Fróðleikur

Samsung Galaxy Buds3 FE með þægilegri hljóðupplifun

18.12.2025

Samsung Galaxy Buds3 FE eru þráðlaus í-eyra heyrnartól, sérstaklega hönnuð með daglegt líf í huga. Heyrnartólin sameina gott hljóð, frábæra tengingu og þægilega hönnun og henta vel þá sem vilja njóta tónlistar, podcasta og símtala með skýru hljóði, hvort sem er á ferðinni, í hreyfingu eða heima við.

Virk hljóðeinangrun og umhverfishljóðastilling

Galaxy Buds3 FE eru búin virkri hljóðeinangrun (ANC) sem dregur úr truflandi umhverfishljóðum og gerir þér kleift að einbeita þér betur að því sem þú ert að hlusta á. Heyrnartólin henta því vel í almenningssamgöngum, á skrifstofum eða þegar þú vilt slaka á án truflana.

Þegar þú þarft að vera meðvitaður um umhverfið er einfalt að skipta yfir í umhverfishljóðsstillingu, sem hleypir hljóðum í kringum þig inn án þess að þú þurfir að taka heyrnartólin úr eyrunum. Þetta gerir notkunina bæði öruggari og þægilegri í daglegu lífi.

Þægindi í fyrirrúmi

Heyrnartólin sitja vel í eyrunum og áhersla er lögð á þægindi og góðan hljóm. Galaxy Buds3 FE eru með nýrri „blade“ hönnun og endurhönnuðum eyrnatöppum sem halda heyrnartólunum örugglega á sínum stað.

Þessi hönnun hentar vel fyrir lengri hlustun, hvort sem þú ert að vinna, ferðast eða hreyfa þig, án þess að heyrnartólin verði óþægileg eða fyrirferðarmikil.

Rafhlaða sem endist vel

Með Galaxy Buds3 FE færðu allt að 30 klukkustunda heildarhlustun þegar hleðsluhólfið er notað með.

Persónulegur túlkur í eyranu

Þegar Galaxy Buds3 FE eru tengd samhæfum Samsung Galaxy snjallsíma er hægt að nýta túlkun eða Live Translate til að heyra þýðingar beint í heyrnartólunum. Þetta getur komið sér vel í ferðalögum eða í samtölum við fólk sem talar annað tungumál.

Með einföldum snertihreyfingum á heyrnartólunum er hægt að virkja hlustunarstillingu, þar sem þýðingar berast beint í eyrað, eða samtalsstillingu sem auðveldar samskipti augliti til auglitis.

Stöðug tenging og einföld stjórnun

Galaxy Buds3 FE tengjast snjalltækjum með Bluetooth 5.4, sem tryggir stöðuga og áreiðanlega tengingu. Heyrnartólin tengjast fljótt þegar þau eru tekin úr hleðsluhólfinu og eru einföld í notkun.

Með snertistýringum er auðvelt að stjórna spilun, svara símtölum eða skipta á milli stillinga, án þess að taka símann upp úr vasanum.

Ryk- og vatnsvörn

Heyrnartólin henta vel fyrir mismuandi aðstæður, án þess að hafa áhyggjur af endingunni þökk sé IP54 ryk- og vatnsvörninni. Með þessari vörn þola þau bæði svita og vatnsskvettur.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.