Fróðleikur

MacBook Neo: Öflug nýjung í MacBook fjölskyldunni

20.03.2026

MacBook Neo er ný viðbót í MacBook fjölskylduna. Hún býður upp á öfluga eiginleika á hagstæðu verði og hefur vakið athygli fyrir litríka og endingargóða hönnun. Tölvan er létt og þunn og gerð úr endurunnu áli. Hún er hönnuð með bæði útlit og þægindi í huga og er tilvalin fyrir daglega notkun, hvort sem það er fyrir nám, vinnu eða afþreyingu.

Macbook Neo er væntanleg í apríl. Þú getur skráð þig á ‘láttu mig vita’ lista á vöruspjaldi vörunnar.

Afköst sem halda í við daginn

MacBook Neo er knúin áfram af A18 Pro-örgjörva sem skilar hröðum og áreiðanlegum afköstum. Örgjörvinn er hannaður til að keyra gervigreindareiginleika, þar á meðal Apple Intelligence. Tölvan ræður vel við dagleg verkefni, hvort sem þú ert að vinna í töflureiknum, nota gervigreind til að draga saman fyrirlestrarglósur eða spila Apple Arcade leiki. Þetta er fjölhæf fartölva sem er tilbúin að fylgja þér hvert sem er, sama hvað dagurinn ber í skauti sér.

Sjáðu. Heyrðu. Upplifðu.

Með litríkum 13″ Liquid Retina-skjá færðu bjarta, nákvæma og skýra liti sem gera upplifunina raunverulega. Skjárinn styður allt að einn milljarð lita, hefur 3.6 milljónir pixla sem skila einstakri upplausn og allt að 500 nita birtu, þannig efnið lítur vel út við allar aðstæður.

MacBook Neo er með tveimur hátölurum sem styðja rýmishljóð og Dolby Atmos, sem skilar ríkum hljómi þegar þú hlustar á tónlist, horfir á þætti eða kvikmyndir.

Tveir hljóðnemar draga úr bakgrunnshávaða og einangra röddina þína, þannig að þú heyrir skýrt í öðrum og þeir heyra vel í þér í símtölum og myndfundum.

Hvort sem þú ert á fyrirlestri, í vinnunni eða að slaka á með þætti um kvöldið heldur MacBook Neo auðveldlega í við þig. Allt að 16 klukkustunda rafhlöðuending gerir þér kleift að vinna, horfa og hlusta lengur án þess að þurfa að leita að hleðslutæki.

1080p FaceTime HD myndavélin skilar skýrri og náttúrulegri mynd í myndsímtölum, svo þú lítur vel út hvort sem þú ert í fjarfundi eða að spjalla við vini.

macOS

MacBook Neo kemur með macOS, stýrikerfi Apple sem er þekkt fyrir einfalt viðmót, öryggi og áreiðanleika. Með öðrum Apple tækjum verður upplifunin enn betri, til dæmis með AirDrop til að senda skrár og Handoff til að halda áfram verkefnum á milli tækja.

Innbyggð Apple öpp

MacBook Neo kemur með fjölda innbyggðra Apple forrita sem margir kannast við nú þegar. Þar má finna samskiptaforrit eins og Messages, Mail og FaceTime, sköpunarforrit á borð við iMovie, Voice Memos og Photos, auk framleiðniappa eins og Keynote, Pages og Numbers. Einnig fylgja gagnleg öpp til daglegrar notkunar, til dæmis Safari og Passwords, ásamt afþreyingu eins og Apple Arcade. Í gegnum App Store getur þú einnig fundið og hlaðið niður þúsundum annarra forrita fyrir vinnu, sköpun, nám og afþreyingu.

Aðlagaðu tölvuna að þínum þörfum

Þú getur auðveldlega sérsniðið MacBook Neo að þínum smekk, til dæmis með ljósum eða dökkum ham, litum á táknum og með því að stilla Dock og verkfæraslár í þá stærð sem hentar þér best.

Apple Intelligence

MacBook Neo styður Apple Intelligence, gervigreindarlausn Apple sem er samþætt í macOS og hjálpar til við að einfalda dagleg verkefni. Hún getur meðal annars dregið saman texta, bætt skrif og aðstoðað við að vinna hraðar með efni í skjölum, tölvupósti og glósum.

Apple Intelligence nýtir kraft Apple Silicon og Neural Engine til að vinna úr mörgum verkefnum beint í tölvunni. Þannig er vinnslan bæði hröð og persónuupplýsingar betur varðar.

Með þessum eiginleikum verður MacBook Neo enn öflugra verkfæri fyrir nám, vinnu og daglega notkun.

Fyrir hverja hentar MacBook Neo?

MacBook Neo hentar fjölbreyttum notendum sem vilja létta og öfluga fartölvu fyrir daglega notkun. Hún er góður kostur fyrir nemendur sem þurfa áreiðanlegt tæki fyrir glósur, verkefnavinnu og netnám.

Tölvan hentar einnig vel heimilisnotendum sem nota hana til daglegra verkefna eins og netvafurs, tölvupósts og annarrar almennrar tölvunotkunar. Fyrir þá sem vinna á ferðinni er létt og þunn hönnun MacBook Neo einnig mikill kostur.

Auk þess er hún frábær fyrir afþreyingu, hvort sem það er að horfa á þætti og kvikmyndir, hlusta á tónlist eða spila leiki.

Smelltu hér til að fá tilkynningu þegar varan er komin.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.