Fróðleikur

Fyrsta Tab S spjaldtölvan sem er vatnsvarin

8.12.2023

Galaxy Tab S9 línan er samsett af spjaldtölvum í þremur stærðum, S9 er með 11“ skjá, S9+ er með 12,4“ skjá og Ultra er með alvöru 14,6“ skjá. Samsung Galaxy Tab S9 er háþróuð, öflug spjaldtölva sem skilar ótrúlegum krafti fyrir vinnu og skemmtun. 

Galaxy Tab S9 línan inniheldur fyrstu Tab S spjaldtölvunnar sem eru vatnsvarnar mv IP68 stuðul.


Skjár

Samsung Galaxy Tab S9 er með stórum og skýrum skjá. Horfðu á kvikmyndir og þætti á Dynamic AMOLED skjánum.

Spilaðu leiki og vafraðu á netinu með mjúkum, hröðum hreyfingum með 120 Hz endurnýjunartíðni. Skjárinn er líka bjartur utandyra með Vision Booster ásamt snjöllu algrím sem greinir umhverfisbirtu og breytir skjástillingum.

Myndsímtöl

Myndsímtöl verða betri með 4K vefmyndavél og stafrænir fundir eru bættir með sjálfvirkum aðdrætti og þremur hljóðnemum.


S penni

Innifalinn er teiknipenni sem hentar einstaklega vel fyrir teikniforrit, skrifa glósur og jafnvel semja tónlist. Penninn er mjög næmur sem gerir það að verkum að auðvelt er að teikna að nákvæmni eins og um venjulegan penna væri að ræða. Snjallrifa meðfram efstu brúninni á spjaldtölvunni festir pennann á sinn stað. Nýja Samsung Notes er hannað fyrir stóra skjái svo þú getur nýtt allt svæðið til að skyssa og glósa – eða skipt skjánum í tvennt og unnið í tveimur gluggum. S Pen er líka ryk- og vatnsvarinn með IP68 vottun.


Deildu rafmagninu

Galaxy Tab S9 spjaldtölvunnar eru með stóra rafhlöðu og geta deilt með öðrum samhæfum Galaxy tækjum. Virkar með sasmhæfum símum og heyrnartólum eins og Galaxy Buds. Þegar þú þarft svo að hlaða spjaldtölvuna gerir þú það með ofur hraðhleðslu (e. Super Fast Charging).



Samsung Galaxy S9 – 11“ AMOLED skjár

Galaxy Tab S9 er nettasta útgáfan í þessari frábæru línu spjaldtölva frá Samsung. Fáguð hönnun og ótrúlegur kraftur gerir þessa vél að fyrirtaks kosti fyrir fagmenn og fagurkera.

Góð litadýpt og mikiil upplausn býður þér upp á frábæra upplifun hvort sem er við áhorf á þínu uppáhalds sjónvarpsefni eða við grafíska vinnu. S-penni sem festist við bakhlið spjaldtölvunnar er sérlega hentugt verkfæri – einkum fyrr alla sem eru drátthagir. Vélin er að sjálfsögðu með íslensku notendaviðmóti auk þess sem Tab S9 línan er öll vatnsvarin skv. IP68 staðli.


Samsung Galaxy S9+ – 12,4“ AMOLED skjár

Galaxy Tab S9+ gefur þér plús í kladdann. Fáguð hönnun og ótrúlegur kraftur gerir þessa vél að fyrirtaks kosti fyrir fagmenn og fagurkera. Góð litadýpt og mikiil upplausn býður þér upp á frábæra upplifun hvort sem er við áhorf á þínu uppáhalds sjónvarpsefni eða við grafíska vinnu – eða hvernig vinnu sem er.

S-penni sem vestist við bakhlið spjaldtölvunnar er ´serlega hentugt verkfæri – einkum fyrr alla sem eru drátthagir. Vélin er að sjálfsögðu með íslensku notendaviðmóti eins og öll android tæki frá Samsung.


Samsung Galaxy S9 Ultra – 14,6“ AMOLED skjár

Galaxy Tab S8 Ultra er sú stærsta og sú besta. Fáguð hönnun og ótrúlegur kraftur gerir þessa vél að fyrirtaks kosti fyrir fagmenn og fagurkera.

Góð litadýpt og mikiil upplausn býður þér upp á frábæra upplifun hvort sem er við áhorf á þínu uppáhalds sjónvarpsefni eða við grafíska vinnu. S-penni sem festist við bakhlið spjaldtölvunnar er sérlega hentugt verkfæri – einkum fyrr alla sem eru drátthagir. Vélin er að sjálfsögðu með íslensku notendaviðmóti auk þess sem Tab S9 línan er öll vatnsvarin skv. IP68 staðli.


Allt sem þú þarft

Tab S9 FE er fallega hönnuð og öflug spjaldtölva sem ætti að nýtast þér í flest sem þú tekur þér fyrir hendur. Með stórri rafhlöðu sem endist lengi og tekur stuttan tíma að hlaða upp aftur. Með S-pennanum getur þú skrifað glósur eða teiknað listaverk og með IP68 ryk- og vatnsvörninni getur þú gert það hvar sem er.

Helsti munurinn á Tab S9 og Tab S9 FE er að FE útgáfan er með IPS LCD 90Hz skjá en S9 línan með AMOLED 120Hz skjá.

Fáanlegar í tveimur stærðum; Tab S9 FE er með 10,9“ skjá og Tab S9 FE+ er með 12,4“.


Smelltu hér til að skoða allar Samsung Galaxy S9 spjaldtölvur á elko.is

Samanburður

Samanburður á Tab S9, S9+ og S9 Ultra

Samanburður á Tab S9 FE/FE+ og Tab S9/S9+

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.