Uppskriftir

Gerðu jólaísinn með Ninja CREAMi

26.11.2025

Það er ekki af ástæðulausu að algjört ísæði hefur gripið um sig hérna á Íslandi, enda er ísvélin frá Ninja jólagjöf ársins 2025 samkvæmt jólakönnun ELKO. Það hefur aldrei verið eins einfalt og jafnframt skemmtilegt að útbúa sinn eigin ís heima, en hér fyrir neðan má finna nokkur gagnleg ráð ásamt hugmyndum af uppskriftum fyrir Ninja CREAMi.

Ninja Creami ísvél

Ninja CREAMi

Næringarrík innihaldsefni fyrir hinn fullkomna próteinís

ProPud eru bestu próteindrykkirnir fyrir hollan kost, rjómakenndir og bragðgóðir og þarf því ekki að bæta neinu við þá til að fá góða áferð. Ef þú vilt auka próteininnihald er gott að velja mjólkurprótein á borð við Casein eða Whey, sem gerir blönduna enn rjómakenndari. Ef notaðir eru léttari próteindrykkir, til dæmis Hleðsla, er nauðsynlegt að bæta við próteindufti, búðingi, rjóma, eða Xanthan gum til að þykkja og mýkja blönduna.

Hefðbundinn rjómaís kemur alltaf vel út í vélinni og er gott að miða við Toblerone eða súkkulaði uppskriftina hér fyrir neðan ef gera skal klassískan ís.

Réttar stillingar fyrir silkimjúka áferð

Vélin býður upp á fjölmargar stillingar sem gaman er að prófa sig áfram með.  Þumalputtareglan er að nota Ice Cream fyrir rjóma- og sykurháar blöndur eins og Toblerone- og súkkulaðiísinn, en Lite Ice Cream fyrir léttari blöndur eins og After Eight ísinn.

Mikilvægt eftir frystingu

Mikilvægt er að láta ísinn þiðna áður en þú hrærir honum, en gott er að miða við að láta ísinn standa á borðinu í um 5-15 mínútur. Ef þú ert með rjómaís þarf þó aðeins 5 mínútna bið þar sem hann er mýkri. Stundum myndast kúla ofan á blöndunni í frysti, en hana verður að skafa niður áður en við hrærum svo hnífurinn fari beint niður og skemmi ekki vélina.

Með léttari blöndur er oft nauðsynlegt að hræra ísinn aftur, þá er ýtt á re-spin. Stundum dugar að þétta ísinn saman með skeið, því hann kann að vera tilbúinn þó hann líti enn út fyrir að vera púðurkenndur. Ekki er mælt með að bæta við vökva þegar re-spin stillingin er notuð.

Bættu góðgæti við ísinn

Extras og mix-in stillingarnar gera okkur kleift að gera okkar eigin bragðaref heima, þar sem við getum prófað okkur áfram og bætt við því góðgæti sem okkur langar í hverju sinni. Sem dæmi er hægt að setja jarðaber, Þrist, Oreo, Hnetutoppskurl, kökudeig, M&M, mini-pretzels, eða litla sykurpúða út í ísinn.

Borða og njóta

Þegar ísinn er tilbúinn er bara að setjast niður og njóta. Ef þú klárar ekki ísinn má endurfrysta hann, svo lengi sem yfirborðið er sléttað vel áður.

Uppskriftir

Ís hefur lengi verið stór hluti af jólahefð margra Íslendinga og „jólaísinn“ á heima á flestum borðum yfir hátíðarnar. Fyrir marga er þetta orðinn órjúfanlegur hluti af jólunum sjálfum, og ekki síður skemmtilegt tækifæri til að prófa sig áfram með nýjar bragðtegundir og uppskriftir.

Inga María


Inga María útbjó nokkrar ljúffengar uppskriftir sem henta sérstaklega vel um jólin, bæði fyrir þá sem elska klassísku bragðtegundirnar og þá sem vilja prófa eitthvað nýtt og jólalegt.

After Eight ís

Prótein After Eight ís

Innihaldsefni
Ninja CREAMi / Ninja CREAMi Deluxe

  • Ein/tvær flöskur Vanillu ProPud drykkur
  • 2/4 tsk. piparmyntudropar (gefur mikið og gott myntubragð, setjið minna ef þið viljið mildara bragð)
  • Hálf/ein tsk. grænn matarlitur (valkvætt)
  • 4/6 After Eight plötur
  • Vöffluísform (valkvætt)

Aðferð

  • Blandið saman ProPud drykk, piparmyntudropum og matarlit.
  • Frystið í a.m.k. 8 klst.
  • Leyfið að standa í 15 mín.
  • Spinnið á Lite Ice Cream.
  • Setjið After Eight í miðjuna og ýtið á Extras/Mix-ins.
  • Berið fram í vöffluformi.

Vanillukókosís

Vanillukókosís – mjólkur- og eggjalaus

Innihaldsefni
Ninja CREAMi / Ninja CREAMi Deluxe

  • 350/450 ml. kókosmjólk (eða önnur plöntumjólk)
  • 4/6 msk. vanillubúðingur
  • 120/160 ml. kókosrjómi
  • Ein/tvær tsk. vanilludropar
  • Suðusúkkulaðidropar

Aðferð

  • Hrærið kókosmjólk og búðingaduft saman.
  • Bætið við kókosrjóma og vanilludropum.
  • Frystið í a.m.k. 12 klst.
  • Látið standa í a.m.k. 15 mínútur, þessi blanda frystist mjög hörð.
  • Spinnið á Lite Ice Cream.
  • Endurspinnið eftir þörfum, ekki bæta vökva við.
  • Bætið súkkulaðidropum við og ýtið á Extras/Mix-in.

Jólafrappó

Piparkökufrappó

Innihaldsefni
Gerir einn drykk

  • 1 flaska Vanillu ProPud
  • 6 piparkökur
  • 1 espresso skot
  • 1 volgur kaffibolli (aðeins Deluxe, eftir frystingu)

Aðferð

  • Hellið ProPud í CREAMi dolluna og bætið við espresso skoti.
  • Bætið piparkökunum út í og leyfið þeim að mýkjast í 5 mínútur.
  • Stappið kökurnar vel.
  • Frystið í a.m.k. 8 klst.

Stillingar – eftir týpu
Ninja CREAMi:

  • Takið úr frysti og látið standa í 15 mínútur.
  • Spinnið á Ice Cream, síðan á Milkshake.
  • Ath.: Milkshake stillingin er aðeins fyrir ís sem er þegar spunninn, ekki frosna blöndu.

Ninja CREAMi Deluxe:

  • Takið úr frysti og látið standa í 15 mínútur.
  • Hellið volgu kaffi yfir (má ekki vera heitt).
  • Spinnið á Frappé.

Toppið með muldum piparkökum.


Súkkulaðiís í Ninja CREAMI með jólastöfum

Súkkulaðiís með jólastöfum

Innihaldsefni
Ninja CREAMi / Ninja CREAMi Deluxe

  • 30/40 g kakó
  • 60/80 g heitt vatn
  • 200/280 g niðursoðin sæt mjólk
  • 150/210 g rjómi
  • 100/140 g léttmjólk
  • Smá sjávarsalt
  • Litlir sælgætisstafir

Aðferð

  • Hrærið kakó og heitt vatn saman.
  • Hrærið við niðursoðna sætri mjólk og leyfið að kólna aðeins.
  • Bætið við rjóma, mjólk og salti.
  • Frystið í 24 klst.
  • Blandan er mjúk og þarf því ekki að standa lengi á borðinu.
  • Spinnið á Ice Cream.
  • Myljið sælgætisstafina á meðan.
  • Setjið mulda stafi í miðjuna og ýtið á Extras/Mix-in.

Toblerone ís með heitri karmellusósu

Toblerone ís með heitri karamellusósu

Innihaldsefni
Ninja CREAMi / Ninja CREAMi Deluxe

  • 240/360 ml mjólk
  • 120/180 ml rjómi
  • 50/75 g sykur
  • 2/3 eggjarauður
  • Hálf/ein tsk vanilludropar
  • Smá sjávarsalt
  • Hálft/heilt Toblerone stykki

Heit Karamellusósa

  • 1 poki karamellu töggur
  • 2-4 msk rjómi (meiri rjómi = mýkri sósa)

Aðferð

  • Setjið mjólk og rjóma í pott og hitið þar til þú sérð litlar loftbólur meðfram köntunum (látið ekki sjóða).
  • Á meðan mjólkin hitnar, hrærið eggjarauðum og sykri þar til þú færð ljósgulan lit.
  • Nú þurfum við að „tempra” eggin til að forðast að þau verði að eggjahræru.
  • Helltu um 5 msk. af hituðu mjólkur- og rjómablöndunni í eggjablönduna, einni matskeið í einu og hrærið vel á milli svo allt blandist jafnt.
  • Hellið síðan eggjablöndunni út í mjólkurpottinn og hrærið við meðalháan hita í 5-7 mínútur, eða þar til blandan þekur bakhliðina á skeið (rennur ekki beint af).
  • Leyfið blöndunni að kólna aðeins og bætið svo við vanilludropum.
  • Hellið blöndunni í CREAMi dolluna og frystið í 24 klst.
  • Blandan er mjög mjúk og þarf því ekki að standa lengi á borðinu áður en þú spinnar.
  • Spinnið blönduna á Ice Cream.
  • Saxið Toblerone, bætið í miðju íssins og ýtið á Extras/Mix-in.

Heit Karamellusósa

  • Setjið einn poka af töggum og 2-4 msk af rjóma í pott og hitið við meðalhita.
  • Hrærið reglulega og gætið þess að sósan brenni ekki við. 
  • Ég mæli með 4 msk. af rjóma svo sósan harðni ekki á ísnum, en það er smekksatriði.


Smelltu hér til að skoða Ninja CREAMi ísvélar á elko.is.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.