Samsung Galaxy S26 Ultra
Fróðleikur

Galaxy S26 Ultra með friðhelgisskjásíu

27.02.2026

Samsung Galaxy S26 Ultra er fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Myndavélin er nú með brautryðjandi notkun á gervigreind og enn betri vélbúnað fyrir betri aðdrátt og aukin gæði. Að vanda er Galaxy S26 Ultra með innbyggðan S-penna sem er vatnsvarinn samkvæmt IP68-vottun.

Eitt af áhugaverðustu nýjungunum í S26 Ultra er innbyggð friðhelgisskjásía (e.Privacy Display), sem er fyrsta slíka tæknin sem er innbyggð beint í skjáinn. Þetta kerfi minnkar sjónarhorn skjásins þegar það er virkjað – þannig að ef einhver reynir að lesa skjáinn frá hliðinni sér hann lítið eða ekkert. Þetta er frábært í almenningssamgöngum eða þegar þú ert í fjölmenni og vilt vernda persónuupplýsingar þínar.

Helstu nýjungar í S26 Ultra

Friðhelgisskjásía Privacy Display
Með Galaxy S26 geturðu með einni snertingu ákveðið hverjir geta séð skjáinn þinn. Veldu úr fjórum stigum persónuverndar og virkjaðu þau hvenær sem þú þarft.

Þú getur fyrirfram stillt að þegar þú ferð í heimabankann kveiknar á friðhelgisskjásíunni eða þegar þú færð sent skilaboð með staðfestingarkóða verður friðhelgissía yfir skilaboðin svo ef einhver er hliðin á þér, sér viðkomandi ekki skilaboðin.


Hönnun

S26 Ultra er sterkbyggður með Armor Aluminum 3 álramma.

Innbyggður S-Pen
Glósaðu á skjáinn hvenær sem er eða nýttu pennann til að fínpússa myndefnið þitt áður en þú deilir því. S Penninn hefur marga eiginleika upp á að bjóða og virkar bæði sem penni og pensill sem opnar á nýjar leiðir til þess að skapa.

Myndavélin

Myndavélin
Myndavélin í Galaxy S26 Ultra er samansett úr fjórum myndavélum; 200Mp Wide-angle, 50MP Ultra Wide, 50MP 5x optical zoom + 100x Space Zoom og 10Mp 3x Optical zoom. Auk þess hjálpar gervigreindin að betrumbæta myndgæði. Einnig er S26 Ultra með besta Quad Tele aðdrátt hingað til, þú getur núna notað 2x, 3x og 5x með Optical Quality aðdrætti.

Taktu flottar myndir og myndbönd óháð birtuskilyrðum
Taktu bjartar, litríkar, skýrar myndir og myndbönd, jafnvel í myrkri með AI ISP. Andlitsmyndir eins og þig hefur dreymt um og fáðu skýrar myndir með 2x eða jafnvel 3x aðdrátti. Hver fjarlægð getur verið eins skýr og dagur, þó það sé tæknilega nótt.

Hveru langt viltu ná?
Farðu úr 1x í 2x eða jafnvel 3x. AI heldur myndunum skörpum, skýrum og með góðum gæðum, án þess að tapa miklum smáatriðum.


Galaxy AI

Samsung leggur mikla áherslu á gervigreind (AI) í þessari seríu. S26 Ultra styður nú nýjar og snjallar AI-aðgerðir sem vinnur með Google’s Gemini og Samsung’s egna aðstoðartólum. Þessar leiðir geta t.d. spáð í þarfir þínar, veitt sérsniðna ráðgjöf og sinnt flóknum verkefnum með raddskipun eða einföldum texta.

Snjallari með Galaxy AI
S-línan brýtur blað með framúrstefnulegri nýtingu gervigreindar til þess að auk a notagildi tækjanna m.a. með rauntímaþýðingum milli tungumála og enn betri ljósmyndum og myndskeiðum

Tungumálaþýðing í beinni.
Fáðu beina tungumálaþýðingu í næsta símtali þínu. Galaxy AI hjálpar þér að eiga samskipti í síma á öðrum tungumálum. Bein þýðing virkar einnig í skilaboðum.
*Þýðing í beinni (e. Live Translate) krefst nettengingar og Samsung reikningsinnskráningar. Þýðing í beinni er aðeins fáanlegt í foruppsettu Samsung símaforritinu. Ákveðin tungumál gætu krafist tungumálapakka til að sækja. Íslenska er ekki í boði í beinni þýðingu en þú getur t.d. látið þýða spænsku yfir í ensku. 

Hjálparkokkur 
Sástu girnilegan rétt? Taktu mynd og spurðu símann hvaða réttur er í myndinni. Síminn svarar og getur bætt uppskriftinni í uppskriftasafnið þitt ásamt því að geta mælt með víni sem parast vel með réttnum.

Dragðu hring um það, finndu það, einfalt og fljótlegt
Leitaðu á nýjan máta með ‚Circle to Search með Google‘. Taktu mynd, settu hring utan um viðfangsefnið og leitaðu á Google. Þetta er ný sjónræn leið til að finna það sem þú ert að leita að.

Gervigreindin les úr hljóðupptökum
Tilbúin/n fyrir þinn eigin persónulega aðstoðarmann? Taktu upp hljóð og Galaxy Al mun skrifa það niður, umbreyta því í texta, og búa til útdrátt. Gervigreindin getur meira að segja séð um að þýða tungumál.

Myndvinnsla með AI
Nýttu þér töfra AI myndvinnslu. Nú getur þú fullkomnað myndirnar þínar áreynslulaust og tryggt að hver ljósmynd fær að skína skært. En það er ekki allt, þú getur líka breytt bakgrunni og látið óæskilega hluti hverfa ásamt því að tryggja að enginn er að blikka augunum þegar þú tekur hópmynd.


Krafturinn

Gríðarlega öflugir örgjörvar tryggja mjúka og kraftmikla vinnslu S26 Ultra hvort sem er í leik eða starfi.
Geta og afl síma ræðst af mörgum þáttum. Samsung Galaxy S26 Ultra er keyrður á Snapdragon 8 Elite Gen 5 fyrir Galaxy, hraðasti og öflugasti örgjörvi í Samsung hingað til. Meiri afkastageta og styttri svartímar. En það er ekki bara örgjörvinn sem gerir þennan síma hraðan og öflugan, hann er einnig með 16GB vinnsluminni og stillingar á forritum hjálpa við að gera símann öflugri.

Rafhlaðan

S26 Ultra hefur stóra 5000 mAh rafhlöðu sem dugar allan daginn. Með 60 W hraðhleðslu nær síminn allt að 75% hleðslu á aðeins um 30 mínútum, sem gerir hann mun sveigjanlegri fyrir þig.


Niðurstaðan er að Samsung Galaxy S26 Ultra er frábær snjallsími þegar kemur af vélbúnaði, hugbúnaði og notendaupplifun. Með nýtti Privacy Display, öflugu AI, bættri myndavél og hraðari afköst setur hann ný viðmið fyrir sambærilega síma á markaðnum.

Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy S26 Ultra símana og aukahluti á elko.is.

Samsung Galaxy S26 línan kemur með nýju stýrikerfi ONE UI 8.5

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.