 

Tíu eftirminnilegustu fermingargjafirnar: 

  1. Úr 
  1. Græjur 
  1. Fartölva 
  1. Rúm 
  1. Myndavél 
  1. Peningar 
  1. Sjónvarp 
  1. Skatthol 
  1. Hringur 
  1. Hestur 

„Við höfum gaman af könnunum sem þessum og teljum líka gagnlegt að leiða fram áhugaverðar staðreyndir og breytur sem þessar í tengslum við fermingar- og jólagjafir en við framkvæmdum samskonar könnun í nóvember síðastliðnum. Sumt kemur á óvart í þessari könnun og annað ekki. Til dæmis eru 95 prósent fermd í kirkju og tæp fjögur prósent borgaralega en fróðlegt væri að vita skiptinguna hjá fermingarbörnum í ár. Svo kemur í ljós að rúmur helmingur er sáttur við fermingarmyndina sem af þeim var tekin meðan fjórðungi finnst hún hræðileg, mér þar meðal. Svo eru líka margir sem tóku ekki fermingarmynd. Við þessu ákváðum við að bregðast og fram til 16. apríl ætlum við að bjóða fólki að láta taka af sér fermingarmynd í verslun okkar í Lindum í Kópavogi. Það þarf bara að mæta því kyrtlar og aðrir leikmunir eru á staðnum. Fólk hefur svo tækifæri til þess að skrá sig í fermingarmyndaleik þar sem í vinning er 100 þúsund króna inneign í ELKO.“ 

– Arinbjörn Hauksson, forsöðumaður markaðsmála hjá ELKO

Könnun ELKO leiðir jafnframt í ljós að flestir hafa hefðbundnar óskir þegar kemur að veislumat í fermingum, en þrjú efstu sætin verma heitir brauðréttir, brauðtertur, auk pinnamats og snitta. Í fjórða sæti er heitur veislumatur, aðaréttur og meðlæti, en þar á eftir koma svo margvíslegar kökur og sætmeti, frá marengs- og kransakökum yfir í döðlugott. 

Afar góð þátttaka var í könnun ELKO sem send var út á póstlista og samfélagsmiðla 10. mars sl. Af þeim 6.055 sem könnuninni svöruðu eru voru 60 prósent á aldrinum 18 til 50 ára, rúm 27 prósent frá 51 til 64 ára og tæp 12 prósent 65 ára eða eldri. Þá voru 1,6 prósent svarenda undir 18 ára aldri. 


Samantekt helstu niðurstaðna úr könnun ELKO

Ertu fermd/ur? 

Já, í kirkju – 94,9% 
Já, borgaralega – 3,5% 
Nei – 1,6%  

Hvernig var fermingarmyndin þín? 

Eftir að hafa kannað ánægju viðskiptavina með fermingarmyndirnar sínar þá kom í ljós að um 24% viðskiptavina voru óánægðir með fermingarmyndina sína og væru til í að taka hana aftur og um 20% fóru ekki í fermingarmyndatöku.

Bara mjög fín – 53% 
Hræðileg, ég væri til í að taka hana aftur – 24% 
Ég fór ekki í fermingarmyndatöku – 21% 
Ég fermdist ekki – 2%

Óskalistinn ef þú værir að fermast árið 2023?

Þátttakendur í könnun fengu að merkja við allt að 5 hluti sem væru efst á óskalistanum ef þau væru að fermast í ár. Á listanum voru vinsælar fermingargjafir sem eru fáanlegar í ELKO en einnig var opin spurning og er hægt að sjá nánar um svör við henni hér fyrir neðan.

Efstu tíu sæti óskalistans: 

  1. PlayStation5 
  1. iPhone 
  1. Sjónvarp 
  1. Snjallúr 
  1. Macbook fartölva 
  1. Samsung snjallsími 
  1. PC fartölva  
  1. Góður hátalari 
  1. Spjaldtölva 
  1. Heyrnartól (yfir eyra)

Ef hakað var við annað var til dæmis nefnt; Utanlandsferð, peningar, hestur, Polaroid prentari, Tjald, Fjallahjól, Rafmagnshjól, Skartgripir, námskeið, Oculus VR gleraugu, rúm, krossari, upplifun, GoPro 11.

Er þér boðið í fermingu á þessu ári?

Já – 66%
Nei – 34%


Er heitir brauðréttir uppáhalds rétturinn þinn?

Þegar kemur að veislum skipta veitingar miklu máli. Við spurðum

Uppáhaldsveitingar í fermingarveislu: 

  1. Heitir brauðréttir 
  1. Brauðtertur 
  1. Pinnamatur/snittur 
  1. Veislumatur (kjöt, sósa og meðlæti) 
  1. Marengsterta 
  1. Kransakaka 
  1. Klassísk fermingarkaka 
  1. Súkkulaðikaka 
  1. Rice crispies góðgæti 
  1. Döðlugott 

Dæmi um annað sem var nefnt: Ísterta, Sushi, Makkarónur, Bollakökur, kjúklingasúpa, vegan matur, ostabakkar, ávextir.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.