
Perlumunstur
10.11.2025Straujar þú oftar perlur en föt?
Margir eiga straujárn á heimilinu en ekki allir nota það til þess að strauja föt eða annan textíl, heldur til þess að strauja fallegar perlur sem krakkarnir hafa dundað sér við að perla.
Þú getur skoðað úrvalið af straujárnum í ELKO á elko.is.
Við höfum tekið saman nokkur skemmtileg perlumunstur sem tilvalið er vista að prenta út eða til að nota spjaldtölvu eða snjalltíma til að sýna munstrið og fara eftir leiðbeiningum.
Perlumunstur fyrir jólaskraut
Gæðastund í desember; perla, strauja og festa nýja, heimatilbúna jólaskrautið á jólatréið.

Perlumunstur með íslensku jólasveinunum
Perlaðu jólasveinana þrettán, Hægt er að sleppa lykkjunni ef það á ekki að hengja þá upp eða nota á jólatréið. Einnig er hægt að skipta út rauða litnum fyrir grænan og brúnan til að hafa meira gamladags, og þjóðlegt útlit á jólasveinunum.

Labubu perlumunstur og fleira skemmtilegt
Smelltu á myndina til að stækka og hægri smelltu til að vista mynd í A4 stærð. Tilvalið til að prenta eða nota spjaldtölvu til að sýna munstrið.

Hefur þú prófað að gera perlukubba? Smelltu á mynd fyrir neðan til að á leiðbeiningar fyrir Minecraft perluhausum, Þú perlar, straujar báðum megin og setur svo saman.

Að strauja perlur
Þegar þú straujar perlur þarftu að muna að hafa bökunarpappír yfir perlunum, fylgstu með hvenær perlurnar hafa bráðnað nóg svo þær festast saman, taktu svo perlið af perluspjaldinu, snúðu við og straujaðu einnig hina hliðina.
Smelltu hér til að skoða öll straujárn og gufugræjur í ELKO.