
Tölvuleikjahaustið 2026 – þessir leikir eru á leiðinni
24.08.2026Það er óhætt að segja að síðari helmingur ársins 2026 verði ansi góður fyrir tölvuleikjaspilara. Næstu mánuðir eru stútfullir af stórum leikjum og það ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Star Wars, Batman, Wolverine, Silent Hill og Call of Duty mæta öll til leiks áður en árið er úti. Svo er auðvitað einn ákveðinn leikur frá Rockstar sem fólk hefur beðið eftir í meira en áratug.
Við tókum saman nokkra af mest spennandi tölvuleikjum 2026 sem koma út næstu mánuði. Nú er bara að finna pláss í dagskránni – og mögulega byrja að losa um pláss á harða disknum.
Grand Theft Auto VI – 19. nóvember
Við verðum eiginlega að byrja á þeim stóra.
Það eru liðin þrettán ár frá því Grand Theft Auto V kom fyrst út og loksins er komið að næsta kafla. Í Grand Theft Auto VI snýr Rockstar aftur til Vice City, nú sem hluta af hinu stóra Leonida-fylki. Að þessu sinni fylgjumst við með Jason og Lucia sem lenda fljótt á kolröngum stað eftir að tiltölulega einfalt rán fer illa.
Rockstar lofar stærsta og metnaðarfyllsta Grand Theft Auto leiknum til þessa og miðað við það sem hefur sést af Vice City hingað til verður erfitt að halda aftur af væntingunum.
Kemur út 19. nóvember 2026 á PlayStation 5, Xbox Series X|S.
Call of Duty: Modern Warfare 4 – 23. október
Það líður varla ár án þess að Call of Duty mæti til leiks og árið 2026 er engin undantekning.
Modern Warfare 4 heldur áfram sögu Captain Price en að þessu sinni brýst út stríð á Kóreuskaga sem vindur hratt upp á sig. Herferðin tekur okkur meðal annars í skotgrafir í Kóreu, götubardaga í New York, eftirför í París og næturaðgerðir í Mumbai.
Auðvitað er fjölspilunin einnig á sínum stað ásamt DMZ, þannig að þeir sem hafa eytt ófáum kvöldstundum í Call of Duty ættu að vita nokkurn veginn hvað bíður þeirra.
Kemur út 23. október 2026 á PlayStation 5, Xbox Series X|S, PC og Nintendo Switch 2.
Marvel’s Wolverine – 15. september
Insomniac Games hafa þegar sýnt að þau kunna vel með ofurhetjur að fara eftir Spider-Man leikina og nú fær Wolverine loksins sviðsljósið.
Logan er ekki beint þekktur fyrir að leysa vandamál með rólegu samtali og því verður Wolverine töluvert grófari en Spider-Man leikirnir. Sagan ferðast meðal annars til Kanada, Japan og Madripoor og við fáum að hitta kunnugleg nöfn úr X-Men heiminum á borð við Mystique og Sabretooth.
Ef Spider-Man leikir Insomniac eru einhver vísbending ætti hér að vera á ferðinni einn stærsti PlayStation leikur ársins.
Klærnar eru allavega tilbúnar.
Marvel’s Wolverine kemur út 15. september á PlayStation 5.
The Blood of Dawnwalker – 3. september
Vampírur, svartidauði og Evrópa á 14. öld. Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis?
The Blood of Dawnwalker er nýr opinn hlutverkaleikur frá Rebel Wolves þar sem þú stýrir Coen, ungum manni sem hefur breyst í svokallaðan Dawnwalker. Hann er mannlegur á daginn en vampíra á nóttunni og þarf að nýta báðar hliðar sínar til að bjarga fjölskyldu sinni.
Val spilarans hefur áhrif á söguna og heimurinn breytist eftir því hvað þú ákveður að gera. Það ætti því að vera nóg að bíta í fyrir þá sem elska stóra RPG-leiki þar sem ákvarðanir skipta raunverulega máli.
Kemur út 3. september á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC.
Control: Resonant – 24. september
Remedy hefur aldrei verið hrætt við að gera hlutina aðeins öðruvísi og Control var líklega eitt besta dæmið um það.
Control: Resonant heldur áfram þessum stórfurðulega heimi þar sem yfirnáttúrulegir kraftar, dularfull fyrirbæri og veruleikinn sjálfur virðast eiga í stöðugum ágreiningi um hvernig hlutirnir eigi eiginlega að virka.
Fyrri leikurinn blandaði saman hröðum bardögum, yfirnáttúrulegum kröftum og einhverju allra skemmtilegasta umhverfi sem sést hefur í hasarleik. Þeir sem féllu fyrir furðulegum heimi Control ættu því klárlega að fylgjast með þessum.
Control: Resonant kemur út 24. september.
Silent Hill: Townfall – 24. september
Það verður greinilega ekkert sofið þann 24. september.
Silent Hill: Townfall er sjálfstæð saga innan Silent Hill-heimsins og gerist á hinni einangruðu skosku eyju St. Amelia. Hér er áherslan aftur á sálfræðilegan hrylling og leikurinn er spilaður frá fyrstu persónu.
Silent Hill hefur undanfarin ár gengið í gegnum ákveðna endurkomu og Townfall virðist ætla að halda þeirri vegferð áfram, þó með aðeins öðruvísi nálgun.
Slökkvið ljósin, setjið heyrnartólin á og sjáið síðan eftir þeirri ákvörðun sirka tíu mínútum síðar.
Kemur út 24. september á PlayStation 5 og PC.
LEGO Batman: Legacy of the Dark Knight – 18. september
Batman snýr aftur í LEGO-formi og það er eiginlega erfitt að kvarta yfir því.
LEGO Batman: Legacy of the Dark Knight tekur okkur aftur til Gotham þar sem Batman þarf væntanlega að gera það sem Batman gerir best: berja bófa, leysa þrautir og líta mjög alvarlega út á meðan allir í kringum hann eru úr LEGO-kubbum.
LEGO-leikirnir hafa lengi verið frábærir fjölskylduleikir og Batman passar einstaklega vel inn í þennan heim. Þetta gæti því verið tilvalinn leikur fyrir yngri spilara – eða okkur hin sem þykjumst vera að kaupa hann fyrir börnin.
Nintendo Switch 2 útgáfan kemur 18. september 2026. Leikurinn er einnig fáanlegur á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC.
Fire Emblem: Fortune’s Weave – 17. september
Nintendo Switch 2 fær líka einn stóran hlutverkaleik í september.
Fire Emblem: Fortune’s Weave heldur áfram taktískri RPG-hefð seríunnar þar sem hver ákvörðun á vígvellinum getur skipt máli. Að þessu sinni fléttast saman sögur fjögurra aðalpersóna og spilarar geta skipt á milli þeirra innan sömu spilunar.
Á milli bardaga gefst síðan tími til að kynnast persónunum betur, byggja þær upp og undirbúa næstu átök. Þetta er með öðrum orðum mjög Fire Emblem – og það er alls ekki slæmur hlutur.
Ef þú ert einn af þeim sem getur eytt korteri í að ákveða hvert ein persóna á að færa sig í næstu umferð er líklegt að september verði góður mánuður.
Fire Emblem: Fortune’s Weave kemur út 17. september á Nintendo Switch 2.
Star Wars: Zero Company – 27. ágúst
Star Wars og XCOM hljómar eiginlega eins og samsetning sem hefði átt að gerast fyrir löngu.
Zero Company er taktískur, umferðaskiptur leikur sem gerist undir lok Clone Wars. Þú stýrir Hawks, fyrrum liðsforingja lýðveldisins, sem leiðir ansi óhefðbundinn hóp málaliða í verkefni sem gæti haft áhrif á örlög vetrarbrautarinnar.
Þú þarft ekki bara að hugsa um hvað gerist á vígvellinum heldur einnig byggja upp höfuðstöðvar, safna upplýsingum og ákveða hvernig teymið þitt þróast. Hópurinn getur meðal annars innihaldið málaliða, vélmenni og meira að segja Jedi.
Fyrir Star Wars-aðdáendur sem vilja aðeins meiri herkænsku með geislasverðunum gæti þetta verið ansi spennandi pakki.
Kemur út 27. ágúst á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC.
Star Wars: Galactic Racer – 6. október
Ef Zero Company er fyrir Star Wars-aðdáandann sem vill sitja og hugsa er Galactic Racer fyrir þann sem vill bara stíga bensínið í botn.
Galactic Racer gerist eftir fall Veldisins þar sem ólöglegar kappaksturskeppnir hafa orðið að stórskemmtun víðs vegar um vetrarbrautina. Hér keppir þú á plánetum á borð við Jakku og Tatooine á alls konar Star Wars-farartækjum.
Leikurinn sækir augljóslega innblástur í klassíska Star Wars-kappakstursleiki en blandar því saman við nútímalegri uppbyggingu. Í aðalherferðinni velur þú mismunandi keppnir, safnar uppfærslum og reynir að halda þér í keppninni. Klessirðu of oft er ferðinni lokið og þá þarf einfaldlega að byrja aftur.
Nú vantar okkur bara podracing stýri.
Star Wars: Galactic Racer kemur út 6. október á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC.
Það verður sem sagt nóg að gera fram að jólum.
Hvort sem þú vilt sökkva þér í Vice City, berjast við vampírur, eltast við glæpamenn sem Wolverine, skipuleggja Clone Wars-aðgerðir eða einfaldlega keyra allt of hratt um Jakku ætti eitthvað að vera hér fyrir þig.
Stóra spurningin er kannski ekki hvaða leik þú ætlar að spila.
Heldur hvernig þú ætlar að finna tíma til að spila þá alla.