
Jólagjöf ársins 2025
12.11.2025Jólakönnun ELKO 2025
Niðurstaða um jólagjöf ársins fékkst með nokkrum yfirburðum að þessu sinni í árvissri jólakönnun ELKO. Ninja Creami ísvélin hlaut afgerandi kosningu og tekur við af snjallsímum sem verið hafa á toppi listans tvö ár í röð.
Tæplega fjögur þúsund svör bárust í könnuninni sem send var á póstlista ELKO. Líkt og fyrri ár er markmiðið með könnuninni að grafast fyrir um jólagjöf ársins og leita um leið skemmtilegra upplýsinga um hefðir og jólahald landsmanna.

LED grímur með á lista
Að þessu sinni hlaut Ninja CREAMi ísvélinn tuttugu og fjögur prósent atkvæða í opnu spurningunni „Hver er jólagjöf ársins í ár 2025?“ Þar á eftir koma símar, heyrnartól og snjallúr sem jafnan eru ofarlega á óskalista landsmanna ár hvert.
Þá komast LED andlitsgrímur topp tuttugu listann í ár en um er að ræða snyrtivöru sem vakið hefur mikla athygli. Grímurnar nota ljósameðferðir sem eiga að stuðla að betri húð, draga úr hrukkum og jafnvel vinna á bólum.

Loftsteikingarpotturinn (air fryer) enn á óskalista fólks. Þrátt fyrir að þeir séu til á um 56 prósentum heimila segir rúmur fimmtungur, eða 21 prósent, ýmist að loftsteikingarpottur sé á óskalistanum eða að kominn sé tími á nýjan.
Sömuleiðis hafa bæði skyndimyndavélar og stafrænar myndavélar verið að sækja í sig veðrið. Margir héldu að tími þeirra væri liðinn, en svo er aldeilis ekki.
Í tilefni af því að ELKO hóf í ár sölu á vörum frá leikfangaframleiðandanum LEGO var jafnframt spurt sérstaklega um þær. Í ljós kom að um 57 prósent ætla að gefa allavega eina gjöf frá LEGO þessi jólin. Með þessari viðbót í vöruúrvalið má segja að nú fáist á einum stað jólagjafir fyrir alla fjölskylduna.
Gjafakort, upplifanir, samvera og bækur komast einnig ofarlega á listann í ár og þá má eins gera ráð fyrir því að hitateppi og stafrænir myndarammar rati undir jólatrén fyrir ömmur og afa.

Hvenær byrjar fólk og hve miklu ver það í jólagjafir?
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar í ár byrja langflestir, um 42 prósent, jólagjafainnkaupin í nóvember. Gera má ráð fyrir að þar eigi stóran þátt afsláttardagar í mánuðinum. Tæplega sautján prósent byrja í október og sama hlutfall í desember, en það kemur á óvart að um tólf prósent segjast með augun opin og kaupa jólagjafir allan ársins hring. En þegar konur voru skoðaðar sérstaklega þá mátti sjá að þær byrja jólagjafainnkaupin almennt fyrr en karlmenn en ekki fengust niðurstöður fyrir aðra hópa.

Tæplega helmingur gefur tíu gjafir eða fleiri og því líklega gott að dreifa kostnaðinum ef hægt er. Flestir gera ráð fyrir að verja yfir 150 þúsund krónum í jólagjafir í ár eða um 26 prósent. En þess má þó geta að um 22 prósent telja sig munu verja hærri fjárhæðum frá 101 – 150 þúsund krónum í jólagjafir í ár.

Margir halda fast í jólahefðir
listans. Jólatónleikar eru á dagskrá hjá 34 prósentum svarenda könnunarinnar, en rúmlega fjórðungur hefur ekki gert upp hug sinn varðandi það. Því er ljóst að enn er eftir nægu að slægjast fyrir jólatónleikahaldara.
Þá leiðir könnunin í ljós að um 70 prósent setja upp gervitré fyrir jólin og rúmlega 20 prósent notast við alvöru tré. Sjö prósent segjast hins vegar ekki setja upp jólatré.
Þá ætla 40 prósent að kaupa sér jóladagatal, um helmingur skreytir piparkökur fyrir jólin og tæplega 30 prósent ætla að kaupa jólagjöf handa sjálfum sér.
Þá er spurning hvað lesa má úr því að núna gera rúm 20 prósent 18 ára og eldri ráð fyrir að fá í skóinn á aðfangadag. Nítján prósent segja þetta þó eiga eftir að koma í ljós, en um er að ræða vinsæla hefð hjá fjölskyldum þar sem fjölskyldan deilir samverustund á aðfangadagsmorgun.
Um jól er líka mikil hefð fyrir spilum og engin breyting þar á samkvæmt könnuninni. Hún sýnir að 38,5 prósent ætla að kaupa spil fyrir sig eða fjölskyldu sína og 21 prósent ætlar að kaupa spil til þess að gefa í gjöf.


Spurt var um vinsælustu jólamyndina
Samkvæmt niðurstöðum úr opinni spurningu er Home Alone vinsælasta jólamyndin með um 26 prósent atkvæða, en þar á eftir kemur rómantíska jólagamanmyndin Holiday með 15 prósent og svo Christmas Vacation með 13 prósent. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þrettán vinsælustu jólamyndirnar og er því hægt að horfa á eina mynd fyrir hvern jólasvein sem kemur til byggða, eða teygja áhorfið yfir lengri tíma.
Athygli vekur að ævintýramyndirnar byggðar á Hringadróttinssögu komast á topp tíu listann. Þær voru allar frumsýndar á milli jóla og nýárs og ljóst að áhorf á þær hefur sterka tengingu við jólatímabilið.

Verða landsmenn heima um jólin?
Nokkur hefð er fyrir utanlandsferðum, fyrir, um, eða eftir jólin, en samkvæmt niðurstöðunum má ætla að fimm prósent landsmanna verði ekki á Íslandi um jólin, en um tvö prósent höfðu ekki gert upp hug sinn varðandi utanlandsferðir og eru því líklegast tilbúin að stökkva á heitari slóðir ef tækifærið gefst.

Þá kemur í ljós að um 68 prósent segjast hafa þurft að skila jólagjöf og því vert að benda á að hvort sem fólk verður á landinu eða ekki þarf enginn að flýta sér til að skila gjöfum því í ELKO er skilaréttur á öllum jólagjöfum til 31. janúar 2026.

Það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli
Síðustu ár hefur viðskiptavinum ELKO boðist, í tengslum við jólakönnunina, að tilnefna málefni sem standa þeim nærri til úthlutunar úr styrktarsjóði ELKO.
Á síðasta ári hlaut Umhyggja – félag langveikra barna styrkinn, en í ár var Ljósið með rúmlega helmingi fleiri atkvæði en næsta málefni þar á eftir. Ljósið hlýtur því styrk upp á eina milljón króna úr styrktarsjóði ELKO í nóvember.
Skemmtilegar niðurstöður úr ELKO jólakönnuninni






