
Flippaði Galaxy Z Flip8
29.07.2026Nýjustu Flip og Fold símanir voru kynntir af Samsung 22.júlí. Hér höfum við tekið saman helstu punkta um Galaxy Z Flip8.

Galaxy Z Flip8 frá Samsung er ennþá nettari samanborið við fyrri útgáfur, en hann 8gr léttari en Z Flip7 og passar fullkomlega í vasann. Síminn er búinn 12 GB vinnsluminni og Exynos 2600 örgjörva sem sér um að keyra öpp og verkefni áreynslulaust. Hann styður Dual SIM (1x SIM og 1x eSIM) og er með IP48 vörn gegn vatni og ryki, sem gerir hann betur í stakk búinn fyrir daglega notkun.
Sveigjanlegur sími
Flippuð hönnun

Galaxy Z Flip8 er þynnsta og léttasta Flip-útgáfan til þessa. Hann er þar af leiðandi þægilegri í vasanum og í daglegri notkun, þar sem hann tekur minna pláss og er auðveldari í meðförum.
Síminn vegur aðeins 180g og er 6.1 mm á þykkt þegar hann er opnaður. Þegar síminn er lokaður er hann 13.1 mm á þykkt.
Samanbrjótanlegt form með stærri skjá

Þegar hann er samanbrotinn nýtist 4,1″ ytri skjárinn til að skoða tilkynningar, svara skilaboðum og stjórna helstu aðgerðum án þess að opna símann. Skjárinn umlykur bakmyndavélina sem gerir notkunina einfaldari og fljótlegri þegar þú ert á ferðinni. Í samanbrotnu formi er síminn jafnframt nettari og fyrirferðarminni, sem gerir hann þægilegri í meðförum án þess að missa úr helstu eiginleikum.
Þegar síminn er opnaður færðu 6,9″ aðalskjá sem gefur meira pláss fyrir efni, hvort sem það eru skilaboð, myndbönd eða samfélagsmiðlar. Stærri skjárinn gerir það þægilegra að skoða efni, skrifa og vinna í öppum í daglegri notkun.
Skjárinn að framan er 4,1‘‘ Super AMOLED skjár en innri skjárinn er 6,9‘‘ Dynamic AMOLED 2x FHD+ 1-120Hz.

Efnisval og ending

Síminn er úr vönduðum og endingargóðum efnum eins og Armor Aluminum ramma og Corning Gorilla Glass á ytri skjánum. Þetta eykur styrk og verndar gegn daglegu sliti, til dæmis rispum og höggum sem geta komið upp í daglegri notkun.
Hönnunin er einnig þróuð með samanbrjótanlega formið í huga, þar sem lömin og skjárinn eru hannaðir til að þola endurtekna opnun og lokun án þess að það hafi áhrif á notkun eða upplifun. Þetta gerir símann betur í stakk búinn fyrir daglega meðferð yfir lengri tíma.
Litaúrval

Galaxy Z Flip8 kemur í skemmtilegum litum. Hönnunin er stílhrein og er áhersla lögð á einfalt og nútímalegt útlit. Þetta gerir það að verkum að síminn fellur vel að mismunandi stíl og notkun.
Myndavél og efnissköpun

Galaxy Z Flip8 er búinn 50 MP (Wide 2x Optical Zoom) aðalmyndavél og 12 MP víðlinsu, sem gerir þér kleift að taka skýrar myndir við mismunandi aðstæður.
Handfrjáls myndataka
Sambrjótanleg hönnun opnar nýjar leiðir fyrir efnissköpun og myndatöku. Með FlexCam er hægt að stilla símanum upp og taka myndir eða myndbönd án þess að halda á honum. Z Flip8 gerir þér kleift að nota símann eins og þrífót, sem gefur þér meira fresli í tökuferlinu.

Þú getur tekið sjálfur með aðalmyndavélinni og séð þig á ytri skjánum, sem gerir þér kleift að ná betri gæðum og meiri stjórn á myndinni. Tímastillirinn (e. timer) gerir það auðveldara að ná myndum án þess að flýta sér, hvort sem þú ert einn eða með öðrum.
Myndvinnsla með gervigreind
Náðu fram frábærri myndvinnslu með gervigreind (AI) og örfáum orðum. Lýstu einfaldlega þeim breytingum sem þú vilt gera og Galaxy AI bætir myndina fyrir þig. Fylgstu með myndinni öðlast nýtt líf á örskotsstundu og berðu síðan upprunalegu myndina og þá breyttu saman hlið við hlið á stóra aðalskjánum
Fleiri sjónarhorn og betri yfirsýn
Með eiginleikum eins og Dual Recording og Dual Preview getur bæði þú og sá sem þú ert að taka mynd af séð hvernig myndin lítur út í rauntíma. Þetta gefur meiri stjórn á myndatökunni og minnkar þörfina á að taka efnið aftur.
Galaxy Z Flip8 hentar vel fyrir þá sem taka mikið af myndum og myndböndum. Þú getur auðveldlega breytt sjónarhorni, tekið upp efni hands-free og unnið með símann í mismunandi stöðum. Hvort sem það er fyrir TikTok, Instagram eða einfaldlega myndbönd úr daglegu lífi, verður ferlið einfaldara og þægilegra.
Stöðug myndataka
Myndavélin styður stöðuga myndbandsupptöku sem hjálpar til við að halda myndinni jafnvægi, jafnvel þegar þú ert á hreyfingu.
Þetta hentar vel fyrir daglegt efni, vlogg og myndbönd þar sem þú vilt halda flæðinu án þess að þurfa aukabúnað.
Settu þinn svip á símann
Stilltu innri og ytri skjáinn eins og þú vilt hafa hann. Þú getur valið þína mynd, dagatal, veðurspá og fleira til að birta á ytri skjánum. 4,1 tommu Super AMOLED ytri skjárinn er með 60-120 Hz endurnýjunartíðni og hámarksbirtu upp á 2600 nit.
Gervigreind í daglegri notkun
Galaxy Z Flip8 kemur með Galaxy AI eiginleikum sem styðja við daglega notkun. Með einum smelli vaknar AI-aðstoðarmaður til lífsins sem hjálpar þér við skipulagningu, að leita og þýða í rauntíma. Einnig er hægt að nýta sér rauntímaþýðingar í símtölum og textavædd símtöl með Live Translate og Text Call.
AI er einnig hluti af myndavélinni, þar sem hann hjálpar til við að bæta dýpt, lýsingu og smáatriði í myndum. Þetta sést til dæmis í portrettstillingum þar sem bakgrunnur er mýktur á náttúrulegan hátt og viðfangsefnið haldið skýru.
Rafhlaða sem endist yfir daginn
Galaxy Z Flip8 er hannaður fyrir daglega notkun með öflugum örgjörva og rafhlöðu sem endist vel yfir daginn. Hann er búinn Exynos 2600 örgjörva sem sér um að keyra öpp og myndvinnslu áreynslulaust, hvort sem þú ert að taka myndir, nota samfélagsmiðla eða skipta á milli verkefna.

Rafhlaðan er 4300 mAh og styður bæði hraðhleðslu og þráðlausa hleðslu, sem gerir það auðveldara að halda símanum gangandi yfir daginn. Þannig geturðu hlaðið hann fljótt þegar þarf og haldið áfram notkun án mikillar truflunar.

Hvað fylgir í kassanum?

Í kassanum færðu
- Galaxy Z Flip8 símann
- USB-C hleðslusnúru
- SIM-nál
Athugið að hleðslukubbur fylgir ekki.
Smelltu hér til að skoða Z Flip8.