Fróðleikur

Haltu utan um það sem skiptir máli með SmartTag2

6.01.2026

Með staðsetningarnemanum frá Samsung getur þú haldið utan um það sem skiptir þig mestu máli, hvort sem það eru lyklar, veski eða önnur persónuleg verðmæti. Samsung Galaxy SmartTag2 tengist SmartThings forritinu í snjallsímanum þínum og nýtir SmartThings Find til að hjálpa þér að staðsetja týnda hluti, jafnvel utan Bluetooth drægis.


Hönnun fyrir daglegt líf

Ný, hringlaga hönnun SmartTag2 gerir það auðvelt að festa staðsetningartækið á ýmsa hluti án þess að það sé fyrirferðamikið, auk þess sem IP67 ryk- og vatnsvörn tryggir aukið þol í daglegri notkun.

** IP6X – Vörn gegn því að ryk komist i viðkvæm svæði. IPX7 Vatnsvörn (1 metri í 30 mín)


Rafhlaða sem endist

SmartTag2 er með glænýja rafhlöðu sem endist í allt að 700 daga með orkusparnaðarstillingu, en allt að 500 daga í venjulegri notkun. Þetta þýðir að þú þarft sjaldnar að skipta um rafhlöðu og getur treyst á að staðsetningartækið sé virkt þegar á þarf að halda.


Frammistaða sem skiptir máli

Samsung Galaxy SmartTag2 nýtir bæði Bluetooth Low Energy (BLE) og Ultra Wideband (UWB) tækni til að gera leit að týndum hlutum einfaldari og nákvæmari. Bluetooth er notað til almennrar leitar, á meðan SmartThings Find netið nýtir nálæg Galaxy tæki á nafnlausan hátt til að hjálpa við að finna hlutinn jafnvel þegar hann er utan Bluetooth drægis.

Þegar þú ert kominn nær hlutnum tekur UWB tæknin við, sem mælir bæði fjarlægð og stefnu með mikilli nákvæmni. Með Compass View leiðsögn í SmartThings Find forritinu færðu sjónrænar vísbendingar á skjánum sem sýna í hvaða átt þú átt að leita.

Einnig er hægt að láta SmartTag2 gefa frá sér hljóð í gegnum SmartThings forritið, sem einfaldar leit þegar hluturinn er nálægt.


Lost Mode

Lost Mode er nýr og gagnlegur eiginleiki sem gerir þér kleift að setja inn tengiliðaupplýsingar á merkið. Ef einhver finnur hlutinn getur hann skannað SmartTag2 með síma og séð skilaboð og upplýsingar sem þú hefur sett inn, sem eykur líkur á að gripurinn komi aftur til þín.


Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy SmartTag2 á elko.is

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.