Börn Fréttir Fróðleikur krakkar

Garmin Bounce 2 snjallúr fyrir börn

6.01.2026

Garmin Bounce 2 er snjallúr fyrir börn sem sameinar öryggi, samskipti og hreyfingu í áreiðanlegri og einfaldri lausn sem er hönnuð með þarfir barna og foreldra í huga. Úrið veitir börnum meira sjálfstæði í daglegu lífi, á meðan foreldrar hafa yfirsýn sem stuðlar að auknu öryggi og hugarró. Bounce 2 hentar sérstaklega vel fyrir börn sem eru of ung fyrir snjallsíma og fyrir foreldra sem vilja tryggja öryggi og samskipti án stöðugrar skjánotkunar.

* Litaúrval getur verið breytilegt hjá ELKO. Ekki er tryggt að allar litir sem sýndir eru í blogginu séu fáanlegir.


Örugg samskipti

Foreldrar og börn geta sent hvort öðru textaskilaboð, símtöl og raddskilaboð með Bounce 2 og Garmin Jr.™ appinu.

Nákvæm staðsetning

Hafðu yfirsýn yfir staðsetningu barnsins þíns í rauntíma

Litríkt viðmót

Björt og litrík skjámynd


Stuðlar að öryggi og yfirsýn

Hönnun Garmin Bounce 2 er hannað með öryggi barna að leiðarljósi og veitir foreldrum þá yfirsýn sem skiptir máli í daglegu lífi.

Garmin Jr. forritið

Umjón og stillingar fara í gegnum Garmin Jr. forritið sem er sett upp í snjallsíma foreldra og tengist beint við úrið. Forritið gerir foreldrum kleift að fylgjast með daglegri notkun úrsins, ásamt því að skilgreina tengiliði, stýra tilkynningum og laga stillingar að þörfum barnsins.  

Staðsetning og yfirsýn í rauntíma

Í gegnum Garmin Jr. forritið geta foreldrar fylgst með staðsetningu barnsins í rauntíma. Innbyggð LTE-tenging í Garmin Bounce 2 gerir úrið sjálfstætt í notkun og tryggir að upplýsingar um staðsetningu berist beint í forritið. Þetta veitir aukna yfirsýn yfir ferir barnsins í daglegu lífi, til dæmis í og úr skóla eða æfingar.

Örugg samskipti án snjallsíma

Vertu í samskiptum við barnið þitt án þess að það þurfi snjallsíma. Með innbyggðri LTE-tengingu getur barnið sent og tekið á móti texta- og talskilaboðum, auk þess að hringja, eingöngu við samþykkta tengiliði sem foreldrar skilgreina í Garmin Jr.™ forritinu. Úrið styður einnig við einföld og örugg samskipti með virkni á borð við „Láttu vita af þér“, sem gerir barninu kleift að vera í sambandi á fljótlegan og öruggan hátt.

Með innbyggðum íþróttaforritum og GPS er hægt að fylgjast með hlaupum, hjólreiðum, sundi og fleiru

Með Amazon Music (áskrift nauðsynleg) geta börn hlustað á uppáhaldslögin sín

Tenging sem gefur frelsi


Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að gefa barninu snjallsíma of snemma. Með Bounce 2 barnasnallúrinu geturðu verið í sambandi við barnið þitt án síma, með tvíhliða símtölum og textaskilaboðum og á sama tíma hvatt það til að vera virkt

Tvíhliða símtöl, raddskilaboð og textaskilaboð

Allt að 2 daga rafhlöðuending milli hleðslna

Fylgstu með rauntímastaðsetningu barnsins þíns

Sterk og vatnsheld hönnun með björtum og litríkum skjá

Skólastilling slekkur á tilkynningum

Sæktu lagalista frá Amazon Music (áskrift nauðsynleg)

ÞAÐ SEM ÞÚ MUNT ELSKA

STAÐSETNING Í RAUNTÍMA

Sjáðu hvar barnið þitt er með Garmin Jr.™ appinu og fáðu tilkynningu þegar það kemur inn á eða fer út úr svæði sem þú skilgreinir. Þú getur líka óskað eftir tilkynningu ef barnið fer frá núverandi staðsetningu. Krefst LTE áskriftar hjá Garmin – Sjá hér.

SÍMTÖL OG TALSKILABOÐ

Notaðu Garmin Jr. appið til að hringja í Bounce-úr barnsins þíns og senda eða taktu á móti talskilaboðum. Þú getur einnig fengið talskilaboð með textaafriti til baka.

TEXTASKILABOÐ

Með virku áskriftarplani geta foreldrar sent textaskilaboð í Bounce 2 snjallúr barnsins í gegnum Garmin Jr. appið. Börn geta einnig búið til eigin skilaboð og svarað með lyklaborðinu í úrinu til samþykktra tengiliða .

LTE TENGING

Sestu róleg(ur) og frestaðu því að kaupa snjallsíma fyrir barnið. Bounce 2 snjallúrið sér um tenginguna sem þú þarft. Þú getur auðveldlega haft samband við barnið og fylgst með staðsetningu þess, beint í gegnum úrið. Engin þörf á að skipta um símafyrirtæki, Garmin sér um áskriftina og þú velur það áskriftarplan sem hentar best.

AÐSTOÐ

Ef barnið þarf hjálp og aðstoðareiginleikinn er virkur, geturðu verið róleg(ur) þar sem skráðir tengiliðir fá símtal og skilaboð með hlekk á LiveTrack™ staðsetningardeilingu sem sýnir hvar barnið er í rauntíma³.

SKRÁNING Á HREYFINGU, SVEFNI OG FLEIRA

Innbyggð íþróttaforrit nota GPS til að fylgjast með hlaupi, göngu og hjólreiðum hjá barninu þínu. Einnig er hægt að telja sundlengdir og skrá aðrar æfingar. Að auki getur þú fylgst með daglegum skrefafjölda og tryggt að barnið fái nægan svefn með svefnskráningu.

KLÁR Í LÍFIÐ

Barnavænir eiginleikar


RADDSTÝRING

Börn geta notað raddskipanir til að hringja í foreldri, ræsa tímamæli, athuga veður og fleira.

ÚTLIT ÚRSINS

Heillandi hönnun gerir börnum kleift að sérsníða útlit úrsins og skjámyndir svo það verði alveg þeirra eigið.

AMAZON MUSIC

Leyfðu börnunum að hlusta á uppáhaldstónlistina sína beint í úrinu eða í samhæf heyrnatól
(Amazon Music Unlimited eða Amazon Prime áskrift nauðsynleg).

STAÐFESTINGAR
ÁMINNINGAR

Barnið þitt getur „staðfest komu“ á tilteknum stað, sem sendir tilkynningu í Garmin Jr. appið.

STJÓRNAÐU ALLT AÐ 50 TENGILIÐUM

Notaðu Garmin Jr. appið til að skilgreina foreldra eða forráðamenn með fullar heimildir til að hafa samband, staðsetja eða stjórna Bounce úri barnsins.

BARNAVÆNT VEÐUR

Barnvænar veðurupplýsingar með einfaldri veðurspá hjálpa börnum að klæða sig eftir aðstæðum. Þetta felur einnig í sér viðvaranir vegna öfgaveðurs.

ENGAR TRUFLANIR

Notaðu Garmin Jr. snjallsímaforritið til að virkja skólastillingu eða „ekki trufla“ í svefni. Þar á meðal eru hljóðlausar og takmarkaðar stillingar sem koma í veg fyrir að snjallúr barnsins trufli það í skóla eða á nóttunni.

STOPPÚR OG VEKJARAR

Barnið getur notað stoppúr á úlnliðnum eða stillt vekjara og tímamæla til að minna á heimavinnu eða þegar æfingatími er búinn.

SKEMMTILEGIR LEIKIR

Bounce 2 snjallúrið býður einnig upp á skemmtilega leiki sem aðeins eru aðgengilegir á tímum sem foreldrar samþykkja. Þar á meðal eru Copycat og stærðfræðileikir sem börnin hafa gaman af.

Endalaus skemmtun í appinu


HREYFING OPNAR FYRIR ÆVINTÝRI

Farið í fræðandi ævintýri, lærið um fræga staði og leysið ráðgátur með Garmin Jr. appinu.

SPURNINGAR OG LEIKIR

Því fleiri virkar mínútur sem börnin safna, því fleiri tækifæri fá þau til að taka snöggpróf, læra æfingar og spila snertileiki og pöruunarleiki í Garmin Jr. appinu.

SAFNANLEGIR GIMSTEINAR

Þegar daglegum hreyfimarkmiðum er náð fær barnið gimsteina sem opna myndir í klippubók með minningum frá ævintýrum þeirra í Garmin Jr. appinu.

HREYFIKORT

Bounce 2 kennir börnum grunnæfingar með hreyfiþjálfunarkortum í Garmin Jr. appinu og má þá nefna fjallaklifur og fleira.

BARNASTILLING

Virkjaðu barnastillingu í Garmin Jr. appinu til að veita barninu takmarkaðan aðgang að því að fylgjast með og haka við sín eigin verkefni og skoða nýjustu verkefni í ævintýraferðinni sinni.

Aðstoð fyrir foreldra


FYLGSTU MEÐ VIRKNI

Foreldrar geta fylgst með hreyfingu, ábyrgð, svefni, heimilisverkum og fleiru í Garmin Jr. appinu.

HEIMILISVERK OG VERÐLAUN

Úthlutaðu heimilisverkum og veldu virði verðlauna í sýndarmynt. Börn geta hakað við verkefnin sín á Bounce 2 úrinu og safnað mynt í appinu sem hægt er að innleysa í verðlaun.

VINALEGAR ÁMINNINGAR

Þegar heimilisverk eru úthlutuð og áminningar tímasettar lætur snjallúr barnsins vita með tákni sem sýnir hvað þarf að gera.

VERIÐ VIRK SAMAN

Tengstu vinum barnsins og öðrum fjölskyldum í Garmin Jr. appinu. Hafðu samskipti og taktu þátt í vikulegum skrefakeppnum milli fjölskyldna.

Nánari lesning:


Verkefni, áminningar og sameiginleg markmið

Foreldrar geta sett upp verkefni, umbunir og vinalegar áminningar sem gera daglegar venjur skemmtilegri. Með sameiginlegum markmiðum, leikjum og skrefakeppnum í Garmin Jr.™ forritinu er fjölskyldunni jafnframt gert kleift að vera virkari saman.

Hannað fyrir daglegt líf barna

Úrið er með einföldu og barnvænu viðmóti, sem gerir það auðvelt í notkun fyrir börn. Það er með skýrum snertiskjá og raddstýringum (á ensku). Einnig getur barnið sérsniðið úrið með mismuandi þemum, sem gerir það persónulegt fyrir hvern og einn

Skipulag

Bounce 2 bíður upp á skemmtilega eiginleika sem nýtast vel fyrir daglegt skipulag og hjálpar barninu að halda utan um tíma og rútínar. Eiginleikarnir eru á borð við vekjaraklukku, skeiðklukku og tímamæli. Einnig er hægt að nálgast krakkavænar veðurtilkynningar sem einfaldar þeim að klæða sig eftir veðri.

Skólastilling fyrir betri einbetingu

Með skólastillingu geta foreldrar takmarkað virkni úrsins á skólatíma, annig að aðeins nauðsynlegar aðgerðir séu virkar. Þetta dregur úr truflunum, á meðan öryggi og mikilvæg tenging við foreldra helst óbreytt.

Virkni og svefn

Skráning á hreyfingu, svefni og annarri daglegri virkni veitir betri yfirsýn og hvetur til heilbrigðra venja. Með æfingakortum í Garmin Jr.™ forritinu kynnist barnið hreyfingu á skemmtilegan og jákvæðan hátt, þar sem áherslan er á leik og vellíðan fremur en skyldur.

Skemmtun í jafnvægi

Garmin Bounce 2 býður upp á leiki og afþreyingu sem tengjast virkni, auk aðgangs að Amazon Music, sem gerir úrið að skemmtilegum félaga í daglegu lífi.

Helstu eiginleikar:


LTE-tenging

Garmin Bounce 2 er búið innbyggðri LTE-tengingu sem gerir úrinu kleift að starfa sjálfstætt, án snjallsíma. LTE-tengingin styður símtöl, skilaboð og staðsetningarmiðlun og krefst áskriftar.

Bjartur snertiskjár

Með 1.2“ AMOLED snertiskjá úrið auðlesið við mismunandi birtuskilyrði . Skjárinn bíður upp á skýra birtu og lifandi liti.

Rafhlaða sem endist

Rafhlaðan endist í allt að 2 daga, en það fer eftir notkun og LTE-virkni.

Sterk og vatnsheld hönnun

Úrið er sérstaklega hannað til þess að þola daglegt líf barns og er því sterkt. Það hefur innbyggð æfingaforrit með GPS fyrir hlaup, hjól, sund og fleira. Úrið er með 5 ATM vatnsþol og má því nota í sturtu, sund eða leik í vatni.

Geymsla og aðrir eiginleikar

Garmin Bounce 2 er með 4 GB innra minni fyrir tónlist og gögn, auk innbyggðrar GPS-staðsetningar, snertistýringar og annarra tæknilegra eiginleika sem styðja við örugga og notendavæna upplifun.


Nánari upplýsingar um Garmin Bounce 2 snjallúrið er að finna á elko.is

* Litaúrval getur verið breytilegt hjá ELKO. Ekki er tryggt að allar litir sem sýndir eru í blogginu séu fáanlegir.

Deildu með vinum

ELKO PÓSTLISTINN

Skráðu þig og fáðu tilkynningar um tilboð, fræðsluefni og ELKO blaðið sent.