Fróðleikur

Shark FlexStyle hármótunartækið

14.08.2023

Shark Flexstyle er bæði hárþurrka og hármótunartæki sem auðveldar þér að gera alla daga að góðum hárdögum. Shark Flexstyle hjálpar þér að móta hárið eins og þú vilt með fimm mismunandi hausum en með einum snúning breytist Shark FlexStyle úr öflugri hárþurrku í 5-í-1 hármótunartæki sem krullar, sléttir, mótar, burstar og lyftir hárinu. Þetta þýðir að nú þarftu einungis eina græju í staðinn fyrir nokkrar og sparar því bæði pláss og tíma.

Shark Flexstyle er einungis 700 g að þyngd og er græjan afar létt og þægileg í notkun. Fyrirferðarlítil hönnun gerir hana að fullkomnum ferðafélaga en annars kemur tækið í boxi sem auðvelt er að fara með hvert sem er. Einnig fylgir græjunni handhæg hárgreiðslubók, full af ráðum, brellum og innblæstri – svo þú getir stílað hárið á þér með stæl.

Þó að FlexStyle sé léttur og nettur, er hann fullur af krafti og skilar frábærum niðurstöðum hratt. Fullkomið til að flýta fyrir morgunrútínu þinni. Náðu mestum raka úr hárinu í hárþurrkuham og bættu síðan haus við til að móta hárið að vild en græjan er með 3 hita- og hraðastillingum, sem veita þér fulla stjórn.

Shark Flexstyle mælir hita 1.000 sinnum á sekúndu og tryggir þannig stöðugt lofthitastig og þar með veldur græjan engum hitaskemmdum á hárinu. Einnig er tækið með cool shot stillingu en kælingin hjálpar við að festa hárgreiðsluna svo hún endist lengur, jafnvel allan daginn.

Hvernig virka aukahlutirnir sem fylgja Shark Flexstyle?

Rúllur
Breyttu því hvernig þú krullar hárið. Coanda tæknin vefur hárinu sjálfkrafa í kringum hármótunartækið með því að nota loft sem dregur hárið að sér og krullar það um leið. Horfðu á töfrana gerast þegar þú setur hárið nálægt FlexStyle og það krullast á nokkrum sekúndum.

Paddle bursti
Sléttu hárið á meðan það þornar til að flýta fyrir rútínu þinni. Eyddu minni tíma í stíl og meiri tíma í að lifa. Sléttir burstar mynda spennu til að slétta hárið og bæta við glans – fullkomið fyrir sléttan stíl.

Sléttunarbursti
Burstinn þurrkar, greiðir og sléttir hárið þitt samtímis.

Kringlóttur bursti sem gefur lyftingu
Burstinn þurrkar, greiðir og gefur hárinu meiri lyftingu og meira líf.

Krulludreifari
Markvisst hannaður dreifari lyftir og leyfir náttúrulegu krullunum þínum að njóta sín með útdraganlegum stöngum til að ná til og lyfta rótum. Hraðþurrkun frá rót til enda.


Smelltu hér til að skoða Shark FlexStyle á elko.is

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.