Fréttir Fróðleikur

Galaxy Buds4 Pro frá Samsung

3.03.2026

Samsung Galaxy Buds4 Pro þráðlausu heyrnartólin veita hágæða hljóm með Adaptive ANC 2.0 hljóðeinangrun. Þau eru með IP57 vatnsvörn, Bluetooth 6.1 tengingu, Automatic Noise Adjustment og allt að 6 + 29 klst rafhlöðuendingu.

Hönnun

Galaxy Buds4 Pro bjóða upp á í-eyra hönnun með þægilegum silikon töppum, sem hjálpar bæði við hljóðeinangrun og langa notkun án óþæginda.

Hönnuð til að sitja vel og örugglega í eyranu, jafnvel við hreyfingu eða þjálfun. Með hjálp Wearables smáforritinu í Galaxy símum geturðu látið heyrnartólin mæla hvaða eyrnatappastærð hentar best fyrir þig og tryggja bestu hljóðgæðin og notendaupplifun.

Þú getur stjórnað margmiðlunarefni eða hljóðstyrk með vísifingrinum, án þess að taka símann upp úr vasanum eða töskunni.


Hljóðgæði

Stækkaðu hljóðsviðið þitt úr stereó í 360 hljóð, eins og þú mundir standa á leikvangi að hlusta á tónleika. Finndu hvert hljóðfæri og tón raddar í þrívídd, umkringdu þig í náttúrulegri dýpt og skýrleika. Þú heyrir ekki bara í tónlistinni, þú finnur fyrir andrúmsloftinu.

Með fyrsta flokks hágæða hljóðkerfi nær Galaxy Buds4 Pro nákæmri hávaðastjórnun. Umhverfishljóð dofna í rauntíma þar sem ‘Activie noise cancelling’ (ANC) vinnur úr og aðlagar strax hljóðeinangrun miðað við hljóð sem eru í kringum þig. Hlustaðu á Hi-Fi hljóð hvar sem þú ert.

Virk hljóðeinangrun

Galaxy Buds4 Pro bjóða upp á virka hljóðeinangrun (ANC) sem bætir upplifun þína í fjölmörgum aðstæðum:

  • Þú getur lokað úti hávaða í strætó eða í vinnurými og einbeitt þér að því sem skiptir máli.
  • Þegar þú vilt samt vera meðvitaður um umhverfið geturðu í staðinn virkjað ambient mode og fengið hljóð inn í eyrun án þess að þurfa að taka heyrnartólin úr.
  • Ef þú ert með stillt á hljóðeinangrun þekkir Buds4 mikilvæg hljóð eins og sírenur og leyfir þeim hljóðum að heyrast í gegn, loka ekki á það hljóð.

Skýrari samtöl

Buds4 Pro leggur mikla áherslu á skýrleika í símtölum. Með nýrri „Super Clear Call“ tækni og betri hljóðeinangrun finnur þú muninn þegar þú talar í síma.

  • Hljóð frá umhverfinu dregið niður, þú heyrir í viðmælananum betur
  • Skýrar raddir
  • Símtöl hljóma meira „raunverulega“ þó þú sért í hávaða (t.d. í stórborg)

Galaxy AI

Tungumálaþýðing í beinni

Fáðu beina tungumálaþýðingu í næsta símtali þínu. Galaxy AI hjálpar þér að eiga samskipti í síma á öðrum tungumálum. Einnig getur þú stillt að þú heyrir í gegnum Galaxy Bud4 Pro og getur lesið svo textan í Galaxy snjallsímanum þínum. Athugið að íslenska er ekki komið í Galaxy tungumálaþýðingu en það gæti verið raunveruleiki á næstu árum.

Hvenær nýtist þetta?

  • Á ferðalögum þegar þú vilt eiga samtöl við fólk sem talar annað tungumál
  • Í viðskiptum ef þú ert að hitta erlendan samstarfsmann
  • Í hversdagslegum aðstæðum þar sem þú vilt ekki hægja á samtalinu til að leita í þýðingarforriti.

Þessi lausn gerir það mun einfaldara og náttúrulegra að eiga samtöl á ólíkum tungumálum — nánast eins og að hafa samfélagsmiðla-tungumálakennara í eyranu!


Rafhlaðan

Á einni hleðslu endist rafhlaðan í allt að 6+29 klukkustundir með hljóðeinangrun í gangi og 6+30 klukkustundir án hljóðeinangrunar.  Galaxy Buds4 Pro koma í nýju hleðsluboxi sem er algjörlega endurhönnuð frá því hvað var með Buds3.


Þú getur tengt Galaxy Buds heyrnartólin við fleiri ein eina Galaxy vöru í einu. Þú getur þannig svarað símanum þó þú sért að hlusta á hljóð frá Galaxy Tab spjaldtölvu eða Galaxy Book fartölvu.


Með því að kinka kolli eða hrista haus getur þú brugðist hratt við, allt frá því að svara símtölum til að tala við Bixby, án þess að lyfta hendi. Segðu Buds hvað þú vilt áreynslulaust, jafnvel í aðstæðum þar sem hendurnar eru uppteknar eða þegar að er ekki góður tími til að svara símtali.


Hvað er í kassanum?

  1. Galaxy Buds4 heyrnartól. 2. Hleðslubox, 3.þrjár stærðir af eyrnatöppum

Smelltu hér til að skoða Galaxy Buds4 og Buds4 Pro á elko.is.


Samanburður

Samanburður á Galaxy Buds4 Pro, Buds4 og Buds3 Pro


Samsung Galaxy S26 + Buds4 – Frábært par

Auðvelt að para við Samsung Galaxy snjallsíma eða spjaldtölvur og ennþá auðveldara með Galaxy S26 sem er með nýtt ONE UI 8.5 stýrikerfi.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.