Fréttir Fróðleikur

Samsung Galaxy S25 Ultra

23.01.2025

Samsung Galaxy S25 Ultra er fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Myndavélin er nú með brautryðjandi notkun á gervigreind og enn betri vélbúnað fyrir betri aðdrátt og aukin gæði. Að vanda er Galaxy S25 Ultra með innbyggðan S-penna sem er vatnsvarinn samkvæmt IP68-vottun.

Ennþá snjallari með Galaxy AI

S25 línan brýtur blað með framúrstefnulegri nýtingu gervigreindar til þess að auka notagildi símans meðal annars með rauntímaþýðingum milli tungumála og enn betri ljósmyndum og myndskeiðum.

Persónulegur aðstoðarmaður

Tilbúin/n fyrir þinn eigin persónulega aðstoðarmann? Síminn getur gefið þér dagslega skýrslu um hvað þú ert með planað þennan dag og gefið þér áminningu á fund og aðra viðburði.

Samsung Galaxy S25 Ultra er búinn nýjustu útgáfu af One UI 6.5, sem er aðlöguð ofan á Android 15. Meðal helstu nýjunga eru snjallir eiginleikar sem nýta gervigreind til að einfalda notendaupplifunina, þar á meðal raddstýrðir aðstoðarmenn og sjálfvirk stjórnun á forritum og tilkynningum. Að auki hefur síminn innbyggt stuðning fyrir geimbyggða nettengingu, sem tryggir samband jafnvel á afskekktum svæðum.

Tungumálaþýðing í beinni

Fáðu beina tungumálaþýðingu í næsta símtali þínu. Galaxy AI hjálpar þér að eiga samskipti í síma á öðrum tungumálum. Bein þýðing virkar einnig í skilaboðum.

*Þýðing í beinni (e. Live Translate) krefst nettengingar og Samsung reikningsinnskráningar. Þýðing í beinni er aðeins fáanlegt í foruppsettu Samsung símaforritinu. Ákveðin tungumál gætu krafist tungumálapakka til að sækja. Íslenska er ekki í boði í beinni þýðingu en þú getur t.d. látið þýða spænsku yfir í ensku. 

Hjálparkokkur

Sástu grinilegan rétt? Taktu mynd og spurðu símann hvaða réttur er í myndinni. Síminn svarar og getur bætt uppskriftinni í uppskriftasafnið þitt ásamt því að geta mælt með víni sem parast vel með réttnum.

Þú getur einnig tekið mynd af því sem er til í ísskápnum þínum og fengið hugmyndir að uppskriftum sem nota hráefnin sem þú átt til.

Dragðu hring um það, finndu það, einfalt og fljótlegt

Leitaðu á nýjan máta með ‚Circle to Search með Google‘. Taktu mynd, settu hring utan um viðfangsefnið og leitaðu á Google. Þetta er ný sjónræn leið til að finna það sem þú ert að leita að.


Myndavélin

Myndavélin í Galaxy S25 Ultra er samansett úr fjórum myndavélum; 200Mp Wide-angle, 50MP Ultra Wide, 10MP 10x optical zoom + 100x Space Zoom og 10Mp 3x Optical zoom. Auk þess hjálpar gervigreindin að betrumbæta myndgæði. Einnig er S25 Ultra með besta Quad Tele aðdrátt hingað til, þú getur núna notað 2x, 3x, 5x og jafnvel 10x aðdrátt með Optical Quality aðdrætti.

Taktu flottar myndir og myndbönd óháð birtuskilyrðum

Taktu bjartar, litríkar, skýrar myndir og myndbönd, jafnvel í myrkri með AI ISP. Andlitsmyndir eins og þig hefur dreymt um og fáðu skýrar myndir með 2x eða jafnvel 3x aðdrátti. Hver fjarlægð getur verið eins skýr og dagur, þó það sé tæknilega nótt.

Myndvinnsla með gervigreind

Nýttu þér töfra AI myndvinnslu. Nú getur þú fullkomnað myndirnar þínar áreynslulaust og tryggt að hver ljósmynd fær að skína skært. En það er ekki allt, þú getur líka breytt bakgrunni og látið óæskilega hluti hverfa ásamt því að tryggja að enginn er að blikka augunum þegar þú tekur hópmynd.


Hönnun

Galaxy S25 Ultra heldur í klassískt en samtímalegt útlit Samsung með mjúkum línum og minimalískum stíl. Skjárinn er 6,9 tommu Dynamic AMOLED 3X með 4K upplausn og 120Hz endurnýjunartíðni. Þessi skjár tryggir ótrúlega skýra mynd, djúpa liti og slétta hreyfingu, hvort sem þú ert að skoða myndbönd, spila leiki eða vinna í forritum.

S25 Ultra er sterkbyggður með Titanium ramma.

S-penninn

Glósaðu á skjáinn hvenær sem er eða nýttu pennann til að fínpússa myndefnið þitt áður en þú deilir því. S Penninn hefur marga eiginleika upp á að bjóða og virkar bæði sem penni og pensill sem opnar á nýjar leiðir til þess að skapa.


Rafhlaðan

Rafhlaðan er 5000 mAh og styður 65W hraðhleðslu, sem þýðir að hægt er að hlaða símann upp í 50% á innan við 20 mínútum.

Krafurinn

S25 Ultra er knúinn af nýjasta Snapdragon 8 Elite. Síminn kemur með allt að 16 GB vinnsluminni og 256GB, 512GB eða 1 TB geymsluplássi.

Gríðarlega öflugir örgjörvar tryggja mjúka og kraftmikla vinnslu S25 Ultra hvort sem er í leik eða starfi.
Geta og afl síma ræðst af mörgum þáttum. Samsung Galaxy S25 Ultra er keyrður á Snapdragon 8 Elite fyrir Galaxy, hraðasti og öflugasti örgjörvi í Samsung hingað til.

Meiri afkastageta og styttri svartímar. En það er ekki bara örgjörvinn sem gerir þennan síma hraðan og öflugan, hann er einnig með 12GB vinnsluminni og stillingar á forritum hjálpa við að gera símann öflugri.


Samanburður á Galaxy S25, S25+ og S25 Ultra


Hvað er í kassanum?

Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy S25 Ultra á elko.is.

Helstu tæknileg atriði:

Hönnun og skjár:

  • 6,9 tommu Dynamic AMOLED 3X skjár með 120Hz endurnýjunartíðni.
  • 4K upplausn og S Pen stuðningur fyrir fjölhæfni.

Myndavélar:

  • 200 MP aðalmyndavél með „AI Photo Genius“ tækni.
  • 50 MP Ultra-Wide og 50/10 MP telephoto með 10x optískum aðdrætti.
  • 12MP sjálfumyndavél
  • Yfirburðar ljósmyndunargeta fyrir áhugafólk um myndir.

Afköst og rafhlaða:

  • Allt að 16 GB vinnsluminni og 512GB eða 1TB geymslupláss.
  • 5000 mAh rafhlaða með 65W hraðhleðslu.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.